Austurland - 24.08.2000, Page 8
1'
Tilboð
Þurrkrydduð læri
Homewheat kremkex
Libero blautklútar í boxi S
ISIO 4 = matarolía án kólesterol
1 . oWodagafrákl. 7 0.00-/o
) OÍ_______________________• 00
S4771609 og 8971109
Virkjunarvegnr í Fljótsdal kœrður
Þeir Hjörleifur Guttormsson og
Sigurður Blöndal hafa kært til
umhverfisráðherra úrskurð skipu-
lagsstjóra um veg frá Atlavík að
Teigsbjargi í Fljótsdal ásamt brú
yfir Jökulsá í Fljótsdal skammt
fyrir innan botn Lagarfljóts.
Skipulagsstjóri kvað upp úrskurð
sinn þann 5. júlí sl. en þarna er
um veg að ræða sem tengist beint
fyrirhuguðum virkjunarfram-
kvæmdum við Kárahnjúka.
Krefjast þeir Hjörleifur og Sig-
urður að úrskurði skipulagsstjóra
verði breytt og umhverfisráðherra
úrskurði að framkvæmdin skuli
sett í frekara mat þar sem m.a.
verði kannaður sá kostur að
byggja nýja brú á Lagarfljót við
Egilsstaði og leggja síðan veginn
norðan Lagarfljóts frá Fellabæ
inn í Fljótsdal.
Verði ekki orðið við kröfu
þeirra Hjörleifs og Sigurðar um
frekara mat krefjast þeir þess tii
vara að svonefnd leið 3 á veg-
inum frá Atlavík að Teigsbjargi
verði valin og Jökulsá og Keldu-
árkvísl verði brúaðar saman ná-
lægt núverandi leið.
Elsta landsmálablað lýðveldisins
Stofnað 1951
Það er alltaf gott þegar lukkan er með í för. Ef þessi bifreið, sem átti leið
um Hlíðargötuna í Neskaupstað hefði verið á örlítið meiri hraða hefði án
Börkur með yfir
50.000 tonn
Börkur NK 122 er búin að
landa tæplega 55.000 tonnum af
loðnu, síld og kolmunna það sem
af er þessu ári og er aflaverðmæti
skipsins rúmlega 250 milljónir
króna. Beitir hefur aflað tæplega
39.000 lestir og er aflaverðmætið
um 185.000 milljónir króna.
Afli Barkar skiptist þannig að
tæplega 29.000 tonn er loðna,
tæplega 20.000 kolmunni og sfid
úr norsk-íslenska stofninum
6.000. Þá landaði Börkur 226
tonnum af loðnuhrognum. Börk-
ur hefur aflað mest íslenskra
skipa af kolmunna á þessu ári.
Beitir hefur aflað tæplega
23.000 tonn af loðnu, rúmlega
10.000 af kolmunna og liðlega
300 tonn af sfld. Beitir landaði
178 tonnum af loðnuhrognum á
ioðnuvertíðinni.
Annir hjá Nátturu-
stofu Austurlands
efa farið illa.
Ljósm. Reynir Neil
Fræðslusjóður verkafólks
á landsbyggðinni
Við gerð síðustu kjarasamn-
inga á milli Verkantannasam-
bands íslands og Landssambands
iðnverkafólks annars vegar og
Samtaka atvinnulífsins hins veg-
ar var ákveðið að koma á fót
fræðslusjóði verkafólks á lands-
byggðinni. Samið var um að at-
vinnurekendur legðu 110 millj-
ónir króna til sjóðsins á þremur
árum og stéttarfélögin 30 millj-
ónir á sama tíma.
Hlutverk sjóðsins er að sinna
stuðningsverkefnum og þróunar-
og hvatningaraðgerðum á sviði
starfsmenntunar verkafólks á
landsbyggðinni og stuðla þannig
að hæfara starfsfólki sem hefði
jákvæð áhrif á samkeppnisstöðu
fyrirtækja.
Skipuð hefur verið verkefnis-
stjórn og hélt hún nýverið sinn
fyrsta fund. A fundinum var
ákveðið að leggja 500 þúsund
krónur í átakið "Menntun er
skemmtun" og eins var fjallað
um mikilvægi menntunar verka-
fólks í tengslum við viku sí-
menntunar sem haldin verður
dagana 4.-10. september nk.
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir
frá Vökli-stéttarfélagi á sæti í
verkefnisstjóminni og í viðtali
við Austurland sagði hún að nú
væri að hefjast vinna við að móta
starfsreglur fyrir fræðslusjóðinn.
Þá sagðist hún verða áþreifanlega
vör við að verkafólk á Austur-
landi bindi miklar vonir við starf-
semi sjóðsins og liti með já-
kvæðum augum á tilkomu hans.
Mikið hefur verið að gera hjá
starfsfólki Náttúrustofu Austur-
lands í sumar og líkur eru á að
stofan hafi næg verkefni á næst-
unni. Hjá Náttúrustofunni eru
þrír starfsmenn í föstu starfi en
að auki eru tveir starfsmenn í
sumarstarfi. Guðrún Jónsdóttir
forstöðumaður stofunnar segir að
verkefni sumarsins séu fjölmörg
og bæði stór og smá. Austurland
bað Guðrúnu að nefna dæmi um
verkefni sem verið er að sinna og
skulu nokkur þeirra tíunduð hér:
Rannsóknir á gróðri, fuglalífi
og hreindýrum í tengslum við
umhverfismat vegna Kárahnúka-
virkjunar. Rannsóknir á lífríki
vegna fyrirhugaðra jarðganga-
framkvæmda á rnilli Reyðarfjarð-
ar og Fáskrúðsfjarðar.
Gróðurrannsóknir í Sandvík.
Gerð ofanflóðaannáls fyrir Eski-
fjörð. Athugun á fuglalífi við
Kröflu. Undirbúningur nám-
skeiðs fyrir hreindýraeftirlits-
menn og umsjón með verkefninu
Staðardagskrá 21 í Fjarðabyggð.
Eins og sést á þessari upptaln-
ingu eru verkefnin fjölbreytt og
dæmi eru um að verkefnum sé
sinnt utan Austfirðingafjórðungs.
Eitt þeirra verkefna utan fjórð-
ungs sem til greina kemur að
Náttúrustofa Austurlands taki að
sér er gróðurfarsúttekt vegna
fyrirhugaðrar breikkunar Reykja-
nessbrautar.
Fyrir utan hefðbundin verkefni
vinna sumarstarfsmenn Náttúru-
stofunnar að tveimur athyglis-
verðum nýsköpunarverkefnum.
Annað verkefnið fjallar um það
hvernig nýta má umhverfið til
kennslu en hitt er mótun flokk-
unarkerfis fyrir fjörur.
Nýsmíði úr stáli og áli - SVN Vélaverkstæði 8
477 1603