Austurland - 16.02.1994, Page 8
Bifreiðin aflient Sturlaugi og fjölskyldu hans.
Neskaupstaöur
Og nú á Stulli bíl!
Takmarkinu er náð. Á föstu-
daginn kom til Neskaupstaðar
bifreið sú sem keypt var að veru-
legu leyti fyrir það fé sem safn-
aðist í þeirri söfnun sem Austur-
land stóð fyrir. Bifreiðin var
formlega afhent Sturlaugi og
foreldrum hans á laugardaginn.
Endanlegt uppgjör söfnun-
innar liggur ekki fyrir en áætla
má að safnast hafi um 770.000
krónur. Flest framlög bárust frá
einstaklingum í austfirðinga-
fjórðungi en nokkur félaga-
samtök og fyrirtæki lögðu
Síðsumar 1992 keypti útgerð-
in Otto WathneóOOtonnafrysti-
togara frá Noregi. Þetta var
tveggja ára gamalt skip byggt á
Spáni. Ætlun eigenda var að
selja eldra skip sitt, en fyrirhug-
uð sala á því fór út um þúfur.
Þegar nú eldra skipið ekki seld-
ist vantaði úreldingu fyrir það
nýja og fékkst það því ekki skráð
hérlendis. Undanþága fékkst þó
til nokkurra mánaða en að henni
liðinni fékkst hún ekki framlengt.
Skipið hefur því sfðan stundað
veiðar utan fiskveiðilandhelgi
með misjöfnum árangri. Nú hafa
söfnuninni lið. Þá bárust fram-
lög frá Borgarnesi og Starfs-
menn Nýju Sendibílastöðvar-
innar í Reykjavík sendu dágóða
upphæð.
Stærsta framlagið kemur frá
bæjarsjóði Neskaupstaðar en
auk þess lögðu tvö önnur sveit-
arfélög söfnuninni lið. En það
er ekki allt upp talið. Umboð
Tryggingamiðstöðvarinnar hf. í
Neskaupstað fékk felld niður ið-
gjöld af tryggingum bifreiðar-
innar. Síldarvinnslan hf. ætlar
að annast viðhald bifreiðarinnar
bæði skipin verið seld, það eldra
úr landi, en það nýrra til Stálskipa
í Hafnarfirði.
Að sögn Trausta Magnússon-
ar útgerðarmanns er fjárhags-
legt bolmagn til annarra úrræða
ekki fyrir hendi. Um borð í Otto
Wathne sem nú er á veiðum á
Nýfundnalandsmiðum er 20
manna áhöfn, flestir Seyð-
firðingar. Þeim var sagt upp á
sl. ári og eru því nú skipsrúm-
lausir í næsta mánuði.
Hér er væntanlega enn ein af-
leiðing háskalegrar fiskveiði-
stefnu í landinu. JJ
endurgjaldslaust, að ákveðinni
upphæð, í tvö ár og Eimskip
flutti bílinn endurgjaldslaust
hingað austur. Þá var notið að-
stoðar Rauða krossins við ýmsa
snúninga bæði hér heima og fyr-
ir sunnan. Vert er að nefna það
að bifreiðin fékkst á mjög hag-
stæðu verði og þökk sé fyrri eig-
anda.
Bifreiðin kemur til með að
breyta miklu fyrir Sturlaug og
fjölskyldu hans, á því er enginn
vafi. Enn hefur ekki verið sett
lyfta í bílinn og er jafnvel óvíst
hvort það verður gert þar sem
hún tekur mikið pláss og Stur-
laugur getur auðveldlega ekið á
rafmagnshjólastólnum upp í
bílinn, á skábrautum.
Þetta góða gengi leiðir hug-
ann að því hverju samtakamátt-
urinn fær áorkað, við ættum
kannski oftar hér í fjórðungnum
að taka slík mál í okkar hendur,
því vissulega er þörfin víða.
Eins og fyrr sagði lögðust
margir á eitt um að koma þessu
máli í höfn. Ég vil þakka þeim
öllum en þó sérstaklega félags-
málastjóranum í Neskaupstað
sem lagði ómæla vinnu í ýmis-
legt sem að framkvæmdinni
kom. Hér með er öllum þeim
sem lögðu fé inn á reikning 1510
í Sparisjóði Norðfjarðar færðar
alúðarþakkir. Gott mál er í
höfn. EG
Seyðisfjörður
Skip og veiðiheimildir hverfa
i
Neskaupstað, 16. febrúar 1994. Verð kr. 140.
Reyðarfjörður
Týnda teskeiðin
í Félagslundi
Leikfélag Reyðarfjarðar
frumsýnir á föstudaginn leikrit-
ið Týnda teskeiðin eftir Kjartan
Ragnarsson í leikstjórn Jóns
Júlíussonar. Með helstu aðal-
hlutverk í leikritinu fara Ingunn
Indriðadóttir, Margrét Reynis-
dóttir, Einar Bogi Sigurðsson og
Björgvin Hjörleifsson.
Að sögn Gíslunnar Jóhanns-
dóttur formanns leikfélagsins
eru átta ár síðan leikfélagið setti
síðast upp leikrit en félagið hef-
ur þó haft nokkra starfsemi á
þessu tímabili. Sett hafa verið
upp smáverk í samvinnu við
grunnskóla staðarins, námskeið
hefur verið haldið í leikrænni
tjáningu og skáldakynning hef-
ur verið á vegum leikfélagsins.
Týnda teskeiðin verður að-
eins sýnd í Félagslundi þar sem
leiktjöld eru þannig að erfitt er
með flutning. Að sögn Gíslunn-
ar verður sýnt svo lengi sem fólk
kemur á sýningarnar. í tilefni
sýningarinnar verða svonefnd
„Leikhúskvöld" á Valkyrju-
kránni þar sem boðið verður
upp á glæsilegan kvöldverð og
leiksýninguna. Tilvalin upplyft-
ing frá loðnunni!
Óttar Guðmundsson, Einar Bogi og Margrét íhlutverkum sínum.
Neskaupstaður
Shellskálinn verðlaunaður
Shellskálinn sigraði annað
árið í röð í keppni um bestu
uppstillinguna á kóki í söluskál-
um Shell. Að þessu sinni var
byggður kastali að mestu úr
tveggja lítra kókflöskum og má
ætla að um 700 lítrar af kóki hafi
verið í kastalanum. Það eru
Stella Axelsdóttir og ívar Sæ-
mundsson sem reka Shellskál-
ann og óskar Austurland þeim
til hamingju með sigurinn. Verðlaunakastalinn.
FAGÞJÓNUSTA í FJÓRA ÁRATUGI (ég)
Látið fagmann vinna verkið - Ábyrgð á allri vinnu