Kvennablaðið - 19.06.1939, Qupperneq 13
MÆÐRADAGURINN
Alþjóðafundur
kvenréttindakvenna
er nú orðinn nokknrn veginn fastur dagur i
meðvitund fólksins, Reykvíkinga að minsta
kosti. Þó liann sé livað nafnið snertir ckki ís-
lenskur að uppruna, þá er hann þó liér með
nokkuð öðru sniði en tíðkasl víða erlendis.
Það er Mæðrastyrksnefndin, sem hefir geng-
isl fyrir lionum hér og safnar hún þann dag
fé, sem hún vcr lil hvíldarviku fyrir mæður og
svo til lengri sumardvalar fyrir mæður og hörn.
í fimm undanfarandi suinur hefir nefndin haft
slíka livíldarviku á Laugarvatni og í þrjú sum-
ur sumardvöl fvrir mæður og börn. Hafa mæð-
ur og hörn, sem skifta hundruðum, notið þess-
arar sumardvalar undanfarin sumur. Að þessu
sinni var Mæðradagnrinn haldinn 21. maí. Hafði
nefndin merkjasölu og skemtanir á nokkrum
stöðum i hænum. Um kvöldið fluttu ræður í
útvarpið: Laufey Valdimarsdóttir, Martha Ind-
riðadóttir, Inga Lárusdóttir og Katrín Thorodd-
sen. Var útvarpið sérstaklega helgað móðurinni
til sveita og i bæjum. Þrátt fyrir óhagstætt veð-
ur komu inn rúmlega 1700 krónur fyrir merki.
Minni tekjur urðu af skemtunum dagsins, en
það bætti mikið upp tekjurýrnunina, að Leik-
félagið sýndi ])á rausn að gefa sýningu á Tengda-
pabba i vikunni á eflir, og kvikmyndahúsin
ætla að gefa eina sýningu livort scinna. Þegar
öll kurl koma til, mun fjárhagslegur árangur
af deginum verða svipaður og hesl hefir orðið
áður.
Þetla starf Mæðrastyrksnefndarinnar er eitl-
hvert hið vinsælasta hjálparstarf, sem fram-
kvæmt hefir verið, enda er þörfin fvrir stíkt
nærri ótæmandi.
Konur á Siglufirði og Akure' ri og jafnvel við-
ar liafa nú stofnað mæðraslvrksnefndir og munu
þær meðal annars hugsa sé’ að koma á sér-
stökum mæðradegi með líku fyrirkomulagi og
markmiði eins og Mæðrastyrksnefndin i Reykja-
vik. —
ella hljótum við að freista gæfunnar og setja
upp kvennalista.
Kjörgengið er í raun og veru stærstu rétt-
indin, sem við höfum fengið.
Guðrún Stefánsdóttir,
Allijóðasamband kvenréttindafélaganna — Internatio-
nal Alliance for Suffrage and Equal Citizenship — held-
ur þing í Kaupniannahöfn í júlimánuði, frá 8.—14. júl.
Sækja fund þann fulltrúar frá flestum menningarlönd-
um heimsins, sem ekki hafa kastað lýðræðinu fyrir
borð. En í löndum fasismans og nazismans hafa kven-
réttindafélögin verið biinnuð og leyst upp. Það er þvi
ekki furða, þótt þetta þing leggi aðaláherslua á vernd-
un lýðræðisins.
Aðal dagskrármálin eru ])essi:
1. Konan í framleiðslunni, á atvinnusviðinu, i félags-
málum, sem húsmóðir, sem neytamli.
2. Konan og lýðræðið, skyldurnar við þjóðfélagið. —
Hvernig eiga konurnar að ná meiri áhrifum í þjóð-
lífinu? v
3. Alþjóða kvenréttindasambandið á vegamótum.
4. Kvenréttindamál: Sömu siðferðiskröfur til beggja
kynja. Jöfn vinnuskilyrði. Rikisborgararéttur. Kröf-
ur einstæðra mæðra.
Sérstakir æskulýðsfundir verða haldnir. Fundarefni:
Þjóðfélagshugsjónir æskunnar. Viðhorf hennar til al-
alþjóðlegra vandamála. Viðhorf hennar til sálfræði-
legra, siðferðis- og atvinnulegra vandamála.
Noröurlandaríkin halda einn sameiginlegan kveldfund,
Verður þar rætt um það, hvað kosningarétturinn hafi
fært konunum og hvað enn sé ófengið.
Opinber fundur verður haldinn um friðun og vernd-
un manngildisins.
Fundurinn verður settur i ráðhúsinu. Heldur Stauning
forsætisráðherra Dana, þar ræðu fyrir hönd ríkisstjórn-
arinnar, og fulltrúar Kaupmannahafnarborgar bjóða aest-
ina velkomna. Verða þar einnig fluttar kveðjur frá full
trúum hinna ýmsu lamla.
K.R.F.Í. l)ýst við að senda sendinefnd á þing þetta.
Ekki er enn fullráðið, hverjar konur fara. cnda er ferð-
in nokkuð komin undir því, hvaða velvild rikisstjórnin
sýnir þvi máli.
Konur, sem eiga leið til útlanda í sumar, ætlu að
sækja þenna fund, og gefur skrifstofa K.R.F.Í. i Þing-
lioltsstr. 18, upplýsingar um hann. í sambandi við slika
fundi er æfinlega tækifæri til ]>ess að kynnast margs-
konar þjóðfélagslegri starfsemi og stofnunum, og ýms-
ar skemtanir, sem fleiri geta tekið þátt í en fulltrú-
arnir einir. Áhrif slikra funda geta verið djúp og ó-
gleymanleg. Við íslendingar, sem heyrum bergmál heims-
viðburðanna í fjarska, öðlumst nýjan skilning, þegar
við stöndum augliti til auglitis við þá, sem standa mitl
i þeim bardaga.
Merki það, sem fundur þessi hefir valið sér, cr sjálft
lifsins tré, öðrumegin ljósgrænt, með þéttsettum hjarta-
hlöðuin, hinumegin blaðlaust, kalið. Við ræfur þess eru
öðru megin lijarta, en hinu megin gasgrima. Það er har-
ist um lif og dauða í heiminum, um alt það. sem kon-
unni er dýrmætast ,og hefir konan ekki alltaf verið
vörður og verndari lífsins?
IÍVENNABLAÐIÐ
13