Austurland


Austurland - 16.02.1994, Blaðsíða 6

Austurland - 16.02.1994, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR, 16. FEBRÚAR 1994. Neskaupstaður Af vettvangi bæjarstjórnar Hinn S. febrúar sl. var haklinn fundur í bæjarstjórn Neskaupstaðar og verður hér getið um nokkuð af því senr rætt var og samþykkt á fundin- um: * Fyrri umra'ða um fjárhagsáa'tlanir ba'jarsjóðs og bæjarstofnana fór fram á fundinum. Síðari urnræða um fjár- hagsáætlanimar fer fram á fundi í marsmánuöi. * A fundinum kom franr að bæjaráð og fulltrúar fvrirtækja sem sinna sam- göngumálum hafa haldið fund með fuiltrúum Vegagerðar ríkisins. Á fundi þessurn var rætt um snjómokst- ur á Oddsskarði. hálkueyðingu og framkvæmdir við Oddsskarðsveg næsta surnar. * Bæjarfulltrúar ræddu nokkuð gang sameiningarviðræðna við fulltrúa Norðfjarðarhrepps. Skýrt kom fram að viðræðumar eru á lokastigi og hafa gengið vel. Má gera ráð fyrir að sveit- arstjómimar gangi endanlega frá sam- einingu sveitarfélaganna á næstu dögum. Miðað er við að sveitarfélögin sameinist formlega 11. júní nk. eða hálfum mánuði eftir kosningar en kosið verði til sveitarstjómar í sameinuðu nýju sveitarfélagi 28. maí nk. * Bæjarstjóm samþykkti reglur um niðurfellingu fasteignaskatts á íbúð- arhúsnæði eliilifevrisþega og öryikja. * Samþykkt var að skipa sérstaka nefnd í tilefni að ári fjölskyldunnar og muni eftirtaldir aðilar skipa full- trúa í nefndina: Félagsmálaráð. For- eldrafélag gmnnskólans, Foreldrafé- lag leikskólans, Frjáls félagasamtök, Nesskóli. Verkmenntaskóli Austur- lands, Tómstundaráð og íþróttafélag- ið Próttur. * Fvrri umræða um nýja samþykkt um opnunartíma verslana fór fram á fundinum. Síðari umræða fer fram á næsta bæjarstjórnarfundi. * Nokkuð var rætt um þann mögu- leika að nýtt sveitarfélag við Norð- fjörð verði tilnefnt sem reynslusveit- arfélag en miklar líkur eru á að svo verði. * Heimild var veitt til að nýta skemmuna að Naustahvammi 19 (skreiðarskemmuna) til geymslu á loðnu. * Á fundinum var upplýst að kostn- aður við að Ijúka hinu nýja íþrótta- húsi er áætlaður 70 milljónir króna. Gerir þessi kostnaðaráætlun ráð fyrir að húsið kosti mun minna en áður var áætlað. * Þess hefur verið farið á leit að bæjarsjóður Neskaupstaðar taki þátt í kostnaði við uppsetningu veðurat- hugunarstöðvar í Seley. Mál þetta er í athugun. Félag eldri borgara á Norðfirði hélt fyrir skömmu þorrablót í fé- lagsheimili sínu í Sigfúsarhúsinu. Um 70 manns sóttu blótið sem tókst mjög vel. Meðfylgjandi myndir tók Guðrún Sigurjónsdóttir á blótinu. *».« J J ^ J J— — J J- \J Lj i Hagstæðustu sumar leyfisfargj öldin í suniar, eru fyrír félagsmenn ASI Frá og með 13. janúar til 9. maí, verða um 5000 sæti seld á sérstöku afsláttargjaldi til 10 áfanga- staða Flugleiða á tímabilinu maí til september. Lægst er verðið ef miðar eru keyptir fyrir 9. mars nk. Gildistími farmiða er frá einni viku upp í einn mánuð. Fargjöldin hækka ef farseðillinn er keyptur eftir 9. mars. Fargjöldin gilda fyrir félagsmenn og fjölskyldu þeirra (þ. e. þá sem halda heimili saman) . Ef áhugi er á að kaupa viðbótarþjónustu, svo sem hótel, bílaleigubfl, eða annað, þá greiðist þjónustugjald kr. 1000.-. Fargjöld þessi eru eingöngu seld félagsmönnum í aðildarfélögunum hjá umboðsmönnum Sam- vinnuferða - Landsýnar um land allt. Simi/innulerlir Linisin Dæmi um staðgreiðsiuverð fyrir einn fullorðinn án flugvallarskatts og forfallatryggingar, ef far- seðill er keuptur fyrir 9. mars nk.: Kaupmannahöfn Oslo Glasgow Stokkhólmur London Luxemborg Amsterdam París Baltimore Hamborg 18.620,- 19.655. - 15.675.- 23.655, - 20.235.- 20.900.- 20.615.- 23.655,- 36.290.- 20.615.- Flugvallarskattur á íslandi er kr. 1.310 (kr. 655 (yrir börn) Forfallatrygginger kr.600 fyrir börn en kr. 1.200fyrirfulloröna (fullt verö) Sala farmiða er þegar hafin! Allar nánari upplýsingar er að fá í síma 91-69-10-10 Verkalýðsfélag Norðfirðinga

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.