Eining - 01.06.1948, Page 4

Eining - 01.06.1948, Page 4
4 E I N I N G f Séra Þórður Ólafsson pséfasfus- Einn af mætustu klerkum landsins, séra Þórður Ólafsson, fyrrv. prófastur að Söndum í Dýrafirði, er nýlega héðan genginn. Hann var einn af stonefndum Stórstúku íslands og jafnan hinn ör- uggasti stuðningsmaður Reglu Góð- templara og bindindismálsins. Séra Þórður fæddist 24. apríl 1863 að Hlíðarhúsum í Reykjavík. Foreldrar hans voru Ólafur Guðlaugsson og kona hans Sesselja Halldóra Guðmundsdóttir. Hann tók stúdentspróf 6. júlí 1885, en embættispróf í guðfræði við prestaskól- ann í Reykjavík 24. ágúst 1887 og vígð- ist sama haust til Dýrafjarðarþinga. 1904 fékk hann veitingu fyrir Söndum í Dýrafirði og þjónaði þar sem prestur og prófastur Vestur-ísaf jarðarprófasts- dæmis, unz hann lét af því starfi og fékk lausn frá embætti, en það var 23. janúar 1929. Fluttist hann þá til Rvk og gerðist þar starfsmaður hjá stjórn- arráðinu um árabil. Kona séra Þórðar var María ísaks- dóttir. Þeim varð 7 barna auðið. Tvö dóu í bernsku, en á lífi eru: Vilborg og Sesselja, báðar giftar og búsettar í Reykjavík, Katrín, gift og búsett í Flat- ey á Breiöafirði, Sigurður tónskáld og skrifstofustjóri, og Óskar læknir. Séra Þórður Ólafsson andaðist 28. apríl s. 1., fjórum dögum eftir að hann varð 85 ára. Eins og ráða má af líkum um svo mætan mann, hafði hann gegnt ýmsum trúnaðarstörfum um dagana og verið góður liðsmaður menningarmála á ýmsum sviðum. Sem prestur í Dýra- firði vann hann lengi af mestu kost- gæfni og alúð að kristilegu félagsstarfi meðal æskumanna, og heilhuga liðsmað- ur í sveit bindindismanna var hann alla tíð. Hann flutti einmitt ræðuna við guðsþjónustu, þegar Stórstúka Islands var stofnuð í Alþingishúsinu í Reykja- vík, 24. júní 1886, og var eins og áður er sagt, einn af stofnendum hennar. Er nú aðeins einn af stofnendunum á lífi, Magnús Bjarnason fyrrv. próf. að Prestbakka á Síðu, V-Skaftafellssýslu. Séra Þórður var allt í senn, hið mesta ljúfmenni, drenglundaður og heill í hverju máli, fyrirmannlegur að vallar- sýn, mannvinur og traustur liðsmaður framfara- og menningarmála. Guðshyggja og vel- gengi Enski siðbótarmaðurinn John Wesley hélt því fram, að engin trúarhreyfing mundi halda áfram í fullu fjöri lengur en 30 ár, því að hlýðni við vilja Guðs, svo sem krafizt er af kristnum manni, mundi á þeim tíma leiða slíka velgengni yfir menn, er leiða mundi til þess að þeir gleymdu Guði sínum. (Heimild: Christian Science Monitor, 15. okt. 1937). Dómarabókin í biblíunni er ekki nema 30 blaðsíður, en margsinnis koma fyrir í bókinni þessar setningar: „En Israelsmenn gerðu enn af nýju það, sem illt var í augum drottins", og í hvert skipti fylgir sú saga, að þá hafi Israelsmenn verið ofurseldir óvinaþjóð og kúgaðir. En alltaf kemur fyrir aftur og aftur þessi setning: „Þá hrópuðu Israelsmenn til drottins“. Þótt hér væri ekki um sanna þjóðar- sögu að ræða, heldur aðeins skáldsögu, þá væri sannleikur hennar jafn mikil- vægur, nefnilega þessi: að alltaf, þegar þjóðir snúa sér frá því, að ástunda það, sem er gott og fagurt, satt og rétt, þeg- ar þær gleyma Guði sínum og aðhafast það, sem illt er fyrir augum hans, þá rata þær í raunir, styrjaldir og alls kon- ar ófarnað. En réttlátri breytni og dyggðugu líferni þjóða, fylgir velmegun og farsæld. Viðburðir síðustu áratuga sanna þetta, ef til vill bezt. Þjóðirnar gerðust fráhverfar allri guðshyggju, ýmist af- neituðu voldugar þjóðir guði algerlega, eða hinar afneituðu honum í verki, með því að gefa sig á vald léttúð, svalli og munaði, rangsleitni í viðskiptum, ódyggðum í fjölskyldulífi, embættis- störfum og vinnubrögðum, sviksemi í öllum myndum. Og hvernig hefur svo farið? Allir ætluðu að rífa allt til sín, en allir hafa svo misst allt. Hinar ægi- legustu þjáningar hafa farið í kjölfar fávizku þjóðanna og ókristilegs lífernis þeirra. Þar sat efnishyggja og nautna- hyggja að völdum í stað guðshyggju. Þjóðirnar afræktu Guð, og guðvana hafa þær lent í svaði eymdarinnar. Trú og frjálslyndi. Ef ég ætti um tvennt að velja, vildi ég heldur eiga efnilegan svein í þröngum stakki, en víðan stakk og ekkert í honum. Ef um aðeins tvennt er að velja, vil ég heldur búa við þróttmikið og siðbætandi trú- arlíf í fremur þröngu kenningakerfi, en inn- antómt og kallt frjálslyndi. f Séra Guðmundur Ein- arSSOn, prófasfatr Séra Guðmundur Einarsson prófast- ur var fæddur 8. sept. 1877 í Flekkudal í Kjós. Foreldrar hans voru Einar Jóns- son bóndi í Flekkudal og kona hans Úlf- hildur Guðmundsdóttir. Séra Guðmund- ur varð stúdent 1901, kandidat frá Kaupmannahafnarháskóla 1907. Hann var sóknarprestur í Ólafsvík, á Þing- völlum og á Mosfelli í Grímsnesi og prófastur bæði á Snæfellsnesi og Árnes- J sýslu. Séra Guðmundur bar það með sér að hann var kominn af þróttmiklu, mynd- arlegu og góðu fólki. Hann var stór maður og myndarlegur með fyrirmann- legt yfirbragð. Hann hafði góðar gáfur, ágæta menntun, meiri en títt er um presta, ágætt vit á bústörfum og at- vinnuháttum þjóðarinnar til lands og sjávar. Kom það skýrt fram í búrekstri hans sjálfs, hvar sem hann var. Hann var agætur og skyldurækinn prestur, einlægur og sívakandi þjónn heilagrar kirkju, og rækti öll embættis- verk með þeirri reglu og röggsemi, sem af bar. Hann var ágætur og virðulegur full- trúi í bindindismálum þjóðarinnar og prýði sinnar stéttar þar, eins og á öðr- um sviðum. En bezta og fegursta ein- kenni hans var það, hve góður maður hann var, hjartahreinn með óvenjulega f* miklum hæfileikum til þess að sameina stéttarbræður sína í sérhverju góðu og göfugu starfi, og á þeim dýrmæta vett- vangi hefur íslenzkt trúarlíf og þjóð- kirkjan orðið við fráfall hans, fyrir því skarði, sem seint mun fyllast jafnvel aftur. Blessuð sé minning hans. Jón Thorarensen. t * Á dögum þrælahaldsins máttu svert- ingjarnir sums staðar ekki fara með bænir upphátt. Þeir tjáðu þá tilfinn- ingar sínar í angurblíðum lögum. Kúg- arar þeirra þóttust vera kristnir.

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.