Eining - 01.10.1949, Side 6
6
EINING
4
Útisamkoma við höfnina.
Séra Valdimar Eylands er í ræðustólnum.
bæitum stjórnmálum. Þriðja blaðið,
sem hér hefur verið gefið út, er Eldeyj-
an. Utgefandi, eigandi, ábyrgðarmaður
og ritstjóri er Helgi S. Jónsson, forstjóri.
Blað þetta er meira í stíl dag- eða viku-
blaða en hin tvö, og því mun einna helzt
vera ætlað að vera samvizka eða sam-
vizkubit leiðandi manna hér. Aðeins ör-
fá tölublöð hafa komið af Eldeynni. Hér
er starfandi deild úr Fél. ísl. frístunda-
málara, tóku 4 þeirra þátt í sýningu,
sem fram fór nýlega í Reykjavík. —
Þá cru menn ljóðhagir hér sem annars
scaoar á landinu, en ekki hef ég né aðr-
ir tölu á hve margir þeir eru, sem ort
gcta. Fleiri listgreinar hafa og skotið
hér upp höfði, s. s. leiklist. En leikstarf
heíur verið hér um mörg ár, einkum á
vegum stúknanna og Ungmennafélags-
ins, og hefur það jafnan verið einn helzti
þáttur skemmtanalífsins hér. — Um
skemmtanalífið væri gaman að ræða
allícarlega, en það er, að mínum dómi,
spegilmynd af menningu hvers staðar á
hverjum tíma.
Það eru mörg ár síðan að dansleikir
í Keflavík voru orðlagðir fyrir vín-
drykkju og slagsmál. Bæði þessi fyrir-
brygði, sem eru næsta óaðskiljanlegir
fcrunautar, hafa mér virzt mjög algeng
72 ára sundncmi í Iieflavik.
í verstöðvum landsins, og eru, ef til vill,
dálítið afsakanleg, þegar tekið er tillit
til þess, að þangað safnast saman ung-
ir og hraustir menn úr öllum landshlut-
um með mismunandi sjónarmið, en oft
sömu metnaðarmál, og fláræði er fjarri
sjómannseðlinu. Eg ætla ekki að halda
því fram, að hætt sé að drekka og slást
á dansleikjum hér, en mér er nær að
halda, að hvort tveggja hafi minnkað
verulega.
Annars má segja, að skátarnir hafi
verið brautryðjendur nýrrar tækni í upp-
setningu skemmtana. Þeir hafa 12—15
stutt atriði, en mjög hraðar skiptingar,
og þó að hvert atriði sé ef til vill ekki
mikils virði né risti djúpt, þá verður
heildarsvipurinn listríkur og skemmti-
legur. Auk þess er það uppeldisfræði-
legur áviningur að fá sem flesta í starf
og sá grundvöllur, sem allt skátastarf
hvílir á.
Kvikmyndir eru mikið sóttar. Undan-
farin ár hafa verið hér tvö kvikmynda-
hús, en annað þeirra brann í vetur. Nú
eru 8—10 sýningar vikulega í Bíó-höll-
inni, en hún tekur hátt á fimmta hundr-
að manns í sæti.
íþróttastarf hefur farið ört vaxandi á
síðustu árum, og er það eingöngu á veg-
um UMFK.
Skátar í Keflavík.
Keflavík er ekki auðug af fornum
minjum eða sérkennum. Þó er hér einn
sá hlutur, sem ég hygg að sé einstæð-
ur hér á landi, en það er ,,17. júní
stöngin”. Það er ákaflega mikil flagg-
stöng úr steinsteypu og járni. Framan
á fótstallinum er upphleypt mynd af
Jóni Sigurðssyni, en landvættirnir eiga
að prýða horn stallsins. Á ,,17. júní
stönginni“ er fáni dreginn að hún aðeins
einu sinni á ári — á þjóðhátíðardegi
vorum. Umhverfis stöngina á að koma
minja og skrúðgarður og hefur hann
verið skipulagður í aðalatriðum, en
framkvæmdir ekki hafnar, svo að enn
er þar autt svæði, sem um nokkurt skeið
hefur verið notað sem íþróttaleikvang-
ur. Þangað hópast fólkið 17. júní og
fáninn er dreginn að húni stangarinn-
ar með mikilli viðhöfn. Þó stöngin
standi lágt, gnæfir hún yfir alla byggð-
ina og fáninn sést alls staðar að úr bæn-
Keflvíkingar stunda íþróttir.
Sjúkrahúsið i baksýn.
um. Undir fána ,,17. júní stangarinnar"
sameinast hugir allra, sem þjóðlegheit-
um og vorum unga bæ unna.
Að endingu vil ég geta þeirra, sem
forustu hafa um andlega, veraldlega og
líkamlega heilbrigði Keflvíkinga. I bæj-
arstjóraembættið verður ekki ráðið fvrr I*
en að ári, en Ragnar Guðleifsson, odd-
viti, fer með vald hans. Alfreð Gíslason,
sem hér var lögreglustjóri, hefur hækk-
að í tign og orðið bæjarfógeti. Karl G.
Magnússon er hér héraðslæknir eins og
áður og séra Eiríkur Brynjólfsson á Ut-
skálum er sóknarprestur.
KYNNINGARKVÖLD AÐ JAÐRI
Umdæmisstúkan nr. 1 gekkst fyrir
skemmti- og kynningarkvöldi að Jaðri, \
sunnud. 18. s. 1. Hópar komu sunnan með
sjó og austan yfir fjall. Við kaffiborðið
sátu yfir 200 manns og hafði aldrei áður
verið svo þéttskipað í hinum vistlega sam-
komusal Jaðars. Efnisskrá kvöldsins var
ræða, kórsöngur, píanóeinleikur, upplestur,
kvikmyndasýning og svo auðvitað dansinn.
Stórtemplar, séra Kristinn Stefánsson,
flutti ræðuna, sem Eining birtir ef til vill
síðar.
Templarar kunna vel við sig að Jaðri. 1
sambandi við síðasta stórstúkuþing var *
þar mjög myndarleg veizla, sem gleymst
hafði því miður, að geta um í frásögn síð-
asta blaðs af stórstúkuþinginu. Þingstúka
Reykjavíkur bauð, fyrir hönd stúknanna í
Reykjavík, öllum fulltrúum og gestum stór-
stúkuþingsins, til matarveizlu að Jaðri. —
Undir borðum sátu yfir 170 manns. Fjór-
réttaður matur var fram borinn og verður
það að segjast hlutaðeigendum til verðugs
hróss, að hann var óaðfinnanlegur, ljúf-
fengur og fyrsta flokks í alla staði. Jafn-
vel kaffið var gott, sem oft er allt annað
á veitingahúsum. Ýmislegt var til fróðleiks
og skemmtunar. Felix Guðmundsson talaði
frá hálfu Stórstúkunnar, þar sem stór-
templar gat ekki mætt sjálfur. Alfreð Gísla-
son læknir flutti stutt erindi og margir
fulltrúanna og gesta tóku til máls undir
borðum, en Árni Helgason, sýsluskrifari í ^
Stykkishólmi, skemmti svo myndarlega að
flestir eða allir hlógu sér til heilsubótar
um langa stund.
Samsætið var í alla staði hið bezta.
♦