Birtingur - 24.12.1953, Blaðsíða 14

Birtingur - 24.12.1953, Blaðsíða 14
S Ú P E R M A N N og blú pcelott Framli. á 5. siðu Hann var að mestu búinn að gleyma hvernig nóttin hafði síðan liðið. Hann mundi að hann hafði drukkið kogarann eins og hann gat og hann hafði dottið í poll og farið að gráta og biðja. Hann hafði engzt flatur í pollinum, velt sér um hrygg og hrópað á hjálp frá himnum. En það lak bara framan í hann ofan úr himnin- um og innundir skyrtuna og niður með buxna- strengnum eins og guð og jeremías væru að skvetta á hann út um gat . . . svo hafði hann dáið þarna í pollinum.. Hann hafði vaknað hríðskjálíandi undir morguninn í þessari forarvilpu og nötraði allur og var blaulur á enninu þegar hann skreiddist á fætur og settist ofan i krapaleðjuna á bekkn- um. Hann fálmaði í vasa sinn og fann kogara- glasið. Það var heilt og hafði ekki brotnað þegar hann dó, og tappinn hafði heldur ekki farið úr því, en þegar hann var búinn að pína sig til að súpa á því, kastaði hann upp. Hann sat lengi tvöfaldur á bekknum og kúgaðist niður á milli hnjánna á sér og horfði á blágrænt slím- ið lita gráhvítan krapaskaflinn. Ælan minnti hann á ógeðslega hvelju sem liggur í velktri brimfroðu á sjávarströnd. Loks hætti hann að æla og dróst á fætur til að leita að einhverri rónasjoppu þar sem hami gæti fengið kók til að blanda. Stúlkan hótaði umsvifalaust að hringja á Iögregluna þegar hann bar upp erindið en svo aumkaðist hún yfir hann þegar hann stundi því upp hvaðhann væri hræðilega þyrstur og sýndi henni tíkallinn, því þó að hann væri blautur og þvældur var þetta þó peningur, og hann sagðist skyldu kaupa glerið líka og fara svo strax út. Stúlkan var Ijóshærð og augun blá og hún studdi sig við öxlina á Kananum sem sat hjá henni innanvið borðið þegar hún gekk inn í kompuna til að sækja kókið. Hann litaðist um og fann að hann hafði ríg í hálsinum, og þá sá hann ræfilslegan gæja í 14 speglinum á veggnum. lfann var með gelgjulegt totuandlit og ekki sprottin grön, bara litlaus hýjungur innanum bólurnar á efri vörinni og kjálkabörðunum. Þessi lúðulakalegi gutti horfði á hann á móti, sljóum, sinnulausum pödduaugum og tinaði, eins og hálsinn væri úr gormi eins og hálsarnir á sprellikörlunum sem hanga í snúru niður úr spegli innan á bílrúðu. Hann sá snöggvast allt í titrandi móðu — ó- hreinl rennblautt rifið hárið sem hékk niður i augu eins og moldugur arfi, — önnur kinnin var storkið blóðrisa hrúgald með nokkrum hvítura rákum niður frá bólgnu auganu eins og ]>ar hefði eitthvað runnið niður. Grænleitir slefutaumar lágu frá munnvikunum niður á háls og skærblár gabardínjakkinn hefði ekki getað verið óþrifalegri þó að gatan hefði verið þurrkuð með honum. Onnur ermin var næstum af. Guttinn horfði alltaf á hann næstum frekju- lega og hann var að velta fyrir sér hvort hann ætti ekki að slá hann kaldan, þegar hann rak augun í stælbindið. Almáttugur jeremías! Þetta var hann sjálfur í speglinum á veggnum! Þetta var einmitt litskrúðuga stælbindið sem hann hafði sjálfur keypt beint frá Amríku fyrir 130 kall — sem hann hafði sjálfur valið úr fimmtíu öðrum bindum af því stúlkan á því var svo lík stúlkunni hans! Guð! var hann þá svona lítill og Ijótur og bólóttur og rifinn og óhreinn! Með þetta andstyggilega uppbretta kartöflunef eins og á krakka — þessi rauðmatandi vaglaugu! Jeremías enn og aftur! Þessar rýru drengs- axlir sem stoppið slapti útaf niður á þvengmjóa handleggina, — þetta flata, innfallna kerlingar- brjóst, — var þetta virkilega allt sem eftir var af Súpermanninum frá í gærkvöldi? Nei, það náði ekki nokkurri átt, — þetta var ekki hann sjálfur, — þetta var smágæjapjakkur sem hafði lent illa í því-- — Iférna er kókið og hypjaðu þig svo út eins og skot! urraði stúlkan. —- Annars ferðu beint í kjallarann! Hann rankaði við sér og lagði tíkallinn á borðið. Fyrst þegar hann var kominn út á götu BIRTINGÚR

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/822

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.