Eining - 01.04.1943, Blaðsíða 4
E I N I N G
**
ÚTGEFENDUR:
Samviimuneíud Stórstúku íslands,
íþróttasambands íslands,
Ungmennafélaga íslands og
Sambands bindindisfélaga í skólum.
NEFNDARMENN:
Pétur Sigurðsson, erindreki.
Jón Gunnlaugsson, stjórnarráðsfulltrúi.
Páll Pálsson, stud. jur.
Gísli Sigurbjörnsson, forstjóri.
Guðmundur Sveinsson, stud. theol.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Pétur Sigurðsson.
Heimilisfang blaðsins: pósthólf 982,
Reykjavík. Sím 5956.
Heilagt stríð
Bindindismenn og menningarvinir!
Við eigum í stríði. Það er heilagt stríð,
því að við berjumst fyrir hreinleik,
heiðarleik og réttlæti. Við berjumst fyr-
ir rétt kvenna og mæðra og barna, og
við berjumst fyrir fullkomnari menn-
ingu, meira öryggi í siðgæðismálum og
velsæmi í hvívetna, en gegn kúgun og
ofbeldi, ólifnaði og spillingu, slysum og
glæpum og öllu því illa, sem áfengis-
neyzlan fæðir af sér.
Við höfum á móti okkur:
1. áfengisauðmagnið, og það er sterkt;
2. skemmtanalíf og samkvæmistízku,
sem hvorttveggja er sterkt;
3. léttúðugan og gálausan lýð, sem þvæl-
ist mjög fyrir;
4. töluvert stóran hóp forskrúfaðra og
illa ræktaðra embættismanna, sem
mæla áfengisviðskiptum bót, halda
við drykkjusiðum og telja sælgætis-
át og tóbaksneyzlu óskaðlegt. Sumir
þessara manna fá all mikla áheyrn
undir yfirskini vísindamennsku.
5. Við höfum ennfremur á móti okkur
breyskleika og nautnasýki manna,
sem er þungur púki í lestinni.
6. Við höfum á móti okkur sællífa yfir-
stéttarmenn, sem ráða yfir fjár-
magni og ráða því oftast yfir víð-
lesnustu blöðunum. Allt þetta saman-
lagt er skæður her og beittum vopn-
um búinn, enda flýtur bæði blóð og
tár, og börn og konur gráta.
Stöndum því saman, þjálfum liðið,
myndum órjúfandi eining, klæðumst
hertýgjum ljóssins og hrekjum svo
hneykslið af heilögum stað.
Útbreiðum Eining, gerum blaðið víð-
lesið, svo það geti haldið á málstað okk-
ar að verulegu gagni.
Lotnir menn
Að fást við þraut og þyngstu tök
var þeirra iðja.
Þeir fá jafnan bogin bök,
sem brautir ryðja.
P. S.
„Snauður verður sá, er með hangandi
hendi vinnur, en auðs aflar iðin hönd“.
Blindur stjórnandi
Þarna á myndinni sjáið þið manninn, sem stjórnar heiminum. Hann
er blindur. Hann hefur annaðhvort dollara, krónur eða einhvern annan
pening fyrir augunum. Annað sér hann ekki. Þá verður skiljanlegt hve
illa fer um þá, sem hann leiðir og stjórnar. Hann stjórnar í blindni, þar
af öll hröpin, hrunið, árekstrarnir og slysin.
Hann selur vopn, hann selur munaðarvöru, hann selur menn í þræl-
dóm og hann selur áfengið. Hann sér ekkert af slysunum í kringum sig,
því að hann sér ekki annað en krónu eða dollar, eða einhverja aðra mynt.
MYNDIN: 1. Fangelsið, 2. kirkjugarðurinn, 3. geðveikrahælið,
4. fátækrahælið, 5. gálginn, 6. eyðilagt heimili, 7. götubardagi, 8. járn-
brautarslys, 9. drukkinn maður frosinn í hel, 10. sorgarleikur á heimil-
inu, 11. munaðarlaus börn, 12. fátæktin, 13. síðasti drykkurinn, 14. bíl-
slys, 15. betlari, 16. morð, 17. sjálfsmorð.
Astasæla eða
ii.
Fyrsta hluta þessarar greinar endaði
eg í síðasta blaði Einingar á þeirri ásök-
un í garð eldri kynslóðarinnar, að hún
svikist um að ala upp úrvals mannsefni
og ágæta kvenkosti. Bæði væri uppeldi
yngri kynslóðarinnar stórgallað, eins og
það hefur æfinlega verið, og aldrei vís-
indalegt, en auk þess vanrækti eldri
kynslóðin að fræða æskumenn og meyj-
ar hyggilega um vandamálið mesta. En
eldri kynslóðin getur fært margt fram
sér til afsökunar: kunnáttuleysi, van-
þekkingu, gallað uppeldi, erfðavenjur,
tíðarandann og almenningsálit, og ekki
sízt mótþróa og sjálfstæðishneigð æsk-
unnar.
Erfitt verk og vandasamt leysir menn
ekki frá skyldum þeirra gagnvart því.
Þótt eitt og annað sé erfitt, þarf það
ekki að vera óvinnandi. En mönnum er
tamt að ganga framhjá erfiðu hlutverk-
unum og fitla heldur við hið léttvæga.
Það er ólíkt auðveldara að kenna ungl-
ingum skrift, reikning, tungumál og alls
konar fræði, en að rækta siðferðisþrek-
ið og móta ákjósanlega skapgerð þeirra,
og þess vegna hafa flestir skólar heims-
ins og aðrir uppalandi kraftar gefið sig
aðallega við hinu fyrr talda og léttvæg-
ara.
sorgarleikur
Þá er ólíkt auðveldara að kenna æsku-
lýð algeng vinnubrögð, innan húss og
utan, þótt fjarri sé nú, að allir menn
hafi „verksvit“, en að kenna ungum
sveinum og meyjum það, sem hamingja
og farsæld þeirra byggist á fyrst og
fremst, en það er: þroskaður skilning-
ur á ástalífi, hjúskap, heimilisstjórn,
barnauppeldi og öllu því, er lýtur að
samlífi karls og konu. En nátengt þessu
verður alltaf vænleikinn, drengskapur-
inn, réttlætishyggjan og viljafestan.
Ef til vill má með sanni segja, að
mannkynið hafi kvalið sig, svívirt og
smánað á öllum sviðum, frá alda öðli,
þegar litið er á styrjaldir, meðferð á
börnum, konum, vinnulýð og valdalaus-
um, en ekki sízt hefur mannkynið sví-
virt sig og kvalið í sambandi við ástalíf
og sambúð karls og konu. Það er hrylli-
leg saga: Hræðilegar sjúkdómsplágur,
kúgun og kvalir, geðveiki og brjálun,
ólifnaður og ónáttúra, drykkjuskapur
og mellulifnaður. Fjöldi karla og kvenna
hafa fyrr og síðar gefið sig á vald
áfengisnotkun, sjálfrátt eða ósjálfrátt,
eingöngu til þess að geta fremur opnað
sér leiðir í heimi ástarinnar. Allt, sem á
til þenslumátt, leitast við að sprengja
af sér böndin, ef þau herða að um of
eða særa. Almenningsálitið, sem fyrr á