Eining - 01.10.1949, Side 12

Eining - 01.10.1949, Side 12
12 E I N I N G Af engum er eins gott að læra og hinum sönnu mikilmennum, sem eru ljómandi fyrirmyndir allra kynslóða. Og ekkert er nytsamara að læra en lifnaðarvenjur þeirra. í bókinni, How to stop worry- ing, segir Dale Carnegie þetta um Abraham Lincoln: „Ef til vill hefur ekki nokkur mað- ur í sögu Ameríku verið svo hataður og borinn óhróðri og andmælum sem Lincoln, en samkvæmt hinni sígildu ævisögu hans eftir Herndon, „dæmdi Lincoln aldrei um menn eftir því, hvort þeir voru honum geðfeldir eða ekki. Hann gerði sér ljóst, þegar um eitthvert ákveðið starf var að ræða, að andstæðingar hans geta leyst það af hendi engu síður en aðrir. Væri maðurinn vel hæfur til starfsins, gat Lincoln veitt honum stöðuna, engu síður en vini sínum, þó sá hinn sami hefði verið honum fjandsamlegur og komið illa fram gagnvart honum. . • Eg held, að hann hafi aldrei svift nokkurn mann embætti eða stöðu vegna þess, að maðurinn væri and- stæðingur hans eða honum ógeðfelld- ur“. Lincoln var svívirtur og fyrirlitinn af mönnum, sem hann hafði hafið til valda, mönnum eins og McClellan, Seward, Stanton og Chase. En sam- kvæmt vitnisburði Herndons, sam- verkamanni hans í lögfræðistarfinu, „skyldi enginn maður dæmdur eða vegsamaður eingöngu út frá því, hvað hann gerði eða lét ógert“, því að „allir erum við afkvæmi uppeldis, umhverfis, rótgróinna lífsvenja, at- vika, ástæðna og erfða, sem ávallt hafa mótað og munu móta menn“. „Sennilega hafði Lincoln rétt fyrir sér“, segir Dale Carnegie ennfrem- ur. „Ef við hefðum erft sams konar líkama, andlega og sálarlega eigin- leika og andstæðingar okkar, og ör- Iögin hefðu verið okkur hin sömu og þeim, hefðum við sjálfsagt breytt eins og þeir. Oðruvísi gat það ekki farið. Clarence Darrow (einn fræg- asti málafærslumaður Ameríku) sagði oft: „Að þekkja allt er að skilja allt, og þá kemst enginn dómur eða fordæming að“. Við skulum vor- kenna og fyrirgefa óvinum okkar í stað þess að hata þá. Og heldur en að ausa yfir þá fordæmingu og illyrð- um, ættum við að auðsýna þeim sam- úð og skilning, reyna að hjálpa þeim, fyrirgefa þeim og biðja fyrir þeim. Eg ólzt upp í fjölskyldu, er hafði þann sið að lesa í ritningunni eða að hafa yfir ritningargrein og krjúpa svo niður til bænagerðar á hverju kvöldi. Mér er sem eg heyri enn föður minn hafa yfir þessi orð Jesú: „Elskið óvini yðar, gerið þeim gott, sem hata yður, blessið þá, sem bölva yður, og biðjið fyrir þeim, er sýna yður ójöfnuð“. Faðir minn reyndi að lifa sam- lcvæmt þessari kenningu, og það veitti honum slíkan sálarfrið, sem konung- ar og maktarmenn oft hafa leitað ár- angurslaust. . . . Reynum aldrei að ná okkur niðri á andstæðingum okkar, því að slíkt skaðar okkur meira en þá. Förum heldur að dæmi Eisenhowers her- foringja: Eyðum aldrei einni mínútu í að hugsa um þá menn, sem eru okk- ur óge8felldir“. Menn, sem fylgdu fordæmi Abra- hams Lincolns og hinni fögru kenn- ingu Krists, mundu flestir kjósendur vilja senda á þing. Að læra slíkt, er þyngsta námið í reynsluskóla lífsins. i 1 Bent Bjarnason, gjaldkeri. Endurskoðendur: Jón G. Halldórsson og Haraldur Leónharðsson. Vara-endurskoðandi: Númi Þorbergsson. Söngmálaráð: Jónas Tómasson, dr. Victor v. Urbantschitsch og Páll Kr. Pálsson. 1 L. B. K. eru nú þessi félög: Kantötukór Akureyrar, stofnaður 1932. Söngstjóri (alla tíð): Björgvin Guðmunds- son. Undirleikari: Lena Otterstedt, frú. — Stjórn nú: Jón Júl. Þorsteinsson, kennari, form., Jónas Thordarson, Helga Jónsdóttir, Höskuldur Egilsson og Kristján Rögnvalds- son. Kirkjukór Borgarness, stofnaður forml. 24. marz 1942. Söngstjóri: Halldór Sigurðs- son, organisti: Stefanía Þorbjarnardóttir. Stjórn nú: Símon Teitsson, form., Sigurð- ur Guðsteinsson, Gestur Kristjánsson, Guð- björg Ásmundsdóttir og Karl E. Jónsson. Samkór Reykjavíkur, stofnaður 23. febr. 1943. Söngstjóri: Páll Kr. Pálsson. Stjórn: Gísli Guðmundsson, tollþj., form,. Magnús Þorvarðsson, Valdimar Leónharðsson, Árni Pálsson og Aðalheiður Sigurðardóttir. Sunnukórinn á ísafirði, stofnaður forml. 25. jan. 1934. Söngstjóri (alla tíð): Jónas Tómasson. Undirleikari: Ragnar H. Ragn- ars. Stjórn: Ólafur Magnússon, framkv.stj., form., séra Sigurður Kristjánsson, Sigurð- ur Jónsson, Jóhanna Jóhannsdóttir John- sen, frú, og Margrét Finnbjarnardóttir, frú. .. Söngfélagið „Harpa“, Reykjavík, stofnað 22. jan. 1938. Söngstjóri: Jan Moravek. — Stjórn: Reinhardt Reinhardtsson, form., Guðm. H. Gunnlaugsson, Guðm. Bjarnason, Ágúst H. Pétursson, Margrét Bjamadóttir og Ásta Jónsdóttir. Söngfélagið „Húnar“, Reykjavík, stofnað 27. jan. 1942. Söngstjóri Garðar G. Víborg. Stjórn: Björn Helgason, form., Marínó Helgason, Gunnhildur Friðfinnsdóttir, Hulda Friðfinnsdóttir og Dýrmundur Ól- afsson Söngfélag I. O. G. T., Reykjavík, stofnað 20. nóv. 1932 Söngstjóri: Ottó Guðjónsson. Stjórn: Jóhannes G. Jóhannesson, hljóð- færaviðgerðarm., Númi Þorbergsson og Hálfdán Brandsson. Tónlistárfélagskórinn, Reykjavík, stofn- aður 24. nóv. 1943. Söngstjóri: dr. Victor v. Urbantschitsch. Stjórn: Ólafur Þor- grímsson, hæstaréttarlögm., form., Baldur Pálmason, Sveinbjörn Þorsteinsson, Ágústa Andrésdóttir og Þórunn Þorsteinsdóttir. Vestmannakórinn, Vestmannaeyjum, — stofnaður forml. 1937 (en til óformlegur frá 17. júní 1911). Nú söngstjóralaus. For- maður Sveinn Guðmundsson, forstjóri. — (Gaf ekki fullkomna skýrslu nú). GETULEYSIÐ OG HEIMSKAN Getuleysið með fálm og fát, fleiprar stamandi já og nei. Heimskan er málóð og mikillát, masar um flest, sem hún skilur ei. P. S. VIÐSKIPTAKÆNSKA Ef þú í nýtízku konu þér krækir, hún kann sig að snyrta og allvel það rækir, en málaðar varir þú verður að kyssa og venjast, þótt litinn þær kunni að missa, því nútímaviðskiptum kænskan er kunn, og konurnar bjóða sinn litaða munn. P. S. ★ GlSLI SIGURBJÖRNSSON, gjaldkeri áfengisvarnarnefndar Reykjavík- ur, hefur nú sagt sig úr nefndinni. Hefur honum sjálfsagt þótt sækjast seint að fá fé til framkvæmda, en Gísli vill láta eitt- hvað gerast og ganga, og sé nefndin þar á bak einum sínum bezta manni. Framh. af bls. 9. sagt þar frá samkomu, þar sem aðeins eitt þúsund manna, af þrem til fjórum þúsundum, voru algáðir. Þetta er nú skuggahliðin. Hún er hryggileg, en gleðjast ber yfir sigurvinn- ingum og öllu því, er miðar í rétta átt. I Reglunni fjölgaði um 7000 árið, sem leið, um heim allan. ► * i

x

Eining

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.