Morgunblaðið - 05.08.2011, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 2011
FERÐALÖG
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
Prýðilegu veðri er spáð að Fjallabaki
um helgina og ætti friðlandið og ná-
grenni þess því að vera ofarlega á
lista þeirra sem ætla út úr bænum.
Skýjuðu og mildu veðri er spáð á
morgun, laugardag, en glampandi sól
og 15 stiga hita á sunnudag.
Friðlandið sjálft geymir meira en
nóg af áhugaverðum stöðum fyrir
eina helgarferð, enda um það bil 470
ferkílómetrar að stærð og ekkert
nema ósnortin víðerni og fjöl-
breytilegra landslag en víðast hvar
annars staðar. Svæðið að Fjallabaki
er ein helsta perla íslenska hálend-
isins.
Flestir fara eflaust á eigin bílum,
en einnig er hægt að taka rútu frá
BSÍ klukkan átta að morgni, og vera
kominn í Landmannalaugar klukkan
hálffjögur eftir hádegið. Það kostar
7.400 krónur aðra leið með Kynn-
isferðum. Fólksbílum er fært alveg
inn að Landmannalaugum ef farið er
Sigölduleið, en hærri bílar geta einn-
ig farið Landmannaleið. Vað hindrar
reyndar för alveg að skálanum en þá
má leggja við vaðið og rölta þaðan.
Fólki er hins vegar ekki ráðlagt að
fara nema á jeppum áfram Fjalla-
baksleið nyrðri enda mörg vöð sem
þarf að fara yfir á leiðinni. Þau eru þó
auðveld yfirferðar á jeppum.
Hægt að taka hring um svæðið
Þegar lagt er upp frá Reykjavík er
heildarvegalengd ferðarinnar um 490
kílómetrar, ef ekið er Land-
mannaleið, komið vestan megin að
friðlandinu, svo hringinn í kringum
Mýrdalsjökul og áleiðis heim eftir
hringveginum um Suðurland. Vega-
lengdir sem þessar er hægt að sjá á
vef Vegagerðarinnar. Ef óbyggð-
irnar kalla hins vegar enn þegar
komið er austur um – og fjölskyldan
verður að gegna þeim – er ekki nauð-
synlegt að fara niður Skaftártungu
að hringveginum heldur er hægt að
aka Álftavatnaleið niður á Mælifellss-
and og fara svo Fjallabaksleið syðri
til baka, að því gefnu að olíu-
tankurinn sé ekki galtómur. Þá lýkur
hálendisferðinni í Fljótshlíð. Auð-
veldlega má reikna með um 20.000
króna olíukostnaði við ferð sem
þessa. Á Álfavatnaleið þarf reyndar
að fara yfir Syðri-Ófæru á vaði, en
áin er nokkuð vatnsmikil og ekki víst
að allir á óbreyttum bílum treysti sér
þar yfir.
Ferðin er talsverð keyrsla og til-
valið að skipta henni frekar jafnt upp.
Vitanlega er hægt að tjalda eða sofa í
húsbíl, en þess utan er vert að hafa í
huga að ferðafélög, Útivist og Ferða-
félag Íslands, eiga skála á svæðinu og
hægt er að leigja sér svefnpláss í
þeim á meðan húsrúm leyfir. Að-
staðan er tiltölulega fábrotin víðast
hvar, útikamrar, gaseldavélar, kolag-
rill og hellugólf, sem gerir stemn-
inguna bara þeim mun skemmtilegri.
Útivist hefur allnokkra skála, til að
mynda við Sveinstind, í Skælingum
við Skaftá, Álftavötnum og við Strút
á Mælifellssandi. Ferðafélag Íslands
hefur t.a.m. skála í Landmannalaug-
um og Hvanngili, auk þess sem veiði-
félag Skaftártungumanna rekur há-
lendismiðstöðina Hólaskjól.
Svefnpokapláss í skálum sem þessum
kostar yfirleitt í kringum þrjú þús-
und krónur á nóttina ef ferðalangar
eru ekki meðlimir í viðkomandi fé-
lagi. Sums staðar eru skálaverðir
alltaf en annars staðar líta þeir bara
við annað slagið.
Endurnærandi náttúra
En til hvers að gera sér ferð svo
fjarri skyndibitastöðum og klukku-
búðum? Að Fjallabaki er einfaldlega
hægt að hafa það mjög gott í faðmi
náttúrunnar, að því gefnu að nestið
endist, fötin séu hlý og GPS-tækið
með í för. Þangað fara á annað
hundrað þúsund manns á hverju
sumri, að því er segir í árbók Ferða-
félags Íslands 2010, Friðland að
Fjallabaki. Í Landmannalaugum
kemst maður í heitt bað og sömuleið-
is í Strútslaug. Eftir að hafa vaðið
kalda á í vaðskóm og skellt sér svo í
heita laug er tilfinningin svipuð og
eftir dag í heilsulind. Bara betri.
Gönguleiðir eru óteljandi og hægt að
velja lengd þeirra eftir eigin höfði.
Laugavegurinn er vinsælastur af
þeim lengri, en þar má einnig nefna
Strútsstíg og leiðina frá Sveinstindi í
Skælinga. Óvíða annars staðar sjást
fjallshlíðar allt frá skærum sægræn-
um út í gulbrúnan eða dökkrauðan.
Fjöllin eru jafnólík og þau eru mörg.
Úfin og mosagróin apalhraun hafa
runnið á milli þeirra. Kröftugar jök-
ulár móta svo landið, sem fer allt frá
kolsvörtum söndum og sprengigígum
á borð við Ljótapoll yfir í gróin heiða-
lönd þar sem sauðfé liggur mak-
indalega á meltunni. Einkennisútlit
fjallanna á svæðinu eru eldkeilur með
mosagrónar hlíðar, eins og Mælifell,
Strútur og Hattfell.
Helgarferðin – áhugaverðir áfangastaðir
Kvennareið Þessar konur ferðuðust um Fjallabaksleið nyrðri um helgina, þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti þar leið um. Þær voru þá staddar í hlíðum Grænafjalls, nokkuð utan friðlandsins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á milli mosagróinna fjallatinda
Milt veður og hlýtt að Fjallabaki á laugardaginn en glampandi sól og blíðu er spáð á sunnudaginn
Friðland sem býður upp á allt það sem náttúruunnandinn þráir, þótt ekki sé þjónustustigið hátt
Ljósmynd/Önundur Páll Ragnarsson
Fjalladýrð Útivist er með ágætan skála við Álftavötn, nokkra kílómetra frá Hólaskjóli. Þegar bjart er yfir og stillt í
veðri er fegurðin þar óviðjafnanleg, þar sem iðjagræn fjöll og hvítfyssandi straumvatn speglast í ísköldu vatninu.
F208
F210
26
1
1
Fljótshlíð
Tindfjallajökull
Eyjafjallajökull
Mýrdalsjökull
Torfajökull
Þj
ór
sá
Hekla
Þór
isv
atn
La
ng
isj
ór
Landmannaleið
Hálendismiðst.
Hrauneyjar
Fjallabaksleið
syðri
Fjallabaksleið
nyrðri
Mælifell
208
209
264
1
Landmannalaugar
Þórsmörk
Hvanngil
2
Eldgjá og
Ófærufoss
Hólaskjól
Sveinstindur
3
1 Strútsstígur 2 Laugavegur 3 Sveinstindur–
Hólaskjól
Strútur
Grunnkort: LMÍ
Um leið og farið er að skoða
Landmannahelli er hægt að
gera sér ferð upp á fjallið Löð-
mund. Það er 1.074 metra hátt
en gangan þar upp og niður er
þægileg þriggja til fjögurra tíma
ferð. Af fjallinu sést vel til allra
átta, þar á meðal til Heklu.
Við Landmannalaugar eru
margar gönguleiðir og í raun
nóg að rölta upp á Laugahraun,
sem tekur um það bil fimm mín-
útur, til að fá fallegt útsýni að
Bláhnúki, Brennisteinsöldu,
Hatti og Barmi, litríkum lípar-
ítfjöllum sem marka eina hlið
öskju megineldstöðvarinnar
undir Torfajökli. Laugahring-
urinn er stutt leið í gegnum
Laugahraun og niður Grænagil
við Bláhnúk, eins og því er lýst í
árbók FÍ árið 2010.
Þar segir einnig að Bláhnúkur
sé nærtækastur þegar velja
skuli gott útsýnisfjall í allra
næsta nágrenni Landmanna-
lauga, en vilji menn enn betra
útsýni er gengið á Skalla. Langt
í burtu, en þó ekki svo mikið úr
leið fyrir þá sem fara Fjalla-
baksleið nyrðri, er Sveinstindur.
Hann er við suðvesturenda
Langasjávar og er líklega eitt
besta útsýnisfjall landsins. Á
leiðinni þangað er kjörið að
stoppa við Eldgjá og rölta 1,9
kílómetra stíg inn að Ófæru-
fossi. Talið að stærsta hraun
sem runnið hefur á sögulegum
tíma á jörðinni hafi runnið úr
Eldgjá árið 934 og finna menn
vel fyrir þeirri gríðarstóru gos-
sprungu.
Fjölmargar
gönguleiðir
að Fjallabaki
HÁLENDISGÖNGUR
Morgunblaðið/RAX
Líparít Græni hryggurinn í Sveins-
gili sker sig úr með áberandi hætti.
Skannaðu kóðann
og sjáðu lista yfir
skála Útivistar að
Fjallabaki.