Austurland - 24.08.2000, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2000
CV , , jt
h) nriTT,
#uT úí
w<—»
Hefurður farið til
berja í ár?
Júlía Ásvaldsdóttir: Já en ég
týndi bara upp í mig.
Kristín M. Sigurðardóttir: Nei,
ekki ennþá, en ég mun fara.
Sæmundur Sigurjónsson: Nei,
ekki ennþá, en ég fer.
Jóhannes Freyr Sigurðsson. Já,
ég fór á Fáskrúðsfirði.
Kolfinna Þorfinnsdóttir. Aðeins til
að týna upp í mig.
Kárahnjúkavirkjun:
Skipulagsstofnun fellst á matsáætlun
I bréfi sem Skipulagsstofnun
hefur sent Landsvirkjun kemur
fram að stofnunin hefur fallist á
tillögu að áætlun um mat á
umhverfisáhrifum
Kárahnjúkavirkjunar en gerir
jafnframt grein fyrir nokkrum
athugasemdum við áætlunina.
Segir í bréfinu að í heild virðist
hin almenna lýsing sem kemur
fram í tillögu framkvæmdaaðila
ná til allra helstu þátta sem taka
þarf á í mati á umhverfisáhrifum.
Landsvirkjun sendi Skipulags-
stofnun tillöguna að matsáætlun
um miðjan júlímánuð og í kjölfar
þess kynnti stofnunin tiilöguna
fyrir fjölmörgum hagsmuna-
aðilum auk þess sem tillagan var
kynnt með fréttatilkynningu og á
heimasíðu Skipulagsstofnunar á
netinu.
I samtali við Austurland sagði
Þorsteinn Hilmarsson upplýsinga-
fulltrúi Landsvirkjunar að
fyrirtækið væri ánægt með þessa
niðurstöðu og þar á bæ myndu
menn á næstunni fara yfir þær
athugasemdir sem fram hefðu
komið í bréfi Skipulagsstofnunar.
Þorsteinn sagði að matsáætlunin
væri mjög metnaðarfull og vel
kynnt og hann hefði fulla trú á að
hún væri fullnægjandi í öllum
meginatriðum. Þá sagði hann að
þær rannsóknir sem Landsvirkjun
hefði staðið fyrir í sumar á
virkjunarsvæðinu hefðu gengið
vel en þær væru bæði víðtækar og
kostnaðarsamar.
Fram kemur í bréfi Skipulags-
stofnunar að Náttúruvemd
ríkisins hafí í umsögn sinni farið
fram á að umhverfisáhrif
virkjunar og álvers á Reyðarfirði
yrði metin sem ein heild. Eins er
upplýst að Landgræðsla ríkisins
hafi sett fram svipuð sjónarmið.
Skipulagsstofnun fellst ekki á
þessi viðhorf Náttúruvemdar og
Landgræðslu og segir að þótt
Kárahnjúkavirkjun og álver á
Reyðarfirði séu nátengd þá sé
ekki unnt að líta svo á að um
framkvæmdir á sama svæði sé að
ræða. Hins vegar telur
skipulagsstofnun mikilvægt að
mat á umhverfisáhrifum beggja
framkvæmdanna verði auglýst um
svipað leyti.
Gert er ráð fyrir að
umhverfismatsskýrsla vegna
Kárahnjúkavirkjunar verði lögð
fram í febrúar-mars árið 2001 og
eins er ráðgert að
umhverfismatsskýrsla Reyðaráls
vegna álvers á Reyðarfirði verði
lögð fram í byrjun árs 2001.
r
Urslitakeppni 3. deildar
að hefjast
ATH!
Ekki gleyma að fara
með fötin f hreinsun.
Við höfum opið virka
daga frá
kl. 12.45 -16.00
Lækurinn
Egilsbraut
Þróttur sigraði Neista með fimm
mörkum gegn þremur á Djúpa-
vogi í síðasta leik D-riðils 3.
deildar sl. laugardag. Þróttur
sigraði því riðilinn með miklum
yfirburðum, tapaði engum leik og
gerði aðeins tvö jafntefli.
Lokastaðan varð þessi:
1. Þróttur 32 stig
2. Huginn/Höttur 16 stig
3. Leiknir 11 stig
4. Neisti 9 stig
Tvö efstu liðin fara áfram í
úrslitakeppnina sem hefst n.k.
laugardag. I úrslitakeppninni er
leikið heima og heiman. Þau lið
sem vinna halda áfram en þau
sem tapa falla úr keppninni. Á
laugardag leikur Huginn/Höttur
gegn Haukum á Egilsstöðum en
Þróttarar leika gegn KFS í
Vestmannaeyjum. Leikirnir
hefjastkl. 14:30. Seinni leikirnir
verða síðan á þriðjudag og hefjast
kl. 17:30. Ástæður þessa
óvenjulega tíma eru m.a. þær að
ef jafnt verður eftir venjulegan
leiktíma þarf að framlengja og
dugi ekki framlenging verður gert
út um viðureignina með
vítaspymukeppni. Ástæða er til
að hvetja alla til að mæta á
völlinn á þriðjudag og hvetja
Þróttara til dáða. Sigri Þróttur
viðureignina við KFS mætir liðið
annaðhvort Nökkva frá Akureyri
eða Njarðvík.
MATRÁÐ VANTAR
Matráð vantar í 55% starf við
leikskólann Lyngholt á Reyðarfirði frá
1. sept.
Vinnutími er sveigjanlegur.
Umsóknir berist skrifstofu
Fjarðabyggðar, Búðareyri 7, fyrir 24.
ágúst.
Nánari upplýsingar veitir
leikskólastjóri í síma
474 1257
Fjarðabyggð
Laust starf
Við Grunnskólann á Eskifirði er
laust starf stuðningsfulltrúa
næsta skólaár.
Um er að ræða 50% starf eftir
hádegi með nemendur í 1. bekk.
Laun samkvæmt kjarasamningi
FOSA.
Upplýsingar veitir
skólastjóri í síma
476 1472 eða
895 9975
Fjarðabyggð
Austurland
hvetur lesendur sína til að senda blaðinu línu.
Skrifið um það sem ykkur brennur á
hjarta hverju sinni.
Takið þátt í skoðanaskiptum dagsins.
Netfang: austurland@eldhom.is