Austurland - 24.08.2000, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 24. AGUST 2000
7
Islensk stjórnmál
á umbrotatímum
í krafti stöðu minnar sem for-
maður fráfarandi eiganda þessa
virðulega blaðs, vil ég nú í sem
fæstum orðum gera grein fyrir
viðhorfum mínum til þeirra at-
burða sem orðið hafa á vinstri
væng íslenskra stjómmála allra
síðustu árin.
Skyggnst um öxl
Til að varpa ljósi á nútímann,
þarf oft að grípa til söguskýringa.
Mér finnst hendi næst að nefna
þau fáu ár, sem vinstri flokkar á
Islandi höfðu veruleg völd og
tækifæri til athafna í þágu vinn-
andi fólks, sérstaklega áranna
þriggja, sem ríkisstjóm Olafs
Jóhannessonar ríkti, 1971-1974.
Margt var vel um þá stjórn, en
ýmislegt mátti Iíka að henni frnna.
Meðal góðverka hennar var að
byggja upp byggðastefnu, sem
ekki var brotin á bak aftur fyrr en
rúmum áratug síðar. Til þess þurfti
meðal annars að losa þjóðina við
skuldbindingar varðandi land-
helgina, sem fráfarandi viðreisn-
arstjóm hafði bundið snemma á
ferli sínum. Þurfti bæði klóka
menn og einarða til að leysa þann
Gordionshnút.
Fljótlega kom á daginn að
mörgum þeim, sem stefndu á
frama í skjóli fjármagns þótti
mjög að sér þrengt á þessum ár-
um. Höfðu þar hæst þeir sem nú
skipa æðstu valdastöður landsins
og með "samstilltu átaki" hafa
þeir nú raskað skiptingu þjóðar-
auðsins milli þegnanna með svo
afgerandi hætti, að veruleg hætta
er orðin á að almúgi þessa lands
verði innan tíðar algerlega upp á
ölmusu nokkurra stóreignamanna
kominn.
Afrek auðhyggjunnar
Skulu þessari skoðun minni til
stuðnings nefnd örfá dæmi:
1. Dýrmætasta auðlind þjóðar-
innar, fiskimiðin, eru nú í vax-
andi mæli orðin verslunarvara
eignafólks, en ekki sú trausta und-
irstaða undir velmegun byggð-
anna, sem hún hefur verið í gegn-
um aldirnar.
2. Margar af mikilvægustu ríkis-
stofunum hafa nú verið einka-
væddar. I krafti einokunarað-
stöðu okra þær nú á landslýð, til
þess að hluthafar hafi trygga
ávöxtum af eignum sínum.
Ekkert bendir til annars en að
fyrirtæki þessi muni komast í
meirihlutaeign tiltölulega fárra
einstaklinga á allra næstu árum.
Gildir þetta bæði um banka og
þjónustufyrirtæki eins og Lands-
símann og Islandspóst. Ekki er
rædd sú staðreynd að áður en til
einkavæðingar kom átti íslenskur
almenningur þessi fyrirtæki
óskipt. Eftir einkavæðingu missti
mikill meirihluti þjóðarinnar alla
aðild að þeim.
3. A Islandi tíðkast nú
vaxtastig, sem í nágrannaríkjun-
um væri kallað okur. Við þau
skilyrði vex öllu eignafólki fiskur
um hrygg. Hinum skuldugu, sem
eru að hefja ævistarf og stofna
heimili er hins vegar lítt mögu-
legt að verða bjargálna, nema að
baki búi ættarauður eða komist
verði í tekjur vel yfir meðallagi.
4. Jafnvel í stjórnkerfinu ríkir
óskapnaður, þar sem einstök fá-
menn sveitarfélög geta rakað
saman tekjum í krafti sérstöðu á
meðan önnur hafa ekki mögu-
leika á að sinna lögboðnum verk-
efnum vegna lágra tekna íbúanna,
skuldabagga og vaxtaáþjánar.
Þrátt fyrir fullyrðingar vald-
hafa um að allir hafi notið ein-
hvers góðs af stjómarstefnu
þeirra og góðærinu, blasir við sú
staðreynd að biðraðir við félags-
málastofnanir sveitarfélaga lengj-
ast stöðugt og æ stærri hluti af
tekjum þeirra renna nú til beinnar
félagshjálpar, sem var varla telj-
andi fyrir nokkrum árum. Þá
hrökklast fólk nú hópum saman
frá verðlausum eignum úr blóm-
legum byggðum, þar sem þeim
hefur verið gert nánast ómögu-
legt að hafa lífsframfæri, til
þéttbýlli staða þar sem tækifærin
bíða, en öryggisleysið og óvissan
gætu þó verið á næsta leiti.
Lausnir liggja í breyttu
umhverfi
Og þá má spyrja: Hvað má til
varnar verða?
Félagshyggjufólk, sem hefur
ekki trú á því að hér sé að öllu
leyti gengið til góðs, verður að
greina vandann. Vissulega lifum
við á öld tækniframfara, sem fært
hefur okkur mörg skref inn í
framtíðina. Tækifærin til betra
lífs eru óþrjótandi, en þau eru
ekki bundin við einstaklings-
gróða eingöngu, heldur ekki síð-
ur háð því að fólk nái þroska til
að starfa saman með formlegum
hætti, þar sem hópurinn vinnur
að sameiginlegum markmiðum.
Sá sem þetta ritar var fyrrum
lítt hrifinn af hugmyndum um
sameiningu Alþýðubandalags og
Alþýðuflokks, enda var þá stefna
þessara flokka gagnólík og stjóm-
arathafnir krata í íhaldsstjómum í
hróplegri mótsögn við allt sem
kalla mætti félagshyggju eða
jafnaðarmennsku. Síðan þá hefur
tvennt gerst.
1. Umhverfí í utanríkismálum
gerbreyttist í kringum 1990, hef-
ur verið að breytast hratt síðan og
mun líklega skipta vemlega um
svip í náinni framtíð, og er nú
svo komið að hvergi í heiminum
er mannréttinda og félagslegs rétt-
lætis betur gætt en í nágranna-
löndum okkar í Vestur-Evrópu.
2. Fyrir kosningar 1995 urðu
væringar í Alþýðuflokknum, sem
urðu til þess að vinstri sjónar-
miða fór að gæta þar, en á því
hafði varla örlað öll árin frá þvf
ég fékk hvolpavit á pólitík.
Þetta tvennt auk stökkbreyttrar
eignaskiptingar meðal landsmanna
á liðnum áratug tel ég eindregið
að kalli á nýtt landslag í pólitík.
Stjórnmálaflokkar utan
stjórnmála
Lengi hefur það tíðkast að
landsmenn skipti sér ekki niður í
stjómmálaflokka eftir afstöðu
sinni til landsmála, heldur eftir
eigin efnahag, kunningsskap,
búsetu, ætterni og svo mætti
lengi telja. Því má í Sjálfstæðis-
flokknum fínna fjölmarga sanna
vinstri menn á meðan allmargir
harðir kapitalistar hafa hreiðrað
um sig í vinstri flokkunum.
Astæðan, eða öllu heldur afleið-
ingin er augljós. Stjómmála-
flokkamir eru hættir í stjórnmál-
um, þeir em orðnir hagsmuna-
félög einstaklinga. Því vitum við
mjög lítið fyrirfram um væntan-
legar stjómarathafnir nýrrar
ríkisstjómar. Það fer eftir því
hvaðan ráðherramir eru ættaðir,
hvar þeir em búsettir, eða hvar
þeir hafa gengið í skóla. Við
vitum sem sagt ekkert hvað við
erum að kjósa þegar við göngum
að kjörborðinu, enda velja margir
þann með fallegasta brosið í
sjónvarpinu, eða þann sem er
bestur í að grilla í
flokksferðalögunum.
Raunar þarf engan að undra þó
að stjómmálaáhugi og
kosningaþátttaka fari minnkandi
undir þessum kringumstæðum.
Tilraun til umbreytinga
Segja má að myndun Samfylk-
ingarinnar sé tímabær tilraun til
þess að fylkja saman fólki, sem á
samleið í pólitík í grunnatriðum.
Þeir sem að henni standa bera þá
Stjóm Eignarhaldsfélagsins
Bmnabótafélag Islands hefur
ákveðið á gmndvelli samþykkta
fulltrúaráðs félagsins að greiða
aðildarsveitarfélögum sínum
samtals 140 milljónir króna í
ágóðahlut í ár. Greiðslan er í
samræmi við eignaraðild þeirra
að Sameignarsjóði EBI.
Aðildarsveitarfélög EBI á
von í brjósti að hægt verði að
víkja frá þeirri stefnu sem býður
heim stjórnlausri misskiptingu án
þess að spilla í neinu þeim
ávinningi, sem náðst hefur í
atvinnulífi á síðustu árum,
reyndar bæta hann verulega.
Sjálfur hefi ég trú á að tími
stjórnmálaforingja með háværar
raddir og stór orð muni brátt
verða liðinn. Við taki tími
leiðtoga sem höfði til skynsemi
almennings og séu um leið sjálfir
góðar fyrirmyndir til orðs og
æðis.
Mér þykir fyrir því að ekki
varð meiri samstaða innan
Alþýðubandalagsins um myndun
Samfylkingarinnar en raun bar
vitni. Hins vegar er mér jafnhlýtt
til allra þeirra sem ég hef átt kost
að vinna með á vettvangi
stjórnmálanna. Engum hefi ég
reynt að telja hughvarf, bæði
vegna þess að ég tel mig ekki
þess umkominn og vegna hins að
vilja og skilning fólks virði ég til
fullnustu. Hér að framan þykist
ég hafa leitt nokkur rök að minni
afstöðu. Eg er þeirrar skoðunar
að þeir Alþýðubandalagsmenn,
sem ekki hafa treyst sér til að
Austurlandi fá greiddar tæpar 16
milljónir króna í sinn hlut. Af því
fær Fjarðabyggð rúmar fimm
milljónir króna, Seyðisfjarðar-
kaupstaður, Austur-Hérað og
Hornafjörður rúmar tvær millj-
ónir hvert og Búðahreppur rúma
eina milljón króna. I samræmi
við samþykktir félagsins mælast
stjóm og fulltrúaráð EBI til þess
Sigurjón Bjarnason
ganga til liðs við Samfylkinguna
hafí ekki til fulls áttað sig á þeim
staðreyndum, sem hér eru að
framan taldar.
Hvort það gerist í framtíðinni
skal ég engu um spá.
Mennirnir eru og verða ólíkir,
sem betur fer, hugsa eftir ýmsum
leiðum og mynda saman
fjölbreytt mannlíf. Það breytir þó
ekki því að þeir ættu á stundum
að finna þann mátt sem
samstaðan færir þeim um leið og
hægt er með virðingu og
skilningi að tryggja það
einstaklingsfrelsi sem nefna ber á
undan eignarréttinum, það er
persónufrelsi og mannréttindi.
við sveitarfélögin að þau verji
framlaginu meðal annars til for-
varna, greiðslu iðgjalda af trygg-
ingum sveitarstjórna og bruna-
varna í sveitarfélaginu.
Ágóðahlutur aðildarsveitarfél-
aganna frá EBI hefur orðið tii þess
að nokkur sveitarfélög munu
endurnýja slökkvibifreiðar sínar
á næstunni.
Sigurjón Bjarnason
Meimprófsbílstjórar og
bifvélavirkjar
Okkur vantar meiraprófsbílstjóra til aksturs strætisvagna
og bifvélavirkja til viðgerða ó stórum bílum sem fyrst.
Um framtíðarstörf er að ræða
Hagvagnar sjó um akstur 25 strætisvagna ó
höfuðborgarsvæðinu og annast allar viðgerðir og
viðhald þeirra.
Hagvagnar hf.
Melabraut 1 8
220 Hafnarfjörður
Sími 565 4566
Fax 565 4568
netfang:hopbilar@hopbilar.is
Allar nónari
upplýsingar
vegna
meiraprófs-
bílstjóra veitir
Hrafn Antonsson
og Þórður
Pólsson vegna
bifvélavirkja í
síma 565 4566
Sveitarfélög á Austurlandi fá
tæpar 16 milljónir króna frá EBI