30. júní - 15.06.1968, Side 7
7
30. JUNI
Kristjan var til kvaddur
Framhald af bls. 8.
vanda og vegsemdar á þjóðin
að kveðja mann, en enginn að
ryðja sér þangað braut af eig-
in metnaði," segir Bjarni
Benediktsson ennfremur í
fyrrnefndri Morgunblaðs-
grein. Á þetta jafn vel við í
dag og fyrir 16 árum. Dr.
Kristján Eldjárn hafði ekki
ætlað sér embætti forseta ís-
lands. Hann reyndi aldrei að
ryðja sér braut að Bessastöð-
um. Það var ekki fyrr en sam-
tök manna og kvenna úr öll-
um stéttum og öllum f lokkum
höfðu gengið hart að dr.
Kristjáni, að hann fékkst til
að fallajt á framboð. Samtök-
in voru mynduð vegna þess,
að mönnum var ljóst, að dr.
Kristján hefði öðrum fremur
þá kosti til að bera, sem
hæfðu forseta íslands.
Persónuleg kynni mín af
dr. Kristjáni Eldjárn eru lítil.
Ég þekki hann aðallega af af-
spurn. Það orð, sem af hon-
um fer, framkoma hans í
nafni embættis síns og að
undanförnu, eftir að hann
gaf kost á sér sem forsetaefni,
hafa sannfært mig um og
sarmaS", að hann hefur ein-
mitt til eð bera þá hæfileika,
sem henta góðum forseta.
Svo að ég vitni enn í Morg-
nnblaðið fyrir forsetakjörið
1952, segir þar í ritstjórnar-
grein 20. maí:
„Hlutverk hins íslenzka
þjóðhöfðingja er ekki fyrst
og fremst það, að vera út-
lendingum þægilegur gest-
gjafi. — Hitt er miklu þýð-
ingarmeira, að hann sé þjóð
sinni tákn friðar og einingar
og hafi hæfileika til þess að
laða til samstarfs og góðvild-
ar.
Forseti íslands á þannig
fyrst og fremst að vera þjóð-
legur maður, enda þótt hann
þurfi að koma virðulega fram
fyrir hönd þjóðarinnar gagn-
vart erlendum tignarmönn-
um. Hann þjónar hagsmun-
um þjóðar sinnar betur með
því, að koma til dyranna í
samræmi við íslenzka siðu og
háttu en að leggja höfuð-
áherzlu á erlenda eftiröpun."
Dr. Kristján Eldjárn er
þjóðlegur maður og kemur
virðulega-fram, jafnt gagn-
vart erlendum sem innlend-
um, tignarmönnum og al-
þýðu. Hann verður þjóðinni
það tákn friðar og einingar,
sem við sækjumst eftir í emb-
ætti forseta fslands, og ég gef
hpnuip, atJtyæ.ðj.,á k,j/jr-
degi í þeicri vissu, að þá kjósi
ég mann, sem islenzka þjóðin
getur verið hreykin af.
Sigríður Xhors.
SIGURÐCR KRISTJÁNSSON, skólastjóri, Laugum:
Ég árna Kristjáni
brautargengis
JÓNAS JÓNSSON frá Hriflu:
Sveitarheill í Svarfaðardal
Það virðist giftumerki að vera
Svarfdælingur. Nú hafa þúsund-
ir manna um allt land ákveðið,
að miðaldra bóndason úr þess-
um dal sé bezt fallinn af öllum
íslendingum til að setjast í forn-
frægan stól Snorra Sturlusonar
á Bessastöðum. Snorri var í senn
mikill listamaður, góður bóndl
og áhrifamikill visindamaður.
Ég kynntist Svarfdælingum
eftir aldamótin. Þá voru tólf
sveitapiltar að ljúka sögu
Möðruvallaskólans. Húsið var
nýbrunnið. Við höfðum ekkert
frambærilegt hús, en þrjá ágæta
kennara. Við vorum lífsglaðir,
hraustir og miklir vinir. Þó þótti
okkur mest varið í yngsta svein-
inn í hópnum, Þórarin Eldjárn
prestsson úr Svarfaðardal. Hann
hreif hugi okkar stallbræðranna
sem æskuprúður giftumaður.
Þórarinn hvarf úr skólanum
heim í dalinn sinn, tók við búi
foreldranna og giftist ágætri
konu. Hann var önnum kafinn
við bú og börn og bað ekki um
önnur gæði. En Svarfdælingar
báðu hann að gera margt fyrir
sveitina sína. Hann gerðist
kennari barna og ungmenna, og
skólinn var á Tjörn. Hann var
hreppsnefndarmaður og hrepp-
stjóri, sýslunefndarmaður og
lieiðtogi Kaupfélags Eyfirðinga,
óg seinast stjórnarformaður
þeirrar stofnunar, sem er eitt-
hvert glæsilegasta fyrirtæki á
íslandi.
Víða sjást spor dugandi
manna í Svarfaðardal. Sveitin
var veglaus og ríkið fátækt. Þá
lögðu Svarfdælingar á sig gjafa-
vinnu bæði sumar og haust til
að gera akveg eftir byggðinni.
Síðar kom brú á ána. En í hlið-
Nýr andi —
Jónas Jónsson.
inni skammt frá Tjörn fundu
ungir Svarfdælingar hitaæð í
fjallinu. Brutu þeir harðar
klappirnar og byggðu sér baðhús
og síðan fyrstu sundlaug í sveit-
inni. Varð þetta landsfrægt af-
rek, og Sigurður Guðmundsson
meistari sendi æskumenn sína í
þessa námsstöð,
Svarfdælingar gleyma ekki
ættbyggð sinni, þótt þeir hverfi
á braut. Duglegur Svarfdæling-
ur varð efnaður vestan hafs. En
hann hugsaði heim og gaf kirkju
dalsins klukku, sem heyrist við
messugerðir um alla sveitina.
Ennfreniur gaf þessi burtflutti
sonur stórgjöf í reiðufé til að
planta bjarkaskóg á víðáttumik-
illi sléttu i dalnum. Klukkan og
skógarlundurinn munu lengi
bera vott um sonarhlýhug Svarf-
dælings i annarri álfu.
Ég hef á löngum dvalarárum
sunnanlands kynnzt mörgu góðu
fólki, borgarbúum/og aðkomu-
mönnum. í þeim hópi eru Svarf-
dælingar eftirminnilegastir. Þeir
eru ekki duglegir að veiða
hlunnindi, stöður og vegtyllur,
en þeir hafa löngun til að vera
dugandi menn í gagnlegu starfi.
Mér þykir það spá góðu, að al-
menningur um allt land vill nú
gera mjög álitlegan Svarfdæling
að eftirmanni Snorra á Bessa-
stöðum. Bændur hafa borið hita
og þunga þjóðlífsins í ellefu ald-
ir. Þeir sömdu lögin og skrifuðu
fornsögurnar. Þeir varðveittu
tungu þjóðarinnar og menningu
á löngum og dimmum kúgunar-
timum, og þeir börðust einhuga
fyrir endurheimt sjálfstæðisins
á morgni nýrrar aldar. Nú er í
framboði til þjóðarforustu úr-
valsmaður úr úrvalssveit. Nú
sannast enn sem fyrr hve gifta
íslands er mikil á örlagastund-
um.
Jónas Jónsson frá Hriflu.
Tákn hins bezta
Framhald af bls. 4.
mér t. d. í hug að liggja Gunn-
ari Thoroddsen á hálsi fyrir það,
þótt nokkrir yfirlýstir stuðnings-
menn hans og ættingjar tækju
þátt í opinberum mótmælaað-
gerðum kommúnista nú nýlega.
Það væri jafnósæmilegt og nafn-
lausu árásirnar á Kristján.
Val mitt í forsetakosningun-
um hinn 30. júní verður, eins
og áður er sagt, Kristján Eld-
járn. Honum treysti ég vel til
þess að verða tákn íslenzkrar
einingar og alls hins bezta í
fari og sögu íslenzku þjóðarinn-
ar.
Forseti íslenzka lýðveldisins
hélt að venju ræðju 1. jan. s.l.
og boðaði þá þjóð sinni, að
hann yrði ekki forseti lengur en
út núverandi kjörtímabil.
Ekki var janúarmánuður lið-
inn, þegar mér var boðið að
gjörast áskorandi og um leið
meðmælandi með framboði
herra Gunnars Thoroddsens. Ég
afþakkaði boðið, kærði mig ekki
um, að forsetaembættið væri
gjört arfgengt, þegar konung-
dæmi væri hafnað, eins og ég
tók til orða.
Síðar fagnaði ég þessari af-
stöðu. Gott var að vera óbund-
inn af fyrri undirskrift, þegar
ég heyrði, að dr. Kristján Eld-
járn hefði gefið kost á sér til
forsetakjörs.
Hver sá maður (nema hann
sé fyrirfram blindaður af flokks-
hyggju), sem í bernsku hefir
notið einstakrar leiðsagnar föð-
ur hans og jafnframt kynnzt i
leik, námi og löngu starfi hæfi-
leika- og drengskaparmannin-
um Kristjáni Eldjárn, hlýtur að
Sigurður Kristjánsson.
árna honum brautargengis og
stuðla af alefli að kosningu hans
í þetta hið virðulegasta embætti
landsins.
Framhald af bls. 2.
heim nýjum hugmyndum né
nýjum hugsunum. Því leikur
hvorki nýr andi né ferskur blær
um æðstu stjórnvöld ríkisins. En
vissulega er eðlilegt að fólkið i
landinu, ekki sízt unga fólk-
ið, óski eftir slíku. Og þvi er
eðlilegt og skiljanlegt að fram-
boði Kristjáns Eldjárns skuli
jafn vel tekið og raun ber vitni.
Sjálfsagt er að unna Gunnari
Thoroddsen sannmælis. En ekki
verður hann, tæplega sextugur
maðurlnn, talinn frambjoðandi
yngri hluta þjóðarinnar, og ekkl
er hægt að hugsa sér að með
honum komi nýr andi eða fersk-
ur blær í æðsta stjórnkerfi þjóð-
arinnar. Með honum yrði gamla
lagið áfram óbreytt. Alþingi og
ríkisstjórn hefðu áreiðanlega
gott af því, að í sæti forseta
settist aðeins rúmlega fimmtug-
ur maður, óþreyttur og ferskur,
maður nýrra hugmynda og
nýrra leiða. Með honum kæmi
hressandi andblær þjóðlífsins og
þjóðarinnar sjálfrar inn í gam-
alt og værukært stjórnkerfi.
Slíks er þörf og að því voua
ég að sem flestir vilji vinna. En
það veröur aðeins gert með því
að krossa við nafn Kristjáns
Eldjárns á kjördegi.
Sigurður Guðmundsson.
Kjósum Krístján
:♦:
;♦:
:♦:
♦:
ít:
:♦:
;♦:
:♦:
:♦:
:♦:
:♦:
:♦:
:♦:
:♦:
:♦:
'§
:♦:
ú
i
æ
:♦:
:♦:
%
:♦:
'ú
:♦:
:♦:
:♦:
:♦:
í:i
%
:♦:
:♦:
:♦:
:♦:
:♦:
:♦:
:♦:
:♦:
:♦:
:♦:
:♦:
:♦:
:♦:
g
i
:♦:
:♦:
:♦:
í:í
ORÐSENDING FRA
KOSNINGASJÓÐI
STUÐNINGSMANNA
dr. Kristjáns Eldjárns
Fyrir hönd kosningasjóðs leyfi ég mér að vekja
athygli stuðningsmanna um allt land á þvi, að
verulegt fé vantar í kosningasjóðinn til að standa
undir óhjákvæmilegum útgjöldum.
\
Við höfum sent ýmsum samherjum beiðni um
aðstoð og viljum þakka hinar ágætu undirtektir.
En að sjálfsögðu höfum við engan veginn náð
nema til lítils hluta þess mikla fjölda, sem vill
taka þátt í kostnaðinum með okkur.
Það eru mjög eindregin tilmæli okkar til allra
stuðningsmanna, að þeir leggi eitthvað af mörk-
um — minnugir þess að margt smátt gerir eitt
stórt. Vinsamlega leggið smáupphæðir í póstinn
eða komið þeim til okkar á aðalskrifstofuna að
Bankastræti 6.
F.h. kosningasjóðs stuðningsmanna
dr. Kristjáns Eldjárns,
Ragnar Jónsson.
:♦:
;♦:
:♦:
:♦:
í:í
:♦:
;♦:
;♦:
:♦:
;♦:
:♦:
:♦:
;♦:
;♦:
:♦:
:♦:
:♦:
:♦:
:♦:
;♦:
:♦:
:♦:
íí
:♦:
s
:♦:
:♦:
:♦:
;♦:
:♦:
i
:♦:
;♦;
y
;♦:
:♦:
:♦:
:♦:
>:<
:♦:
ií