Austurland - 16.02.1994, Side 4
4
MIÐVIKUDAGUR, 16. FEBRÚAR 1994.
Neskaupstaður/Norðfjarðarhreppur
Sameiningin taki gildi 11. júní
Nefnd um sameiningu Nes-
kaupstaðar og Norðfjarðar-
hrepps hefur samþykkt fyrir sitt
leyti að sameining þessara
byggðarlaga taki gildi 11. júní
nk. en kosning sveitarstjórnar í
hinu sameinaða byggðarlagi fari
fram 28. maí nk. Það verða níu
bæjarfulltrúar í hinni nýju
bæjarstjórn. sami fjöldi oger nú
í bæjarstjórn Neskaupstaðar.
Nafn hins nýja sveitarfélags
verði Neskaupstaður og taki yfir
allt það land sem nú tilheyrir
báðum sveitarfélögunum. Eign-
ir. skuldir. réttindi og skyldur
sem tilheyra nú Neskaupstað og
Norðfjarðarhreppi falla til hins
nýja sveitarfélags og skulu skjöl
og bókhaldsgögn beggja sveitar-
félaganna afhent hinu nýja
sveitarfélagi til varðveislu.
Kirkjuniel verði með sama hætti
og áður og stefnt verði að gerð
útivistarsvæðis í landi Kirkju-
böls. Þá er tekið fram á minnis-
blaðinu að góðar samgöngur
verði tryggðar að öðru jöfnu á
sýsluvegum innan sveitarfélags-
ins.
Nú á einungis eftir að leggja
samninginn og svonefnt minn-
isblað fyrir bæjarstjórn Nes-
kaupstaðar og hreppsnefnd
Norðfjarðarhrepps til endan-
legrar staðfestingar og verður
það væntanlega gert innan svo
mjög langs tíma.
Á minnisblaði nefndarinnar
kemur fram m. a. að skólinn á
Kirkjumel skuli starfa áfram í
óbreyttri mynd þar til í byrjun
skólaárs 1995 - 1996, en þá sam-
einist skólinn Nesskóla. Stefnt
skuli að áframhaldandi kennslu
að Kirkjumel. Lagt ertil að kos-
in verði sérstök nefnd sem fjalli
um málefni landbúnaðar í
Norðfjarðarsveit. Aðgangur
félagasamtaka í Norðfjarðar-
sveit að samkomuhúsinu að
Guðmundur Stefánsson íbygginn á svip við loðnufrystingu um borð
í Blœngi. Ljósm. AB
Stofnun samtaka um sorg
og sorgarviðbrögð
Dagskrá 18. - 20. febrúar
Helgina 18.-20. febrúar mun séra Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur koma til Neskaupstaðar
til að flytja erindi og halda námskeið um sorg og sorgarviðbrögð. Sunnudaginn 20. febrúar
verður haldinn stofnfundur. Fundirnir ognámskeiðin verða ísafnaðarheimili Norðfjarðarkirkju.
Dagskrá helgarinnar verður sem hér segir:
18. feb. Föstudagur:
kl. 2000. Almennur fundur um sorg og sorgarviðbrögð. Séra Bragi Skúlason fiytur erindi og
svarar fyrirspurnum. Aðgangur ókeypis. Allir velkomnir.
19. feb. Laugardagur:
kl. 13,X) - 19,x). Almennt námskeið um sorg og sorgarviðbrögð. Þátttökugjald 1000 kr. Þó
ekki meira en 1500 kr. fyrir fjölskyldur. (í þetta námskeið þarf að skrá sig á föstudag).
20. feb. Sunnudagur:
kl. 09,XI - 13,X). Framhaldsnámskeið um sorg og sorgarviðbrögð, sérstaklega ætlað þeim sem
misst hafa náinn aðstandanda. Þátttökugjald 500 kr. Þó ekki meira en 1000 fyrir fjölskyldur.
(í þetta námskeið þarf að skrá sig á föstudag).
kl. 16,x) Stofnfundur samtaka um sorg og sorgarviðbrögð.
Venjuleg stofnfundarstörf.
Önnur mál.
Þátttöku í námskeiðunum á laugardag og sunnudag þarf aðtilkynna á fundinum á föstudag,
eða hjá Þorgrími Daníelssyni í síma71127 og 71766 eða Þóru Lind Bjarkadóttur í síma 71668.
Undirbúningshópurinn
Páll Jónasson í miðju. Ljósm. AB
Seyðisfjörður
Páll til Lillehammer
Skíðamaðurinn snjalli Páll
Jónasson frá Seyðisfirði er með-
an fimm íslenskra ungmenna
sem boðið var á Olympiuleik-
ana í Lillehammer. Ungmennin
eru úti í boði norsku Olympiu-
nefndarinnar til að fylgjast með
opnunarhátíðinni og skíða-
göngu og sér nefndin um uppi-
hald og ferðir í Noregi. Þau
verða hins vegar að koma sér
sjálf út og fékkst til þess styrkur
frá menntamálaráðuneytinu
upp á tíu þúsund krónur á hvert
og síðan koma væntanlega til
framlög frá öðrum aðilum.
Skíðaráð UÍA valdi Pál til
fararinnar og er hann verðugur
fulltrúi Austfirðinga í Lille-
hammer.
Norðfjörður
Hestaleiga og
reiðkennsla
í sumar ætlar Vilberg Einars-
son að reka hestaleigu og reið-
skóla í Skálateigi. Þetta er m. a.
liður í fjölbreyttari þjónustu við
ferðamenn sem leggja leið sína
til Norðfjarðar og með reið-
skólanum er sérstaklega hugsað
til barna og unglinga.
Vilberg sagði í samtali við
Austurland að hann yrði með 8
- 10 hesta til Ieigu en það hefði
verið erfitt að fá þæga og rólega
hesta keypta.
Til þessa hefur Hestamanna-
félagið Blær verðið með tíma-
bundin reiðnámskeið fyrir börn
og unglinga en með tilkomu
hestaleigunnar í Skálateigi
verður slík kennsla umfangs-
meiri.
Hestaleigur eru víða um Aust-
urland og eru þær mikið notaðar
af bæði innlendum og erlendum
ferðamönnum. Hestaleigan í
Skálateigi er sennilega sú eina
sinnar tegundar hér á fjörðunum
og er kærkomin nýung í ferða-
mannaþjónustuna hér.
GÓÐ HÚSGÖGN - ÖRUGG KAUP
Við bjóðum:
gott hjónarúm m/springdýnum kr. 68.300 stgr.
Jafnar greiðslur m/vöxtum kr. 5000 á mánuði
Leðursófasett og hornsófar í úrvali, margir litir
Verð á góðunuhornsófa kr. 137.700 stgr.
Jafnar greiðslur kr. 6000 á mánuði með vöxtum
tfólmar hf
HÚSGAGNAVERSLUN
730 REYÐARFIRÐI - SÍMI 97-41170
Opið laugard.
kl. 13 - 17
VERIÐ VELKOMIN