Ingólfur - 07.08.1944, Page 2
2
INGÓLFUR
Palestínuvandamálid
INGOLFUR
Útgef.: Nokkrir ÞjóSveldUrinnar
Ritstjóri:
HALLDÓR JÓNASSON
(símar: 2802 og 3702)
Afgreiðsla í Ingólfshvoli
(símar 2923 og 5951)
— INGÓLFUR kemur út i hverj-
pm mánudegi og aukablöð eftir
þörfum. Missirisverð kr. 12,00, 1
lausasölu 35 aura.
Prentsmiðja Jóns Helgasonar
Stjórnarskráin er
Má ekki verða
flokkamáL
Ýmsir eru farnir að hall-
mæla flokkunum fyrir það,
að „ætla að svíkjast undan
því að endurskoða stjórnar-
skrána“, — eins og það er
orðað.
En — hamingjunni sé lof!
— mættu allir þjóðræknir
menn segja — á meðan flokk
arnir láta stjórnarskrármálið
afskiptalaust.
Því að hér er það þjóðin
sjálf, .sem á að eiga bæði
frumkvæði og alla sókn máls
ins.
otjórnarskrármálið er
ekki flokkanna mál, hvern-
ig sem á það er litið.
Það er í eðli sínu heildar-
mál en ekki partamál eða
flokkamál — og þá heldur
ekki þingmál — allra sízt á
tneðan Alþingi er ekki þjóð-
þing, lieldur aðeins flokka-
samkunda.
Það er stjórnarskráin, eða
réttara sagt þjóðin með
stjórnarskránni, sem á að
ráða skipun Alþingis og setja
þinginu frumreglur, en ekki
þingið sem á að setja sjálfu
sér og þjóðinni þær. — Ef
þjóðin viðurkenndi slíkt,
hefði hún gefið upp sjálf-
stæði sitt. Því að það er ekk-
ert sjálfstæði þótt þjóðinni
sé hóað saman til að sam-
þykkja einhverja stjórnar-
skrá, sem flokkarnir hefðu
ef til vill getað orðið ásáttii*
um, með makki og hrossa-
kaupum. Þetta sannar hin
núgildandi lýðveldisstjórnar-
skrá bezt.
Það er frumkvæðið, það
er sóknin og það er fram-
kvæmdin, sem gefur valdið
og skapar tökin í hvaða máli
sem er.
Og þetta frumkvæði, þessa
sókn og framkvæmd verður
þjóðin að tryggja sér í sjálfu
aðal frelsismáli sínu, sem er
stjórnarskrármálið.
Því að það er stjórnarskrá-
in sem kveður á um það hver
á landið og ríkisbúið og hver
á að hafa aðalumsjónina með
stjórn þess og kalla stjórn-
endurna til ábyrgðar.
Því aðeins að þjóðin hafi
tryggt sjálfri sér þetta vald,
verður sagt að ríkisvaldið sé
opinber eign eða þjóðareign.
1 öllum öðrum tilfellum er
ríkið í einkaeign og í einka-
rekstri. Enda hefur svo ver-
ið undir flokkræðinu.
★
Aðalástæðan til þess að
flokkarnir hefjast ekki
handa með að endurskoða
stjórnarskrána, er vitanlega
sú, að þeir geta varla bætt
liana sér í hag frá því sem
nú er, því að eins og stjórn-
arskráin er nú orðin eftir
meðferð flokkanna á henni
fyrr og síðar, er hún afsals-
bréf á ríkisstofnuninni til
handa þeim sjálfum. Og hafa
þeir reyndar fengið sam-
þykki þjóðarinnar fyrir
þessu, en auðvitað með svik-
um.
Það sem gerir flokkunum
þó erfitt að standa fast á þess
um ránsfeng sínum, eru erf-
iðleikarnir á hvoru sem
reynt væri: — að skipta
honum upp eða njóta lians
sameiginlega.
Enda þótt það mundi
valda ýmsum erfiðleikum og
vekja upp ný stríðsatriði
milli flokkanna að fara að
lireyfa við stjórnarskrármál-
inu, þá má búast við því að
einhverjir geri það samt, af
tveimur ástæðum:
í fyrsta lagi til að reyna
að standa á því í lengstu lög
að frumkvæðið í öllum þjóð-
málum eigi að vera hjá flokk
unum en ekki hjá þjóðinni.
— I öðru lagi er líklegt, að
einhverjum flokki lítistvæn-
legt að afla sér vinsælda hjá
almenningi á því, að fitja
upp á endurbótum á stjórn-
arskránni, er gangi í þjóð-
ræðilega átt. Er Alþýðuflokk
urinn einna líklegastur til að
reyna þetta, enda hefur
liann nú þegar hreyft við
málinu.
En hver sem tilgangurinn
er með því að leiða stjórn-
arskrármálið inn í þingið, þá
er það hættulegt fyrir frum-
kvæði þjóðarinnar. Og verð-
ur hún að láta sem hún
hvorki heyri né sjái neinar
slíkar tilraunir. — Jafnvel í
því ítrasta tilfelli, að þing-
ið samþykkti stjórnarskrá,
sem liti í alla staði vel út,
þá væri málið þó eflaust
þjóðinni tapað með því að
frumkvæði þess, öll með-
ferð og framkvæmd væri
henni þá úr greipum gengin.
Frh. af 1. síðu.
abar mótmæla öllum innflutn-
ingi fram vfir það, sem orðið
er, en lofa liins vegar að sjá
í friði þær 550.000, sem þegar
eru komnar. — Hvít-bók Breta,
nýleg, akveður hins vegar, að
1) íbúahlutföllin skuli vera:
helmingi fleiri Arabar en Gyð-
ingar; 2) jarðakaup Gyðinga
skuli takmörkuð við ákveðin
svæði; 3) enginn innflutningur
eftir marsmánuð þ. á.; þó nær
þetta ákvæði ekki til 33000,
sem áður hefut verið ákveðið
um; 4) eftir áratug verði öll
atriði málsins og heild þess end
urskoðuð með sjálfstjórn fyrir
augum.
Arabarnir eru í bili ánægðir
með þetta. Gyðingar gersam-
lega andvígir, þó að í bili sé
nokkurs konar vopnahlé vegna
styrjaldarinnar. Eins og er,
stendur Aröbum stuggur af Gyð
ingum, sem ekki að eins hafa
alþjóðlegt blaðaauðvald, heldur
hafa þeir einnig smyglað inn í
landið furðumiklu af rifflum,
vélbyssum og sprengivörpum
og komið heilmikilli skotfæra-
framleiðslu á laggirnar. Arabar
vantar hins vegar bæði skipu-
lag, vígbúnað og talsmenn.
Palestínu-Arabar hlakka til
sjálfstjórnar að óbreyttum íbúa
hlutföllum, og jieir mundu líka
fagna þátttöku í arabisku ríkja-
sambandi. Gyðingar mega aft-
ur á móti ekki til sjálfstjórnar
Palestínu bugsa, að óbreyttum
eða lítt breyttum íbúahlutföll-
um. „Með því yrðum við bér
sem annars stað'ar“, segja þeir,
„minniblutaþjóð ineð vanmeta-
kennd“. Hlutföllin eru nú
1.200.000 Arabar móti 550.000
Gyðingum. Gyðingar mundu
vilja sæta nýlendustjórn í
Brezka ríkinu fyrst um sinn.
★
Gyðingar bafa veitt miklu
fjármagni inn í Palestínu. Jerú-
salem er að bálfu borg með nú-
tímasniði. Tel Aviv, ný borg
við Miðjarðarhafið, hefur
200.000 íbúa og merkilegar iðn
aðargreinir eins og demanta-
slípun og lyfjagerð. Heilsufar
íbúa landsins befur stórum
batnað, síðan Gyðingar komu
sér vel fyrir. Við Hadassab-
spítala starfa beimsfrægir skurð
læknar — auðvitað flóttamenn.
Nýrækt Gyðinga nemur vita-
skuld þúsundum bektara. Þeir
nota mjög samvinnubú. I norð-
urbluta landsins þurrka jieir
upp mýrar, eyða moskitomýi og
útrýma mýraköldu.
I Jordan-dal sá ég furðulega
bluti. Jarðvegurinn þar er 17%
salt og steindauður.*) Hópur
ungra Gyðinga, tiginna ætta,
starfar þar að landþvotti, jarð-
rækt og kalívinnslu. Kalívinnsl-
an var þar fyrir, en landnámið
bafa þeir stofnað sjálfir. Þeir
veita Jordan á saltlendið og láta
vatnið síga niður. Er jieir liafa
þvegið sama blettinn 80 sinn-
um á 8 mánuðum, fá þeir af
honum tvöfalda tómatuppskeru
á við það, sem annars staðar
)* Hér mun átt við þann
hluta dalsins, sem næstur er
Dauða hafinu, því ofar er dal-
urinn mjög frjósamur.
gerist. Loflbitinn kemst þarna
upp í 56° C.
Nú orðið fær almennur verka
maður 40 pjastra á dag, en það
jafngildir 1,60 dollar. Faglærð-
ir verkamenn eins og múrarar
t. d. komast upp í 4 dollara.
Síðustu 12 árin liafa flutt inn
í landið jafnmargir Arabar og
öllum Gyðingainnflutninginuin
'nemur, beinlínis vegna launa-
kjaranna og lífsskilyrðanna. I
Egyptalandi fær abnennur
verkamaður 10 pjastra á dag.
★
Það var ein af aðalröksemd-
um Síónista — en jiannig nefn-
ast þeir Gyðingar, sem barist
liafa fyrir því, að Palestína yrði
fengin Gyðingum —, að þjóð-
in þyrfti að fá tök á því að
verða landbúnaðarjijóð. Hún
finndi ekki sjálfa sig fyrr. Af
hverjum 100 Gyðingum Palest-
ínu eru þó ekki nema 23 sveita
menn. 95% af olíuviðarlundun-
um eiga Arabar. Þeir eiga
215.000 nautgripi á móti 28.000,
sem Gyðingar eiga, 225.000
kindur á móti 20.000 í eigu Gyð
inga; öll svínin og alla úlfald-
ana. — 1923 liéldu Síonistar
því fram, að Gyðinganýlendan
yrði brátt sjálfbjarga, en við-
urkenna nú, að hana vanti 40%
til hallalauss reksturs; Bretar
segja 60%. Frá Bandaríkjunum
eru árlega send 5l/2 millj. doll-
ara til nýlendunnar.
Að því er það snertir, hvort
landið gæti tekið við 4 millj.
innflytjenda Gyðinga alls, j)á
má benda á að með Jiví móti
yrði landið þéttbyggðara en
Belgía, þéttbýlasta land Norð-
urálfunnar, land, er stendur
geysibátt í iðnaðarþróun. Þess
verður þó að geta, að niður-
staðan af opinberri rannsókn
Bandaríkjanna á málefninu, er
sú, að landið geti borið þenna
mannf jölda, með fullri nýtingu
áveitu- og raforkuskilyrða. Hins
vegar verður að gæta, að sem
iðnaðarland mundi Gyðinga-
land illa njóta sín á fjandsam-
legu umbverfi Múbameðstrúar-
landa. En utan jiess svæðis gæti
iðnaður Gyðingalands ekki
keppt á friðartímum nema í
einstaka miniii liáttar sérgrein-
um, í bezta falli. Það er m. a.
s. mjög vafasamt, að nýinnflutt-
ir sérgreinarmenn eins og dem-
antaslípararnir úr Amsterdam
verði stundinni lengur í Gyð-
ingalandi, þegar Holland opn-
ast þeim af nýju. Svo er um
liina tjekknesku innflytjendur
o. fl. — jafnvel fjöldi þýzkra
gyðinga ráðgerir að snúa til
Þýzkalands aftur. Satt að segja
er töluverður uggur í Síonist-
um um, að þegar tími Gyðinga-
ofsóknanna líði bjá, við lok
þessarar styrjaldar, verði inn-
flutningur litlu eða engu meiri
en útflutningur, Jió að allt yrði
gefið frjálst.
Það er bent á, að engar fram-
farir bafi verið í landinu, þang-
að til Gyðingar koniu. En því
er svarað þannig, að landið bafi
til skamms tíma verið undir
tyrkneskri stjórn, er lialdið liafi
öllu niðri.
Hvað sem öðru líður, þá verð
ur að gæta þess, að Palestína
er frá viðskiftasjónarmiði bluti
af Vestur-Asíu og mun visna,
sem rótslitinn kvistur, verði
j)að afgirt af tollmúrum eða
öðjpm þvílíkum ráðstöfunuin
fjandsamlegra nágrannaríkja.
Bandaríkin liafa bafist lianda
um uppsetningu olíuleiðslu frá
austurhlutum Vestur-Asíu til
Palestínustranda. Leiðsla þessi
mun Hggja á löngu svæði innan
landamæra Saudi-Arabíu. Gyð-
ingar óttast, að það verði til
j)ess, að Bandaríkin verði lin-
ari í sókninni þeirra vegna.
Þau eigi þá orðið svo mikið
undir lbn Saud og öðrum þar-
lendum höfðingjum.
En svo leysist þetta líklega
allt sjálfkrafa — af innflytj-
endaskorti, þegar Gyðingaof-
sóknunum linnir.
HllinilllllSIIIIIIIIIIBIIIIIIIIIIIISIIIIIIIIIIIIISIIIIIIIIIIIIIlllllllllR
Til prófessors
Richards Beck
K.ve'öi'S á samsæti Austfir&inga miSvikud.
26. júlí 1944 í Reykjavík.
Heill me<Ír oss inn holli
höldr á sumarkveldi
sólmána'Sar sœlu
seztur, gestr að vestan.
Fylgi þér heöan fólgin
farheill lands og marar.
Heilsan flyt vora frjálsa
framdum vi’fir sœ handan.
Lárus Sigurjónsson
skáld og guðfræðikandidat, höfundur ofanskráðrar
vísu, verður sjötugur mánudaginn 14. þ. m. Lárus var
fyrsli ritstjóri „Unga Islands“, en fór þá til Ameríku og
fluttist hingað aftur í fyrrahaust. Þessa ágæta manns
verður nánar getið í næsta blaði.