Nýtt útvarpsblað - 31.10.1948, Blaðsíða 15

Nýtt útvarpsblað - 31.10.1948, Blaðsíða 15
ólund koniu í einhvern: „Það er auðséð, að Önnu vantar". Þar sem Anna var, var ætíð nóg um gleði og gamanyrði. Gömlu Þuríði þótti nú miðlungi vænt um þessa kátínu, því hún hélt, að það tefði fyrir fólkinu. En hún fyrirgaf Önnu mikið, því jafnvel hún gat ekki að sér gert að brosa, þegar Anna var að gera að gamni sínu. Henni þótti eig- inlega bara eitt að henni, hvað hún væri gjöful við flakkara og aumingja. Hún sagði að það fylgdi því engin blessun að gefa þessu hyski. Það væri bara að fleygja reit- um sínum í sjóinn, og meistari Jón sagði, að þeir sem ekki nenniu að vinna, þeir ættu heldur ekki mat að fá. Allt þetta hyski flakkaði, til þess að komast hjá að vinna, og sníkti svo út hjá þeim, sem nenntu að taka til einhvers hendinni. Hún minntist oft á og gat aldrei gleymt því, að Anna hafði gefið sparipilsið sitt kerlingu, sem kom að Borg eitt haustið, og sagt henni að EITT OG ANNAÐ UM MENN OG KYNNl eftir STEINDÓR SIGURÐSSON. Höfundurinn er fyrir löngu orðinn þjóðkunnur rithöfundur. í þessum minn- ingarþáttum birtist hann ALLUR, bersögli hans og sannsögli um einkamál og einkalíf og líf annarra mun vekja óskipta athygli. — Alinn upp á herrasetr- um og kotbæjum í Skagafirði. Gerist ungur prentari, útgefandi margra blaða og pésa. Las allt, sem hann gat komizt yfir. Auður og glasaglaumur ríkti ann- an daginn, en sultur og neyð hinn. Þátttakandi i leynifélagi til að undirbúa byltingu í Reykjavík á einni nóttu. Dvaldist í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Þýzkalandi og Frakklandi. Týndist í París í tvo sólarhringa í smyglarahverfinu. „Virkilega ógleymanlegt líf“. Hér er aðeins stiklað á örfáum atriðum úr hinu viðburðarríku lífi höfundar. Þetta er 'bók, sem allir þurfa að lsea. Bókaútgáfa Pálma H. Jónssonar AKUREYRI. hafa það á krakkann sinn; en krakki kerl- ingar var dálítil telpa, sem alltaf var hálf- nakin og grátandi og oftastnær skjálfandi af kulda. Anna undi sér vel á Borg; af því kom það auðvitað, að þótt henni hafði tvisvar sinn- um boðist vist og betra kaup, þá hafnaði hún öllum slíkum boðum. Vinnufólkið var nú að hvísla því sín á milli, að það væri engin von, að Anna litla færi frá Borg, því að jsangað myndi hún hafa átt erindi, og vinnukonurnar voru brosandi að tala utan að því við hana, að hún byði jaeim í veizl- una sína, þegar jjar að kæmi; en Anna sagði hlæjandi að þær yrðu víst að bíða eftir þeirri veizlunni, en gat þó ekki að því gert, að hún roðnaði við. Þeirn kom ofboð vel saman, Jóni, syni Þuríðar, og önnu. Það fór oftastnær svo, hvernig sem það atvikaðist, að þegar þau tvö áttu að gjöra eitthvað verk, þá urðu það NÝTT ÚTVARPSBLAÐ 15

x

Nýtt útvarpsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt útvarpsblað
https://timarit.is/publication/824

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.