Eining - 01.02.1949, Blaðsíða 2
2
E I N I N G
V
hin sem skilja. Alls verða heimilin, sem
þannig fara á báða vegu um 1% milljón,
en alls eru í landinu meira en 35 millj-
ónir heimila. ,,Má því segja, að vel hafi
tekizt um flest hjónabönd“.
Þannig lýkur þessari lýsingu á bjart-
ari hliðinni við fjölskyldulíf í Banda-
ríkjunum. En hvernig er þetta hjá okk-
ur hér á landi. Vafalaust er mikill hluti
heimilanna góð heimili, þótt víðar séu
meinsemdir en ættu að vera. En óneit-
anlega stefnir uppeldi okkar og öll
skólamenntun ekki nógu markvist að
því, að búa unga sveina og svanna und-
ir mikilvægasta hlutskiptið í lífinu.
Við náum ekki Ameríkumönnum í
hjónavígslufjölda, 14 á 1000, en stönd-
um okkur þó sæmilega og erum á fram-
farabraut í því eins og ýmsu öðru. Ár-
in 1920—1940 vorum við ekki hálf-
drættingar við Ameríkumenn. Þá voru
hjónavígslur hjá okkur um 6 á hvert
1000 íbúa landsins, en síðari árin hafa
þær verið um 8 á 1000. Árin 1947 voru
hjónavígslurnar 1135 og það langhæst-
ar, sem undanfarin sagá þjóðarinnar
greinir.
Samt sem áður mætti segja: Herðið
ykkur ungu menn. Menntið ykkur vel
með hjúskap fyrir augum. Temjið ykk-
ur gætilega og hyggilega meðferð fjár-
muna, einnig bindindi og reglusemi í
hvívetna, gerið ykkur sem bezt hæfa
fyrir lífsstarfið, hvert sem það verður
og reynið að velja það sem yngstir.
Tryggið ykkur þannig atvinnu og góða
afkomu, og skilyrðið til þess að geta
stofnað heimili á unga aldri og séð vel
fyrir konu og börnum. Þannig tryggið
þið bezt gæfu ykkar og velferð þjóð-
arinnar að öllu leyti.
Þið megið ekki bregðast foreldrum
ykkar, ekki kynslóðinni, sem fær ykk-
ur fjöregg þjóðarinnar í hendur, ekki
kynslóðinni, sem á framvegis allt sitt
undir manndómi ykkar, og ekki ungu
snótunum, sem þrá mest af öllu að eign-
ast góð heimili, góðan mann, góð og
elskuleg börn og njóta hlýju og bless-
unar hins vel stjórnaða heimilis. Ef
þið bregðist þeim, þá sóið þið mestu
gæðum lífsins og dýrmætustu eign þjóð-
félagsins. — Munið nú þetta og reynist
menn.
Þetta segja þeir
Saville: ,,Að sjá drukkinn mann, er
betri viðvörun, en nokkur bindindispré-
dikun“.
Göthe: „Hinir heilögu guðir gáfu mér
dýrðlegt kvöld; ég hafði ekkert vín
drukkið, og augu mín gátu þess vegna
ótruflað notið náttúrunnar. í sannleika
dýrðlegt kvöld“. 1780 segir hann: ,,Ef
ég gæti rekið áfengið burt úr heimin-
um, þá væri ég sæll. Ég drekk sem stend-
ur ekkert af víni, og fer daglega fram
í skarpskyggni og vinnuþreki“.
ÁfenÞisómennmg íslendinra
amwsson
Eftii'farandi erindi háskólarektors
var flutt í Fríkirkjunni í Reykjavík 16.
nóvember 1948, í sambandi við fræðslu-
og skemmtikvöld templara, og sam-
kvæmt beiðni Stórstúku íslands og und-
irbúningsnefndarinnar.
Þótt ritstjóri Einingar, og sjálfsagt
flestir templarar, séu háskólarektor ó-
sammála um tvö atriði ræðunnar, fagn-
ar Eining því samt, að geta birt þessa
djarfmannlegu og ágætu ræðu, sem dr.
Alexander Jóhannesson g'óðfúslega flutti
sem rektor Háskóla íslands. — Ritstj.
Bindindisfrömuðir þessa lands, með
Stórstúkuna í fararbroddi, hafa ákveð-
ið að hefja nokkurs konar herferð gegn
áfengisómenningu íslendinga og hafa
beðið mig sem núverandi háskólarektor
að taka hér til máls. Ég tel mér skyldu
að verða við þessari beiðni, þar eð mér
er falin forsjá 530 stúdenta, er margir
eiga eftir að verða leiðsögumenn þjóð-
arinnar í ýmsum mikilsverðum embætt-
um. Er því mikils um vert, að reynt
sé að leiðbeina þeim eins og öllum upp-
vaxandi æskulýð, er á að erfa þetta land
og gæta þess, sem áunnizt hefur á und-
anförnum árum og öldum. I hinni löngu
sjálfstæðisbaráttu Islendinga hafa
margir hnigið í valinn fyrir aldur fram,
þreyttir af að heyja baráttu, sem um
langt skeið virtist vonlítil eða vonlaus.
En án hinna mörgu baráttumanna á
ýmsum tímum hefði sjálfstæðisbarátta
Islendinga ekki verið leidd til lykta á
jafn farsælan hátt og varð og það mun
verða ævarandi gleði þeirra, meðan líf
endist, sem tóku þátt í atkvæðagreiðsl-
unum í maí 1944, að þeim skyldi verða
slík hamingja léð að hafa lifað á þess-
um tímamótum. 17. júní 1944, urðu
þáttaskipti í sögu þjóðarinnar og vér
göngum nú fram hinn ókunna veg fram-
tíðarinnar. Vér fihnum og skynjum, að
rík skylda hvílir á herðum okkar allra,
að styrkja og treysta þann grundvöll,
er hefur verið skapaður, og reyna af
fremsta megni að vinna að hvers konar
framförum, svo að hér geti búið ham-
ingjusöm þjóð í frjálsu landi. Vér verð-
um að sjá fótumvorumforráðogtreysta
hinn fjárhagslega grundvöll ríkisins,
svo að tekjur og gjöld ríkisins stand-
ist á að minnsta kosti og helzt sé vara-
sjóður fyrir hendi, er hægt sé að grípa
til í slæmu árferði eða þegar rýrnun
verður á þjóðartekjunum og haga okk-
ur eins og hygginn og forsjáll bóndi
myndi gera. Vér getum e. t. v. sagt,
að þetta sé hlutverk ríkisstjórnarinnar
og þingmanna vorra, en þeir eru einskis
megnugir í þessum efnum, ef þeir hafa
ekki þjóðina að baki sér. Hver og einn
okkar vérður að gera sér ljóst, að oss
ber að styðja alla góða viðieitni þings
og stjórnar. Ef eitthvað fer aflaga í
þessu þjóðfélagi, og það er margt, eig-
um vér, borgarar ríkisins, mikla sök á
þessu. Vér gleymum því oft, að hagur
heildarinnar, ríkisins eða stofnunarinn-
ar, er vér vinnum fyrir, verður alltaf
að sitja í fyrirrúmi fyrir eigin hags-
munum, ef vel á að fara. Hér hafa f lest-
ar eða allar stéttir þjóðfélagsins mynd-
að með sér stéttasamtök og gert há-
værar kröfur, oft með verkföllum, til
þess að knýja fram kjarabætur, án þess
að líta á hag heildarinnar, eða athuga
hvort þjóðfélagið eða stofnunin væri
þess megnug að verða við þessum ósk-
um. Ef tekizt hefur að knýja þær fram,
hefur heil röð annarra stéttasamtaka
siglt í kjölfarið og gert svipaðar kröf-
ur og síðan hefur ný aðferð byrjað, ný
umferð á auknum kröfum sér eða sinni
stétt til handa. Ég þarf ekki að lýsa
fjárhagsástandi þjóðarinnar eins og
það er i dag. Ég þarf ekki að skýra
frá þeim mikla sæg alls konar nefnda,
er kosta ríkið offjár. Ég þarf ekki að
minnast á hin sívaxandi útgjöld ríkis-
sjóðs og að oss öllum er ljóst, að til
ófarnaðar leiðir, ef ekki verður snúið
við og gagnger endurskoðun fari fram
á öllum útgjöldum ríkisins. Hér hafa
verið reistar íbúðir að sögn á síðustu
4 árum fyrir 1000 millj. króna eða 1
milljarð og svo virðist sem þjóðin lifi
enn hamingjusömu lifi við-góð launa-
kjör og njóti flestra þeirra ytri gæða,
sem hægt er að veita sér. En þetta er
ekki nema stundarfyrirbæri og hér get-
¥
4