Austurland - 28.05.1998, Síða 5
FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1998
5
Starfið stendur og fellur
með þátttöku unglingannaí
Félagsmiðstöðinni Atom, í Neskaupstað var lokað föstudaginn NýlIIlgar:
15. maí eftir þróttmikið vetrarstarf. Austurland hitti Hlyn
Eiríksson, umsjónarmann Atom að máli á dögunum og spurði
liann um starfið í vetur og hvað framtíðin bœri í skauti sér.
Hlynur Eiríksson fyrir framan ónýtt pláss í nýmálaða
félagsmiðstöðina Atom. Ljósm. as
Vetrarstarfið:
Starfið hefur verið mjög blóm-
legt og krakkamir hafa verið
duglegir að sækja það sem boðið
hefur verið upp á enda höfum
við reynt að láta þau ráða sem
mestu um það sem verið hefur
gert. Fyrir utan hefðbundið starf
emm við alltaf að bæta aðstöð-
una, t.d. var smíðað glæsilegt
diskóbúr og tækjakostur þess
endumýjaður. Þessi nýji tækja-
kostur bíður upp á mjög
skemmtilega möguleika, t.d. að
krakkarnir geta skeytt saman
lögum og breytt þeim.
Á næstunni:
Við ætlum að enda vetrarstarfið
með því að gera eitthvað
skemmtilegt í lok mánaðarins,
einhverskonar lokahóf vetrarins.
Farið verður í heimsókn til
Seyðisfjarðar og skemmt sér þar
með krökkunum. Þar verður m.a.
farið á ball þar sem hljómsveit-
imar Quarasi og Steiner spila.
Meira samstarf í
kjölfar sameiningar
sveitarfélaga:
Við höfum reynt að efla sam-
starfið milli félagsmiðstöðvanna
hér í kringum okkur undanfarið.
Þetta á ekki bara við um félags-
miðstöðvar innan nýs sveitarfél-
ags, heldur em t.d. Egilsstaðir
inn í því ásamt fleirum. Við höf-
um t.d. heimsótt áðumefndar fél-
agsmiðstöðvar og fengið þær í
heimsókn til okkar.
Samstarf í framtíðinni gæti
hinsvegar orðið í víðara sam-
hengi. Ég sé t.d. fyrir mér sam-
starf um námskeið, fræðslufyrir-
lestra og þessháttar. Þannig
fengjum við fleiri einstaklinga á
þessar samkomur og dreifum
kostnaði.
Það er þá helst að verið er að
skoða möguleika á sumarstafi. Á
dögunum fór ég á mjög gagnlegt
námskeið sem bar yfirskriftina
„Utivistartími unglinga og frí-
tími ungs fólks" sem haldið var í
Reykjavík.
Rætt var um sumarstarf sem
hefur ekki verið nema að mjög
litlu leyti í þessum stóru félags-
miðstöðvum fyrir sunnan og
ekkert hér. Verið er að velta því
fyrir sér að hafa eitthvert sumar-
starf hér í sumar en það á eftir að
fullmóta þær hugmyndir. Ýmsar
hugmyndir eru í gangi, t.d. að
félagsmiðstöðin yrði notuð eitt-
hvað í sumar fyrir unglingana.
Einnig væri hægt að fara í úti-
legur og ýmislegt slíkt
Aðrar nýjungar sem hugað
hefur verið að er mótorsmiðja. I
Hafnarfirði hafa þeir sett upp
mótorsmiðju sem kemur mjög
vel út. Þetta er eitthvað sem við
ættum að skoða vel hjá okkur og
ég tel að við höfum aðstöðu til
að koma okkur upp litlu verk-
stæði inni í Atom, en þar er ein-
mitt passlega stór aðstaða ónýtt
sem gæti hentað ákaflega vel
fyrir slíka starfsemi. Auðvitað
yrði einhver stofnkostnaður í
upphafi en eftir það ætti þetta að
geta rekið sig nokkuð sjálft.
Markhópurinn fyrir slíka smiðju
eru strákamir sem eru á hjólun-
um en þeir em oft á illa útbúnum
hjólum og hafa ekki aðstöðu til
að gera eitthvað í því. Ég sé fyrir
mér að lögreglan gæti komið inn
í slíkt samstarf og hægt væri að
skapa þeim jákvæð verkefni á
hjólunum. T.d. væri hægt að
finna svæði fyrir braut sem hægt
væri að keppa á annað slagið.
Þannig yrði útrásin færð á
brautina og af götum bæjarins.
Einnig væri hægt að nýta slíka
braut undir kennslu á hjól í
samvinnu við yfirvöld.
Nýir markhópar
Nú þurfa menn að setjast yfir
aldurinn 16-18 ára. Við reynd-
um í vetur að vera með opið fyrir
þennan aldurshóp einu sinni í
viku í samvinnu við VA. Þá var
það nemendafélagið sem ákvað
dagskrá en því miður lognaðist
það rólega út af. Spurningin er
hvort ekki þyrfti starfsmann sem
Opið brél til flustfirðinga í víðasta skilningi
Þar sem vitað er að eftir höfðinu
dansa limimir. Því beini ég máli
mínu til eftirtalinna aðila í Aust-
urlandskjördæmi: Alþingismanna,
Sambands sveitarfélaganna, bæj-
ar- og sveitarstjórna, æskulýðs-
og ungmennafélaga, skólamanna,
fjölskyldna, til lærðra og leikara
er vildu láta sig varða framgang
neðangreindra mála.
I vor, nánar tiltekið þann 24.
apríl, sótti ég ráðstefnu á Reyð-
arfjörð er fjallaði um vímuefna-
vanda ungs fólks, sér í lagi, og
hvemig bregðast skuli við þeirri
vá. Sat ég þar í góðu samneyti
fólks víða af Austurlandi svo og
úr Reykjavík. Á þessari ráð-
stefnu las ég hluta kafla úr bók
minni Ört rennur æskublóð sem
bókmenntafræðingar telja tíma-
mótaverk í íslenskri bama- og
unglingasagnagerð.
Bókin var gefin út af Bóka-
forlagi Odds Björnssonar á
Akureyri 1972. Strax og útgef-
andinn, Geir heitinn Bjömsson,
hafði lokið lestri handritsins (hóf
lestur að kveldi og lauk undir
morgun) sagði hann við mig í
síma: „Þessa sögu þarf að kvik-
mynda.“
Síðan hefur mikið vatn mnn-
ið til sjávar og mikið verið rætt
um vímuefnavamir en kannski
ekki náðst sá árangur er stefnt
hefur verið að. Þess vegna datt
mér í hug, hvort ekki væri væn-
leg tilraun að reyna að brjóta
málefnið upp eins og sagt er og
Austfirðingar riðu á vaðið með
því að kvikmynda þessa sögu.
Hún kemur beint og óbeint inn á
háska þann er leynist við fótmál
ungs fólks er lendir á skjön við
lífið. Þá á hún og brýnt erindi við
íslensku þjóðina. Varpar skím
ljósi á mikilvægi sjómennskunn-
ar, fyrir afkomu hennar, og gildi
þess að læra að taka ábyrgð á
sjálfum sér. Hvergi er betri vett-
vangur til slíks en á sjónum.
Og þá kem ég að lokaþætti
þessa erindis. Árið 1994 fékk ég
upphringingu frá KVIKMYND
sf., Þorsteini Jónssyni, kvik-
myndagerðarmanni, sem kvik-
myndað hefur m.a. Atómstöð-
ina, Skýjahöllina og Fisk undir
steini. Hann sóttist eftir leyfi til
að kvikmynda söguna. Taldi
hann hana, sem margir aðrir, vel
sinnti þessu verkefni. Það er
ýmislegt sem hægt væri að gera,
t.d. að nýta Björgunarsveitarhús-
ið en þar er klifurveggur. Hægt
væri að nýta félagsmiðstöðina
betur, skólaeldhúsið fyrir nám-
skeið í matargerð o.s.frv. Að mínu
mati yrði að vinna þetta í sam-
ráði við nemendafélag VA enda
er verið að tala um vetrarstarf.
Auðvitað stendur þetta allt og
fellur með þátttöku krakkanna
sjálfra. Þau þurfa að vera sniðug
að koma sjálfir með hugmyndir og
framkvæma þær. Það hefur verið
boðið upp á ýmislegt í skólanum
en því miður hafa krakkamir ekki
verið nógu dugleg að taka þátt. Ef
þetta breytist á ég von að að hægt
verði að byggja upp blómlegt
félagslíf hér á Norðfirði.
SuMARhlJS
STARÍSMANNAFÉUqS
NEskAUpSTAÖAR
Enn eru
NOkklTAR VÍlíUR
Iausar í sumar
UpplýsÍNqAR í
0) 477 1 475
til þess fallna. Leyfið fékk hann
að sjálfsögðu. Sótti hann í beinu
framhaldi um styrk til Kvik-
myndasjóðs Islands. Enn hefur
hann ekki fengið svar. Ég er líka
þess fullviss að efni er sótt er út
fyrir Reykjavík á á brattann að
sækja. Þá varðar ekki svo mikið
um menningarviðhorf okkar út-
kjálkamanna. En hvað sagði
ekki Axel Beck á ráðstefnu ísl-
enskra sveitarfélag á s.l. haust-
dögum? Jú, að öflug menning
væri einn af þeim homsteinum
sem héldi jafnvægi í byggðum.
Er ég þá kominn að loka-
orðum. Er ekki vænlegt að skoða
þetta mál með Þorsteini Jónssyni
og vina með því tvennt: að efla
austfirska menningu og sýna
ungu fólki það svart á hvítu (í lit)
hvað býr handan við dökka
nóttina? Ég las áðurnefnda kafla
einnig fyrir efstu bekki í Smára-
skóla í Kópavogi. Urðu nemend-
ur mjög snortnir eftir lesturinn
og spurðu margs. Er ekki komið
að því, Austfirðingar góðir, að
við blásum til sóknar og ríðum á
vaðið til eflingar byggðar og í
þetta sinn með listsköpun í fyrir-
rúmi? Ég vænti viðbragða og
svara.
Breiðdalsvík að kvöldi kjördags
Guðjón Sveinsson
Mánabergi
prá
Sjó
«n an*»;
ada«
Kappróður
*Þeir sem ætla að taka þátt í kappróðri á sjómannadaginn hafi sambandi
við Gísla S. Gíslason s. 477 1333 eða 477 1464.
•Handhafar farandverðlauna vinsamlegast
komið þeim til Gísla á hafnarvoginni. x
•Fundir daglega kl. 18.00 í vigtarhúsinu. - ffl
Sjómenn eru sérstaklega hvattir til að mæta.