Eining - 01.10.1949, Blaðsíða 11

Eining - 01.10.1949, Blaðsíða 11
V EIN ING 11 > 4 4 © En tala þú það, sem sæmir hinni heilnæmu kenningu, að aldraðir menn séu bindindissamir, siðprúðir, hóglátir, heil- brigðir í trúnni, kærleikanum og þolgæðinu. Svo eiga og aldr- aðar konur að vera virðulegar í háttalagi sínu, ekki rógberar og ekki heldur í ánauð ofdrykkjunnar, heldur kenni gott frá sér, til þess að þær laði hinar ungu til að elska menn sína, börn sín, vera hóglátar, skírlífar, heimilisræknar, góðlátar, eiginmönnum sínum undirgefnar, til þess að orði Guðs verði ekki lastmælt. Svo skalt þú og áminna hina yngri menn að vera hóglátir, og sýn þig sjálfan í öllum greinum sem fyrir- mynd góðra verka, sýn í kenningunni grandvarleik og virðu- leik, — heilnæmt orð, óákæranlegt, — til þess að andstæð- ingurinn fyrirverði sig, þegar hann hefur ekkert illt um oss að segja. . . . r Því að náð Guðs hefur opinberast sáluhjálpleg öllum mönn- um, og kennir hún oss að afneita óguðleik og veraldlegum girndum, og lifa hóglátlega, réttvíslega og guðrækilega í heimi þessum, bíðandi hinnar sælu vonar og dýrðar-opin- berunar hins mikla Guðs og frelsara vors Jesú Krists, sem gaf sjálfan sig fyrir oss, til þess að hann leysti oss frá öllu ranglæti, og hreinsaði sjálfum sér til handa eignarlýð, kost- gæfinn til góðra verka. Títusarbréfið, 2, 1—14. Árbék sjémasma- ©g gestaheimiXis Þetta er 9. ár Sjómanna- og gestaheim- ilisins, sem árbókin segir frá. Tilhögun heimilisins var öll hin sama og undan- farin ár, en þó tók það til starfa þrem vikum fyrr, en árið áður, eða 4. júní og starfaði til 28. september. Stúkan Framsókn nr. 187 starfrækti heimilið og hefur annast um það frá byrjun. Frú Lára Jóhannsdóttir og Páll Jónsson, starfsmaður Stórstúku Islands, veittu heimilinu forstöðu. Annað starfs- fólk var: Rósa Viggósdóttir, Laufey Pálmadóttir, Þórunn Pálsdóttir, Sigríð- ur Hermanns, Sigrún Ásgrímsdóttir og Anna Sigmundsdóttir. — Stjórn heim- ilisins er hin sama og undanfarin ár: Pétur Björnsson kaupmaður, sára Ósk- ar Þorláksson og Andrés Hafliðason kaupmaður. Aðsókn að heimilinu var með mesta móti og var gestafjöldinn 31545 og voru það aðallega sjómenn og aðkomu- fólk á Siglufirði. Heimilið naut sömu styrkja og undanfarin ár frá ríkissjóði, Siglufjarðarbæ og Síldarútvegsnefnd og Stórstúku íslands, en auk þess fékk það 15000 kr. frá Happdrætti templara. — Gjafir bárust því frá 37 gefendum, skipshöfnum, fyrirtækjum og einstök- um mönnum. Stærsta gjöfin var frá Haraldi Böðvarssyni og Co. á Akranesi. Bókagjafir hafa heimilinu borizt frá bókaútgefendum og einstökum mönn- um, og eru þaér vel þegnar og þakkað- ar. Á starfstímabilinu voru lánuð 1255 bindi bóka, en alls á safnið 1900. Stúkan Framsókn hefur lagt heimil- inu margvíslega þjónustu og sérstaklega hefur hún aflað því tekna með mikilli leikstarfsemi, og er þetta starf hennar allt hið myndarlegasta og nýtur viður- kenningar þjóðarinnar og þakklætis. Um húsnæðismál heimilisins segir svo í árbókinni: Eins og getið hefur verið um í fyrri skýrslum, eru húsakynni sjómannaheimil- isins að verða of þröng vegna vaxandi að- sóknar. Stjórn heimilisins hefur unnið að því undanfarin ár, að fá heppilega lóð. — Einnig hefur hún lagt allmikinn kostnað í teikningar vegna hinnar fyrirhuguðu byggingar. Nú hafa glœðzt vonir um, að til framkvæmda geti komið í þessu máli, með því að heimilið hefur orðið aðnjótandi höfðinglegrar gjafar, — afnotaréttar þriggja lóða á svonefndu Sigurjónstúni hér í bænum. Gefendur tveggja þessara lóða voru frúrnar Eyþóra og Hólmfríður Sigurjóns- dætur, en þriðju lóðina gáfu þær og bræð- ur þeirra, þeir Páll S. Dalmar, Sigurjón og Jóhann Sigurjónssynir. Áttu systkinin þá lóð öll sameiginlega. Lóðirnar eru gefnar til minningar um foreldra þeirra, frú Kristjönu Bessadóttur og Sigurjón Bene- diktsson. Þá hafa þessir þrír bræður selt sjómannaheimilinu þrjár lóðir á sama túni, og er andvirði þeirra ætlað til myndunar minningarsjóðs um foreldra þeirra. Sjóðn- um er ætlað að styrkja aldraða siglfirzka sjómenn til dvalar á hinu nýja sjómanna- heimili, ef þar verður stofnuð slík dvalar- deild, en ella til dvalar á dvalarheimili aldraðra sjómanna í Reykjavík. Þau skil- yrði fylgja umræddum gjöfum, og sölu, að túnið verði eingöngu hagnýtt sem bygg- ingarlóð undir hina fyrirhuguðu Sjómanna- heimilisbyggingu. Stjórn heimilisins hefur þegar leitað samþykkis bæjarstjórnar Siglufjarðar til þess að koma fyrirhugaðri byggingu sinni upp á þessum lóðum, og ef það samþykki fæst, verður vonandi ekki langt þess að bíða, að hér rísi upp mynd- arlegt sjómannaheimili, svo að hægt verði að bjóða sjómönnum okkar í vistleg og þægileg húsakynni. Landssamband blandaðra kóra. Landssamband blandaðra kóra — L. B. K. — hélt 10. ársþing sitt dagana 18. og 19. júní. Þingið sóttu 11 fulltrúar, 4 félaga- formenn og 5 söngstjórar, svo og stjórn sambandsins. — Frá tveim sambandskór- um kom enginn á þingið og frá einum að- eins söngstjórinn. Þingforseti var kjörinn Kristmundur Þorleifsson, en ritarar Ágúst H. Pétursson og Steindór Björnsson. Á þessu liðna starfsári varð sambandið 10 ára — eins og kunnugt er — og var hald- ið upp á það hér í Reykjavík, með kynn- ingarsamkomu, á afmælisdaginn 5. des. síðastl. Þá kom loksins út seint á starfsárinu 1. hefti af Söngvasafni L. B. K. — Gaf bóka- útgáfan „Norðri“ heftið út að tilhlutun L. B. K., sam þegar keypti hluta af upp- laginu, samkv. samningi, og lætur síðan sambandskórana fá heftið með sérstökum vildarkjörum, sem er félögunum óbeinn starfsstyrkur. Þá fengu 5 sambandskórar styrk vegna söngkennslu, 70% af tilkostnaði, alls kr. 7938,00. Samkvæmt skýrslu ritara eru sambands- kórarnir 9 með 323 skráðum félagsmönn- um. Á starfsárinu hélt stjórnin 12 fundi, sem skráðir voru. Á þinginu voru rædd mörg mál, sem sam- bandið og sambandsfélögin varðar, og ályktanir samþykktar í þeim flestum. Þær verða sendar sambandsfélögunum, með sér- stöku bréfi, þar sem þær eru allar innan- sambands mál. Á síðasta þingfundi fóru fram kosningar samkvæmt sambandslögunum. í stjórn voru kosnir: Eðvald B. Malmquist, formaður, Steindór Björnsson, ritari, og Ágúst H. Pétursson, gjaldkeri. í varastjórn: Gísli Guðmundsson, formaður, Tómas Á. Jónasson, ritari, og t

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.