Austurland - 17.09.1998, Qupperneq 1
Grétar Sigurðsson, verðandi lífvörður Tiger Woods á golfvellinum á Norðfirði, en hann verður
koininn í virðulegri föt þegar kemur að því vernda kappann á golfvellinum í Edinborg í nœsta
mánuði. Ljósm. as
Söfnun stendur yfír
Þessa dagana er verið að
safna fé fyrir drenginn sem
fyrir skemmstu brenndist illa
á Eskifirði. Söfnunin hefur
gengið sæmilega en betur má
ef duga skal því fjölskyldan
mun sennilega þurfa á fjár-
stuðningi að halda um langt
skeið, en drengurinn hefur
gengist undir viðamiklar að-
gerðir að undanförnu. Þeir
sem vilja hjálpa drengnum og
fjölskyldu hans geta lagt inn
framlög á reikning nr. 61560
í Landsbankanum á Eskifirði.
Endurbætur á
löndunaraðstöðu
Hraðfrystihús Eskifjarðar
stendur nú í viðamiklum breyt-
ingum á löndunaraðstöðu
fyrirtækisins. Að sögn Hauks
Björnssonar, rekstrarstjóra
fyrirtækisins verður lönd-
unarhúsið stækkað verulega,
gólf löguð og húsið einangr-
að. Vélbúnaður verður einnig
endurnýjaður að miklu leyti
og m.a. skipt um þurrkbúnað
og blóðvatnskassa.
Ris og Tölvusmiðjan
sameinast
Tölvulyrirtækin Ris sf. og
Tölvusmiðjan ehf. hafa sam-
einað krafta sína. Hið nýja
fyrirtæki ætlar sér stóra hluti
á sviði m.a. hugbúnaðar,-
þjónustu og mun starfsemin
fara fram undir nal'ni Tölvu-
smiðjunnar ehf. Eigendur
hins nýja fyrirtækis verða að
jöfnurn hlut þeir Hafsteinn
Þórðarson, Hilmar Gunnlaugs-
son, Jón Fjölnir Albertsson
og Þórður O. Guðmundsson.
Sfldarvinnslan eykur
sjálfvirkni
í hinu nýja fiskiðjuveri Síld-
arvinnslunnar hf. í Neskaup-
stað er nú verið að breyta
vinnsluferli loðnufrystingar.
Verið er að auka sjálfvirkni í
pökkun loðnunnar, en breyt-
ingamar munu minnka vinnu-
aflsþörf fyrirtækisins nokkuð.
Grétar Sigurðsson er nú kominn
heim eftir að hafa farið í lífvarð-
askóla PBA (Professional Body-
guards Association) sem eru
önnur stærstu lífvarðasamtök í
heimi með starfsemi í 37 lönd-
um. Grétar náði frábærum ár-
angri í skólanum en hann út-
skrifaðist með 14. hæstu eink-
unn sem um getur í sögu skól-
ans. Námið í skólanum er ekki af
ákveðinni lengd heldur verða
nemendur að klára 30 próf á eins
skömmum tíma og þeir geta. Grét-
ar kláraði prófin 30 á 11 dögum.
Hörð skólavist
Skólavistin var mjög hörð og
lengsti svefn sem Grétar fékk á
meðan á vistinni stóð var fjórir
tímar, en yfirleitt fékk hann ekki
nema tveggja tíma svefn. Sum
prófin sem hann þurfti að stand-
ast voru mjög erfið og t.d. þurfti
Grétar að standast yfirheyrslu
sem tók langan tíma og hann var
beittur ofbeldi, en snúið var upp
á handleggi hans og höfði hans
barið í borð. Grétar meiddist í
einu prófinu, sem fólst í að bera
mann á bakinu með reglulegu
millibili á meðan skotið var
málningarkúlum í hann. Hann
tognaði á innanlærisvöðva og
hné niður, en þá kom liðþjálfi og
sparkaði í bak hans þar til hann
stóð upp og kláraði prófið. Við
spörkin hreytti Grétar gömlu
góðu íslensku blótsyrði í þjálfar-
ann og var hann af því tilefni
vakinn um miðja nótt og látinn
sópa stóran íþróttasal með litlum
handsóp á meðan þjálfarinn stóð
yfir honum og reykti sígarettu og
sló ösku á gólfið. Grétar var
einnig sleginn í andlitið þegar
hann hikaði við að beita þjálfara
sinn bragði sem á að drepa mann
á 3 sekúndum og fékk Grétar við
það glóðaraugu á bæði og blóð-
nasir. Hann þurfti einnig að læra
meðferð allra hugsanlegra skot-
vopna: vélbyssna, skammbyssna,
riffla og haglabyssna ásamt
fræðslu um sprengjur og önnur
vopn. Nemendur fengu einnig
reynslu af hinum endanum á
byssunum því þeir voru skotnir
tvisvar, reyndar íklæddir skot-
heldum vestum.
Mun vernda Tiger Woods
Með því að útskrifast úr skól-
anum er Grétar fullgildur með-
limur í PBA, en hann getur
fengið verkefni í gegnum sam-
tökin og þau útvega honum jafn-
framt vopn þar sem það á við.
Hann þarf að fara aftur í skólann
í tvær vikur árlega og á fimm ára
fresti fara meðlimir PBA í sex
mánaða þjálfun hjá Sérsveitum
Breska hersins (SAS). Grétar
þarf að greiða 3% af launum sín-
um til samtakanna. Hann fékk
áhugavert tilboð strax við út-
skrift, en það var tilboð um að
halda verndarhendi yfir golfar-
anum Tiger Woods sem vakið
hefur gífurlega athygli á síðustu
árum. Grétar tók tilboðinu ásamt
einum félaga sinna úr skólanum
og munu þeir fara út til Edin-
borgar upp úr mánaðamótum, en
þar munu þeir vinna fyrir Woods
í heilan mánuð. Woods þykir
TA bætir við
Tölvuþjónusta Austurlands
hyggst á næstu mánuðum opna
hugbúnaðarhús á Seyðisfirði.
Samkvæmt samtali við Bjarna
Þórs hjá TA gera frumhug-
myndir ráð fyrir því að a.m.k.
tveir forritarar verði ráðnir að
hugbúnaðrhúsinu í upphafí og
jafnvel lleiri í framtíðinni.
Af Tölvuþjónustunni er
annars það að frétta að vel hefur
gengið hjá fyrirtækinu frá því
það hóf starfsemi sína. Til að
mynda hyggst fyrirtækið bæta
við allt að 5 starfsmönnum fram
að áramótum. Einnig er
fyrirtækið í sífelldri útþenslu og
er m.a. þessa dagana að leita sér
að húsnæði í Neskaupstað fyrir
þjónustumiðstöð.
ekki greiða sérlega há laun, eða
einungis 10.000 krónur á dag
auk gistingar á fimm stjörnu
hóteli og uppihaldi, en hins veg-
ar eru Grétari nánast allir vegir
færir ef honum gengur vel í
þjónustu hans. Grétar segir starf-
ið vera talsvert flóknara en hann
hafði ímyndað sér. Þeir þurfa t.d.
að koma til Edinborgar þremur
dögum á undan Woods og gera
svokallað hættumat. Taka þarf
loftmyndir af golfvellinum og
gera áætlanir fyrir mánuðinn.
Finna verður öruggustu leiðirnar
á milli staða og hafa alltaf á
hreinu stystu leiðir á sjúkrahús
o.s.frv. Starfinu fylgir því mikil
pappírs og undirbúningsvinna.
Vinnan felst því frekar í að koma
í veg fyrir að byssukúlan fari af
stað en að stöðva hana.
Adolf Guðmundsson - Helgi Jensson Ifrá 1 .nóv)
Hilmar Gunnlaugsson - Jónas A Þ Jónsson
Kaupvangur 2, 700 Egilsstaðir
logmenn@austurland.is www.austurland.is/logmenn
sími:470-2200 fax.470-2201
\\>°Ö
Slátursala hafin
Pantanir í síma 477-1301
4 x Heinz bakaðar baunir kr. 196.-
Luxus Java kaffi 400 gr. kr. 199.-
Bautabúrs beikon kr. 898.- kg.
® 477 1301