Eining - 01.06.1948, Síða 1

Eining - 01.06.1948, Síða 1
6. árg. Reykjavík, júní—júlí 1948. 6.-7. tbl. Þáttur Góittemplara í leikstarfsemi Reykjavíkur I Þjóðvinafélagsalmanakinu 1948 er löng ritgerð eftir Lárus Sigurbjörnsson og heitir hún, íslenzk leiklist eftir 1874. Þar koma templarar allverulega við sögu. Um þátttöku þeirra er þar sagt meðal annars þetta: „Eftir dauða Sigurðar Guðmundsson- ar málara 1874 dofnar mjög yfir leik- listarlífi í Reykjavík. Má heita, að skóla- piltar setji langhelzt svip á þessa hlið bæjarlífsins á árunum 1875 til 1888, þegar farið er að leika í Góðtemplara- húsinu, fyrsta leikhúsinu í Reykjavík með „fastri scenu“ (1891) . . . Bindindisfélag skólapilta var stofnað veturinn 1884—85 og beitti sér tvo næstu vetur fyrir sjónleikasýningum. Þaðan kom Sigurður Magnússon cand. theol., sem setti svip á leikarahópinn, meðan hans naut við. Þá er þess að minnast, að ýmsir þeir skólapiltar, sem léku í Nýársnóttinni 27. desember 1871, tóku meira og minna þátt í sjónleika- sýningum þessi árin. Auk Indriða Ein- arssonar, sem þarna lék, ber næst að nefna Guðlaug Guðmundsson, en hann tók mikinn þátt í sjónleikum Gleði- leikafélagsins í Glasgow 1885—87 og á Akureyri, eftir að hann var orðinn bæjarfógeti þar . . . Þeir sem stóðu fyrir sjónleikum bæj- armanna fram til 1897 voru þessir helztir: Helgi E. Helgason barnaskóla- stjóri 1874—81, Indriði Einarsson 1881 —86, Guðlaugur Guðmundsson 1886— 89, Ólafur Rósenkranz í leikfélaginu Thalía 1888—90, Indriði Einarsson í leikfélögunum í Góðtemplarahúsinu og Breiðfjörðshúsi veturinn 1890—95, Einar Benediktsson í Breiðfjörðshúsi veturinn 1895—96 og oftar . . . Veturinn 1885—86 hefst nýr þáttur í leiklistarlífi höfuðstaðarins. Þá bind- ast Góðtemplarar félagi til að koma af stað sjónleikum, þenna vetur og hinn næsta, nokkrir menn úr stúkunni Ein- ingin, og tóku þeir á leigu stóra sal- inn í verzlunarhúsinu Glasgow og sýndu þar leika sína. Fyrir þessu var mest Guðlaugur Guðmundsson, og lék hann sjálfur aðalhlutverkið í „Hinn ímynd- unarveiki“ eftir Moliere, en Toinette lék ungur piltur, Árni Eiríksson . . . Þáttur Góðtemplara hefst fyrir al- vöru, þegar Góðtemplarahúsið var reist. Vorið 1889 voru 4 enskir „gáskaleikar“ (farcer) sýndir þar í 11 kvöld, og skrif- aði Gestur Pálsson í ísafold meinleysis- lega um leikana. Um skeið starfaði þar reglulegt leikfélag, Leikfélagið Thalía, eða Leikfélagið í Góðtemplarahúsinu, eins og það var kallað út í frá. Þegar fram í sótti, seig félagið meir og meir á þá hliðina að sýna ómerkilegt létt- meti, skrípaleika og söngleika. Voru einkum eftirsóttir söngleikar eftir Erik Bogh eða Eirík Bauk, eins og fólkið nefndi þenna danska söngleikahöfund. Tvö ár valdi félagið samt virðulegri við- fangsefni, „Nýársnóttina“ 1891 og „Víkingana á Hálogalandi“ eftir Ibsen- 1892. Var það fyrsta sýning hér á landi á leikriti eftir norska skáldjöfurinn, og var mjög vel vandað til hennar. Indriði Einarsson var leiðbeinandi og hafði þýtt leikinn ásamt Eggert Ó. Briem“. Nokkru síðar í þessari ritgerð er svo vikið aftur að þátttöku Góðtemplara í leiklistarlífinu. Þar segir: „Leikfélögin í bænum voru þá orðin tvö og leikhúsin tvö. Hlaut nú að draga til tíðinda, enda fór svo. Bæði leikfé- lögin höfðu góðum kröftum á að skipa. Hjá leikfélaginu í Góðtemplarahúsinu hafði kornung stúlka, Stefanía Guð- mundsdóttir, byrjað að leika 1893 í ein- um af þessum smáleikum, sem félagið var svo iðið við. Þar lék líka Helgi Helgason verzlunarmaður í Hafnar- firði. Stúlkan varð háa spilið á hendi Góðtemplaranna, leikkonan tilvonandi, sem lengst komst í list sinni hér á landi. Annars hafði leikfélagið í Breiðfjörðs- húsi vinninginn, því að það náði bæði Kristjáni Ó. Þorgrímssyni og Árna Eiríkssyni frá Góðtemplarafélaginu, en hafði auk þess á að skipa mönnum eins og Sigurði Magnússyni og Ólafi Hauk Benediktssyni, og loks kom þar fram önnur stúlka, sem skipað hefur með sóma sinn sess í íslenzkri leiklist, Gunn- þórunn Halldórsdóttir . . . Fór því nú fram um sinn, að leik- félögin voru tvö í bænum og kapp á milli, en þá var fyrirhuguð bygging Iðnaðarmannahússins og gert ráð fyrir, að þar yrði leiksvið stærra og hentugra, en áður hafði þekkzt í bænum. Var það þá góðra manna ráð að sameina félögin, og tókst það að mestu fyrir milligöngu Þorvarðs Þorvarðssonar. Hið nýja fé- lag hlaut nafnið Leikfélag Reykjavíkur. Leikfélag Reykjavíkur var stofnað 11. janúar 1897. Þann dag voru félags- lögin undirrituð á stofnfundi af 19 kon- Frú Stefanía Guðmundsdóttir, sem Magda í „heimilið", eftir Hermann Sudermann.

x

Eining

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.