Eining - 01.02.1949, Page 13

Eining - 01.02.1949, Page 13
p V E I N I N G 13 Nýjasti skólinn Hvor setningin er betri ?: Hvað er betra í slæmu veðri en góð bók? eða: „Hvað er betra en góð bók i slæmu veðri?“ Þannig var auglýsingin. „Lifrin hefur inni að halcla flest þau efni“, eða: I lifrinni eru flest þau efni? Athugið orðaröðina, sem hér fer á eftir. „Fyrir nokkru útskrifaðist frú Kosenkina, rússneska kennslukonan, sem kaus heldur að fleygja sér út um glugga á þriðju hæð í húsi, en að hverfa aftur til Rúss- lands, úr sjúkrahúsi”. Fólk, sem ferðast með bifreiðum stanzar aldrei, en ,,stoppar“ víða, og þegar það greiðir fargjöld sín, þá skiptir það ekki peningum sínum, en „býttar“ þeim, kaffi drekkur það „í eftirmiðdag, korter fyrir fjögur“, og „hef- ur það“ svo ýmist gott eða slæmt, en líður aldrei hvorki vel eða illa, og ef eitthvað þarf að jafna á milli manna, þá fara þeir til ,,viðræðna“. Múglífið er heimskandi, múglífið er sefjandi. Það örv- ar til hugsunarleysis, en eftirhermur og óvandað málfar er sjúkdómseinkennið. Unglingurinn segir írd Eftirfarandi grein birtist í Bliki, riti gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum, 9. árgangi. Á að bjóða æskulýð landsins slíkar skemmtanir, sem hér er sagt frá ? „Ég minnist hryllingsins og viðbjóðs- ins, sem gagntók mig eitt sinn, er mér varð reikað til veitingatjalds „Þjóðhá- tiðarinnar“ eina nótt á þriðja tíman- r.m. Þar gat að líta eitthvað það aum- r.sta og mest niðurlægjandi ástand, sem nokkur maður getur séð. í einu horn- inu sat maður dauðadrukkinn og hélt á tómri flösku í hendinni. Við borðin sátu menn á stangli í svipuðu ástandi, lágu fram á hendur sér sofandi og ó- sjálfbjarga. Aðrir, ekki alveg ,,dauðir“, voru að súpa dreggjarnar úr pelunum sínum, hentu þeim síðan frá sér með blóti og formælingum og hófu ,,söng“ eða ráku upp öskur endur og eins til þess að lífga sig við. Á miðju gólfinu og upp við eina tjaldsúluna hölluðust nokkrir menn og héldu hver utan um annan sér til stuðn- ings og ráku upp ámátleg vein, sem átti víst að heita söngur. Út við dyrnar undir borði lá maður með kápu yfir sér. „Nei, hættu nú, drengur!“ Ég var búinn að sjá nóg. Ég gekk út og fyrir eyrum mér hljómaði söngur þess- ara vesalings manna. Mér fannst ég vera við jarðarför og verið væri að grafa þessa menn. En hvað var nú þetta? Ég datt um eitthvað. Jú, ég hafði reikað í þessum hugsunum mínum inn á milli tjaldanna og hafði dottið um fætur manns, sem lá þarna úti á jörðinni meðal annarra. Ég gekk þangað, sem bifreiðarnar staðnæmast. Við og við mæti ég hópi af strákum, sem halda hver um herðar annars og slaga til og frá og há-„syngja“ eða orga. Ég mæti konu, sem er að bisa við að koma manni sínum heim í tjald eða hver veit hvert. Ég fór heim til að sofa. Fyrst lá ég lengi andvaka og hugsaði um allt böl áfengisins. Ég bað guð að varðveita mig frá þessari eymd. Út frá þeim hugsunum sofnaði ég. Th. G. III. h. María drottning blóðuga Enskur rithöfundur segir, að hrollur fari um flesta, er þeir heyri nefnt nafn þessarar drottningar. Hún ofsótti mjög mótmælendui' og úthellti blóði þeirra. En hvernig var uppeldi hennar? Hún var efnilegt barn, gædd góðum hæfi- leikum, elskaði og stundaði hljómlist, var tekin að skemmta gestum, er hún var fjögurra ára, talaði latínu níu ára og fékk hrós fyrir. Svo kom áfallið. Hún var aðeins ellefu ára þegar faðir hennar, Hinrik áttundi, vildi losa sig við móður hennar, Katrínu. Vai'ð María þá að halda því fram nauð- ug, að hún væri ekki hjónabandsbarn. Við tóku erfið ár niðurlægingar og ein- stæðingsskapar. Ef til vill getur enginn maður afsak- að illa breytni sína, en miklu valda þeir, sem leggja grundvöllinn að upp- eldi einstaklinganna og kynslóðanna. Hver skrifar þann reikning réttlátlega? Margur glæpamaðurinn hefði getað oi'ðið góðmenni, ef hann hefði fengið heppilega leiðsögn á réttum tíma og það uppeldi, sem sáir mannkærleika í sálir manna. Búnaðarbanki Islands StofncuUir me3 löginn 14. júní 1929. Kaupið timbur Bankinn er sjálfstæð stofnun undir sérstakri stjórn og er eign ríkisins. — Trygging fyrir innstæðufé er ábyrgð ríkissjóðs auk eigna bankans sjálfs. og ýmsar aðrar byggingavörur Bankinn annast öll innlend bankaviðskipti, tekur fé á vöxtu í sparisjóði, hlaupareikningi og viðtöku- skírteinum. — GreiSir hœstu innlánsvexti. hjá stærstu timburverzlun landsins ASaláSsetur í Reykjavík: Austurstræti 9. Timburverzlunin VÖLUNDUR h.f Útibú á Akureyri. Reykjavík ♦

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.