Nýtt útvarpsblað - 31.10.1948, Page 11

Nýtt útvarpsblað - 31.10.1948, Page 11
Rætt um útvarpið Þegar maður talar við mann um dagskrá ís- lenzka ríkisútvarpsins, er það næsta fátítt að henni sé hrósað. Nú er slíkt engan veginn örugg sönnun þess að þar komi ekkert nýtilegt fram, heldur mun þessi almenna skoðun fremur eiga rót sína að rekja til þess að margir eiga örðugt með að gera sér þess fulla grein, hvað þeir vilja hlusta á og hvað ekki, og hliðra sér hjá að beita heilbrigðri dómgreind í mati sínu á þessu mjög svo þýðingarmikla menningartaeki. í þessum línum mun ég leitast við að gera grein fyrir því, sem ég tel miður fara hjá ráða- mönnum útvarpsins. Verður þó rúmleysis vegna að stikla á stóru, og gagnrýni á einstökum dag- skrárliðum get ég ekki farið út í að þessu sinni. Þó skal, áður en lengra er farið, viðurkennt, að í dagskrá útvarpsins flýtur stundum eitt og ann- að með, sem er allra góðra gjalda vert, en fyrir- ferð þess er svo lítil, á móti öllu hinu, sem öðru máli gegnir um, að útkoman verður allt annað en glæsileg. Það er vægt til orða tekið að segja, að í heild er hið talaða orð í útvarpinu einhliða og harla fjörefnasnautt. Sömu menn ræða þar æ ofan í æ og hafa fyrir löngu gefizt upp við þá viðleitni, að hafa eitthvað að segja. Um marga er það að segja, að hlustendur eru farnir að þekkja þá allt of vel til þess að búast framar við nokkru frá þeim, sem eftirvænting sé í eða full- nægt geti þeirri nýungagirni, sem þorra fólks er í blóð borin. Ráðamenn útvarpsins verða að gera meira að því en verið hefir að leita til fleiri manna um efnisflutning í útvarpinu. Til er margt hæfra manna víðsvegar um landið, sem aðeins skortir tækifæri til þess að segja í hljóðnemann, það sem þeir telja eiga erindi til landsmanna. Og eflir að tök urðu á því að taka talað orð upp á plötur eða stálþráð, er það stórum auðveldara að ná til annarra landsmanna, en þeirra, sem heima eiga í Reykjavík. Ég hefi orðið þess var að þeir eru fleiri en ég, sem eiga bágt með að skilja hið svokallaða „hlut- leysi“ útvarpsins. Nú veit ég, að meðal hlustenda finnast einhverjir, sem fyllast strax vandlætingu og hneikslun ef þeir heyra eitthvað, sem ekki samþýðist lífsskoðun sjálfra þeirra. Hinir eru þó áreiðanlega stórum fleiri, sem þola að heyra haldið fram öðrum skoðunum en þeir hafa sjálfir, og án þess að bíða tjón á sál eða sannfæringu. NÝTT ÚTVARPSBLAÐ Þessi „hlutleysisstefna" virðist hafa heltekið ráðamenn útvarpsins, og hlýtur að leiða til ó- farnaðar með menningargildi útvarpsins ef svo heldur áfram, sem orðið er. Og sannleikurinn er sá, að útvarpið er engan veginn hlutlaus stofnun. Má aðeins benda á að þjóðkirkjan íslenzka hefir t. d. fullkomin forrétt- indi á öllum flutningi í útvarpið, sem heyrir und- ir trúmál. Er þó trúfrelsi viðurkennt á pappírn- um í þessu landi, og samkvæmt því ættu önnur trúarbrögð að hafa þar sömu aðstöðu. Það skal þó tekið fram að slíkt væri engan veginn æski- legt, og væri meir en þörf á að takmarka all- verulega þau forréttindi, sem fulltrúar íslenzku kirkjunnar hafa í útvarpinu. Ekkert er og fjarlægara „hlutleysi" en frétta- flutningur útvarpsins. Erlendar fréttir eru nær eingöngu upptugga úr brezka útvarpinu, og í öllu eftir þeim sjónarmiðum, sem þar ráða, um val og túlkun. Örsjaldan fá einkaskeyti frá Stokkhólmi og Kaupmannahöfn að fljóta með, en þó ekki oftar en svo, að slíkir viðburðir mega helzt teljast til sjaldgæfra náttúruviðburða. Hvað veldur því að ekki er hægt að fá fréttir beint frá fleiri útvarpsstöðvum í Evrópu, sem heyrast hér á landi? Ég er viss um að vinsældir útvarpsins myndu aukast mjög ef slakað yrði verulega á þeim hömlum um efnisval og efnismeðferð, sem nú ríkja þar. Útvarpinu tekst ekki að rækja menn- ingarhlutverk sitt meðan svo er ástatt að flutn- ingsmenn verða að lifa í stöðugum ótta um hirt- ingu ef þeir segja eitthvað, sem ekki samrýmist þeirri túlkun á „hlutleysi” útvarpsins, sem meiri hluti útvarpsráðs viðurkennir sem lög í þeirri stofnun. Sjaldgæft er að heyra í útvarpinu um nýjustu uppfinningar og framfarir á sviði tækni, vísinda, atvinnuhátta, svo aðeins fátt sé nefnt af mörgu. Allt eru þetta þó málefni, sem almenningur lætur sig miklu varða. Og ég vil gera það að tillögu minni að útvarpið taki upp rökræður um stjórn- mál, bókmenntir og aðrar listir, og yrði þar að sjálfsögðu séð fyrir því að allir flokkar og stefn- ur hefðu jafna aðstöðu til sóknar og varnar sín- um málstað. Og að endingu þetta: Ráðamenn útvarpsins mega ekki gleyma því, að útvarpið er fyrst og fremst eign islenzku þjóð- arinnar allrar, en ekki einkastofnun þeirra, sem nú ráða þar húsum. Og ef ekki verður aflétt þeirri dauðu hönd, sem svo mjög háir allri menn- ingarstarfsemi þess nú, er mjög teflt í tvísýnu með framtíð þess. S. R. 11

x

Nýtt útvarpsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt útvarpsblað
https://timarit.is/publication/824

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.