Austurland - 17.11.1988, Side 6
Jólin nálgast
Látið hreinsa tímanleqa
fyrir jólin
HREINSUN
S 71288 NESKAUPSTAÐ
VG
Til sölu
tveir básar í hesthúsinu
við Naustahvamm
í Neskaupstað
Upplýsingar S 71123
Austurland
Norðfjördur
Ovíst hvenær
flugstöðvarframkvæmdum
verður fram haldið
Nýlega var dregið í bílahappdrœtti Þróttar. Á myndinni er
vinningshafinn, ína Gísladóttir við Skódann sem hún hlaut.
Kvennaþingskonur með áskorun:
Ekki stríðsleikföng
Frá BSRB-þingi
Nýja flugstöðin sem er í bygg-
ingu á Norðfirði er nú frágengin
að utan og þar með er lokið
þeim framkvæmdum við hana
sem áformaðar voru á þessu ári.
Ingólfur Arnarson umdæmis-
stjóri flugmálastjórnar sagði í
samtali við blaðið að óvíst væri
hvenær innréttingavinna og
önnur vinna sem eftir er yrði
framkvæmd. Hann sagði að gert
væri ráð fyrir því að klára flug-
Dagana 17. - 21. október var
35. þing BSRB haldið í Reykja-
vík. Rétt til þingsetu höfðu 208
fulltrúar ríkis og bæja, þar af
átti Félag opinberra starfs-
manna á Austurlandi 2 fulltrúa,
þá Andrés Gunnlaugsson, Eski-
firði og Jóhann Sveinbjörnsson,
Seyðisfiröi.
Þar sem mörg mál komu fram
verður aðeins stiklað á stóru og
rakið það helsta.
Fjárhagsstaða BSRB er
þokkaleg og var því ákveðið að
lækka félagsgjöld til BSRB úr
0,4% í 0,35%. Einnig á að koma
betur til móts við hin einstöku
félög við samningagerð og
fleira.
Ákveðið var að selja orlofs-
hús þau er kennarar áttu til fé-
laganna og einnig varð sú breyt-
ing gerð að í stjórn BSRB skulu
kosnir 19 aðalmenn í stað 11
áður.
Varað var við hverskonar
breytingum sem skert gætu líf-
eyrisréttindi félagsmanna.
Frá starfskjaranefnd kont
eftirfarandi ályktun:
„35. þing BSRB fordæmir að-
för stjórnvalda í landinu að
samningsrétti og krefst þess að
gildandi kjarasamningar séu
ekki gerðir ómerkir með ein-
hliða aðgerðum. Þaðerog verð-
ur ófravíkjanleg skoðun Banda-
lagsins að alla samninga beri að
virða. Það er einn af meginþátt-
um lýðræðis í landinu."
Lögð var áhersla á að krefjast
sömu launa fyrir sömu vinnu og
að fólki í sambærilegum störfum
verði ekki mismunað í formi
mismunandi starfsheita og dul-
inna launagreiðslna. Að ríkj-
andi skilgreining á ábyrgð verði
endurskoðuð.
Rætt var um styttingu vinnu-
tíma, skattamál, mannréttindi,
lenginu fæðingarorlofs í 52 vik-
ur og margt fleira sem of langt
mál yrði að telja upp hér.
Eins og allir vita fór fram for-
mannskjör. Þrír gáfu kost á sér
til kjörs. Það voru þau Guðrún
Árnadóttir, Ögmundur Jónas-
son og Örlygur Geirsson. Hlaut
Ögmundur Jónasson kosningu
með 108 atkvæðum. Til fyrsta
varaformanns var kosinn Har-
aldur Hannesson og til annars
varaformanns var kosinn Ragn-
hildur Guðmundsdóttir. Við í
FOSA óskum Ögmundi og öðru
nýju starfsfólki BSRB farsældar
í starfi.
Stjórnarkjör fór þannig að
ríkisstarfsmenn eiga 11 l'ulltrúa
og bæjarstarfsmenn 8.
Þingið þótti bæði langt og
strangt og málin mörg sem af-
greiðslu hlutu og vel að þeim
staðið.
Frétt frá Félagi opinberra
starfsmanna á Austurlandi.
stöðina í flugmálaáætlun fyrir
1989 en á næsta ári yrði Flug-
málastjórn í fyrsta sinn að miða
framkvæmdir við tekj ur sínar og
þá kæmu tekjur til framkvæmda
inn á skemmri tíma en á meðan
framkvæmdir hefðu verið á fjár-
lögum. Þetta gerir það að verk-
um að líklegt er að framkvæmd-
um við flugstöðina seinki fram
á sumar, þó svo að hér sé um
innivinnu að ræða sem heppilegt
er að vinna að vetri til. Þó er
ekkert afráðið í þessum efnum
enn og því ekki ljóst hvort stöð-
in verður tilbúin í ágústmánuði,
eins og áformað var í upphafi,
eða seinna á næsta ári.
Ingólfur sagði að auk flug-
stöðvar á Norðfirði ríkti sama
óvissa með áframhald fram-
kvæmda við flugstöðina á Egiis-
stöðum. Hann sagði að fjögurra
til sex mánaða vinna væri eftir
við stöðina á Norðfirði og yrðu
þær framkvæmdir boðnar út í
einum pakka. Iib
Hópur kvenna af Austur-
landi, sem sótti kvennaþingið í
Osló á dögunum, fundaði á Eg-
ilsstöðum þann 6. nóvember sl.
Hópurinn hefur sent frá sér
áskorun, þar sem skorað er á
börn, foreldra, afa, ömmur,
nemendafélög, foreldrafélög og
önnur félög að hefja umræðu
um áhrif auglýsinga, sem ætlað
er að höfða til barna í auglýs-
ingaflóðinu fyrir jólin.
Fundurinn varpar fram
spurningum og ábendingum og
í frétt frá hópnum er spurt:
Hvaða áhrif hafa leikfangaaug-
lýsingar í sjónvarpinu? - Erum
við sátt við það, að auglýsingar
segi börnunum hvað við eigum
að gefa þem í jólagjöf? - Hvað
getum við gert?
Vöndum valið, veljum ekki
stríðsleikföng né ljót leikföng.
Hugsum um einstaklinginn, sem
gjöfina á að fá og þá ábyrgð sem
gefandi ber. Gildi gjafar felst ekki
í háu verði. Jólin eru friðarhátíð.
Úr frétt frá kvennaþingskonum
Opið hús
(f
í tilefni af Norrænu tækniári verður opið hús hjá
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins útibúinu
Neskaupstað, sunnudaginn 20.nóv.
næstkomandi. Stofnunin er til húsa í
loðnubræðslu SVN og gengið er inn að
austanverðu. Eru allir sem áhuga hafa velkomnir
til að kynna sér starfsemi útibúsins á miUi kl. 13
og 17 þann dag.
VIÐ ERUM FLUTT
Verslun SÚN er ekki lengur í „Steininum" heldur
í mun stærra húsnæði að Hafnarbraut 6
Vöruúrvalið vex dag frá degi - Lítið inn
VERSLUN SÚN
^7 SÍiyiM V? NESKAUPSTAÐ S 711 33
Nýja flugstöðin.
Mynd hb