Nýtt útvarpsblað - 31.10.1948, Qupperneq 3

Nýtt útvarpsblað - 31.10.1948, Qupperneq 3
NÝTT ÚTVARPSBLAÐ 1. árgangur . 3. tölublað Útvarp Reykjavík! í síðasta tölublaði var minnst á áhrifa- vald ltinna pólitísku flokka á starfsemi út- varpsins, hvernig hinu pólitíska valdi hef- ur verið misbeitt, og getur orðið misbeitt, gagnvart þeim, sem llytja efni í útvarpið, og þeim, sem nota það efni til að heyra, ef hin hárnæma tunga hlutleysisins finnur eitt- hvað bragð af efni, sem á einhvern hátt er utan við paragraffinn um hlutleysi og ó- virkleika að efni, sem er aðal stefna — og hlýtur að vera aðalstefna útvarpsráðs, — sem er skipað af pólitískum flokkum. Það verður því að vera föst og markviss stefna, að losa útvarpið undan slíkum yfir- ráðum, og gera það sjálfstætt menningar- tæki, er ekki lúti neinum boðum né bönn- um, öðrum en hinnar siðlegu skyldu, að fara aldrei út af mælisnúru siðlegrar túlk- unar, hvað sem túlkað er. Ekkert það efni er uppi á teningi með menningarþjóð, er eigi má ná eyrum henn- ar í gegnum siðlega túlkun — að ekki sé nú talað um listræna túlkun —, og ekkert siðað þjóðfélag getur meinað þegnum sin- um að taka til máls um áhugaefni sín, ef þeir að öllu leyti túlka mál sitt siðmann- lega. Það er bara líf og andi Hafnarstrætis- ins, sem á þangað ekkert erindi, en svo ein- kennilega hefur viljað til í sögu útvarps- ins undir flokkamenningarráðum, að tek- inn hefur verið upp sérstakur þáttur fyrir þetta stræti x útvarpinu, og það má segja til athugunar um menningarástand þjóðarinn- NÝTT ÚTVARPSBLAÐ ar, að það blöskraði ekki öllum. Og inní sjálfu flokksmenningaráðinu munaukheld- ur hafa verið til sá skilningur, að þetta væri orðinn það „snar þáttur“ af þjóðlífinu, að það ætti rétt á sínum anda í útvarpinu, ef alls réttlætis væri gætt. Negra jass og jap- anskur söngur voru svörin við óskum heils átthagafélags og 335 prívat manna við frek- ari túlkun á verkum afkastamesta tónskálds þjóðarinnar. Og þegar sá, sem þetta ritar, óskaði að fá að tala í útvarpið þrjú erindi um manntalið 1703 á íslandi, þá var svarið linnn erindi frá Palestínu. Að vísu var hann ekki búinn að læra að tala, og sagði að Dan- ir hefðu falið manntalið uppundir 200 ár, en átti auðvitað að segja, að þeir hefðu gengið svo vel frá því, að það hefði geymst í næstu tæp 200 ár, til óbætanlegs tjóns fyrir þjóðina í stjórnmálalegu og fræðintennsku- legu tilliti. Þetta var óskapleg villa, því til er handritmál, ákaflega stórt og viðkvæmt mál, og líklgea ekki liægt að sigra í því máli, nema eftir sömu leiðum og karlssynir frels- uðu kóngadætur úr tröllahöndum í ævintýi'- unum. Þetta er sagt til réttlætingar ráðinu! En þessi dæmi nægja til að sýna, að nokkur átök geta verið á leyndarplani útvarpsins, sem þjóðin fær aldrei að vita um, enda er það styrkur útvarpsins, að þjóðin veit hvað hún hreppir í útvarpinu, en ekki hvað hún ekki hreppir, en líka jafnframt hinn mikli galdur, sem heitir útvai psstarfsemi, Jjví það verður að vera betra, sem hún hreppir, en það sent hún ekki hreppir, og er það eitt hið mikla réttlæti og stranga hlutleysi, sem ber að gæta í útvarpinu. Það er ljóst mál, að ef útvarpsstarfsemi á að vera hlutlaus af flokkapólitík, þá verð- 3

x

Nýtt útvarpsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt útvarpsblað
https://timarit.is/publication/824

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.