Austurland - 16.02.1994, Síða 1
Gólfteppatilboð:
.... Dreglar, mottur,
teppi, dúkar,
flísar og parket.
VERSLUNIN VÍK
HAFNARBRAUT 3 - S 71900
Neskaupstadur
Kaupfélaginu og Sambandinu
gert að greiða Lífeyrissjóði Austurlands
um tuttugu milljónir
Þórhallur Sófusson, Sveinn Benediktsson og Gísli Gylfason um
borð í Barða. Ljósm. EG
í síðustu viku féll dómur í
Héraðsdómi Reyk javíkur í máli
Lífeyrissjóðs Austurlands gegn
Kaupfélaginu Fram og Sam-
bandi íslenskra Samvinnufélaga
og er þessum aðilum gert að
greiða Lífeyrissjóði Austur-
lands kr. 15.903.599 með drátt-
arvöxtum samkvæmt 111. kafla
vaxtalaga frá 16. júní 1992 til
greiðsludags og kr. 600.000 í
málskostnað auk virðisauka-
skatts.
Málavextir eru þeir að Lífeyr-
issjóðurinn gerir kröfuna vegna
18 skuldabréfa öllum útgefnum
af Ness hf.. sem nú er gjald-
þrota. á hendur Kaupfélaginu
og SÍS en skuldabréfin voru
framseld af Kaupfélaginu og
árituð af SÍS um sjálfskuldar-
ábyrgð.
Bréfin átti að greiða á 6 árum
með fyrstu gjalddögum 1989
með veði í fasteigninni Egils-
braut 4, en þau gjaldféllu án
sérstakrar uppsagnar á fyrstu
gjalddögum. Innheimtuaðgerð-
ir báru engan árangur og á nauð-
ungaruppboði var eignin seld
Kaupfélaginu á 6 milljónir
króna. Á vanefndauppboði
keypti Lífeyrissjóðurinn húsið á
rúmlega þrjár milljónir króna.
Kaupfélagið Fram hélt því
fram að kröfur Lífeyrissjóðsins
féllu undir nauðarsamninginn
sem gerður var 30. okt. 1989 en
því var hafnað. Þá telur Kaupfé-
lagið í greinagerð að það hafi
ofgreitt Lífeyrissjóðnum rúm-
lega ellefu hundruð þúsund en
sé tekið tillit til greiðslu bús- og
lögveðshafa hafi skuldin verið
rúmlega tvö hundruð þúsund í
júli 1992. Arngrímur ísberghér-
aðsdómari kvað upp dóminn.
Að sögn Friðgeirs Guðjóns-
sonar hefur stjórn kaupfélagsins
tekið ákvörðun um að áfría mál-
inu til Hæstaréttar. Friðgeir seg-
ir að sér finnist dómurinn rangur
og hann telur siðlaust að kröf-
urnar falli ekki undir nauða-
samninginn sem gerður var.
Austfirðir
Loðnufrystingin ævintýri líkust
Kokkurinn á Barða var að baka lummur ofaní karlana sem stóðu
pungsveittir við frystinguna. Ljósm. EG
Það er líkast sem austfirðing- dagana og sagt er að Yen-
ar séu haldnir loðnuæði þessa glampar séu í augum forsvars-
manna þeirra fyrirtækja sem
mest frysta af loðnu þessa dag-
ana. Reikna má með að meðal-
verð á kílói af frystri loðnu sé
um 105 krónur, svo það er mikið
í húfi. Mannafli frystihúsanna
hefur margfaldast og þar af leið-
andi fækkað verulega á atvinnu-
leysisskrám víða.
í Neskaupstað eru nú tvö fljót-
andi frystihús. Frysting hófst um
borð í Blængi á mánudaginn en
þá höfðu verið fryst um 100 tonn
um borð í Barða eða rúmlega 20
tonn á sólarhring. Um borð í
Blængi voru fryst 30 tonn fyrsta
sólarhringinn. Um borð í báðum
skipunum ganga áhafnirnar
vaktir. Alls var búið að frysta um
650 tonn hjá Síldarvinnslunni á
mánudaginn.
Harðfrystihús Eskifjarðar
leigði aðstöðu Þórs hf. til loðnu-
frystingar. Þar er afkastagetan
unr 20 tonn á sólarhring og 40 -
45 tonn í frystihúsinu. Á
Eskifirði var búið að frysta á
mánudaginn um 700 tonn.
Á Seyðisfirði er fryst hjá
Dvergasteini og Strandarsíld og
hafa þar verið fryst um 900 tonn.
Á milli 70 og 80 manns ganga
vaxtir hjá Dvergasteini. Á
Reyðarfirði var búið að frysta
um 300 tonn á mánudaginn.
Loðnan hefur verið nokkuð
misjöfn eftir veiðisvæðum.
Hrognafylling er 14.5 - 16% og
hafa verið um 50 hrygnur í kílói.
Sjómenn segja mikla loðnu við
Hvalbak en aðalgangan er kom-
in vestur fyrir Ingólfshöfða.
Nokkur norsk skip og græn-
lenska loðnuskipið Anrmasat
eru á veiðisvæðinu við Hvalbak.
Norsku skipin eru í stærri kant-
inum eða um 2000 lestir hvert
og eru þau flest búin að fylla sig.