Eining - 01.11.1950, Blaðsíða 2
2
EÍNING
Norræna bindindisþingið í Helsingfors
Brynleifur Tobíasson, yfirkennari við
Menntaskólann á Akureyri, segir hér frá
för sinni til Finnlands og hinu merka
norræna bindindisþingi í Helsingfors.
Samtök bindindismanna á Norður-
löndum eru nú orðin 55 ára gömul.
Haldin hafa verið alls 18 bindindis-
þing norræn, 4 í Danmörku, 1 í Eist-
landi, 3 í Finnlandi, 5 í Noregi og 5 í
Svíþjóð. Á þingum þessum er ger grein
fyrir bindindisstarfsemi og bindindis-
málalöggjöf á Norðurlöndum. Erindi
eru flutt um sitt hvað á vettvangi bind-
indismála, og fulltrúar bindindissamtak-
anna bera saman ráð sín á því sviði.
Eru þing þessi því bæði fræðandi og
örvandi fyrir þá, sem sækja þau. Eru
þau einnig tengiliðurinn milli bindindis-
félaganna í norrænu löndunum. —
íslendingar hafa sótt þessi þing reglu-
lega síðustu þrjátíu árin. Því var það
sumarið 1947, að fulltrúar þeir, sem
sátu bindindisþingið í Stokkhólmi af
hálfu Islands, töldu tíma til kominn að
bjóða norrænu bindindissamtökunum
þinghald á íslandi. Var boðinu mjög vel
tekið, en ekki þótti fært að ákveða
bindindisþing í Reykjavík 1950 alveg
fyrirvaralaust. Boði finnsku fulltrúanna
um þinghald í Helsingfors, ef ekki
reyndist fært að stefna þinginu til
Reykjavíkur, var tekið með þökkum.
Lengi voru horfur á, að bindindisþingið
yrði haldið í Reykjavík 1950, en niður-
staðan varð sú, að Finnar treystu sér
ekki til að sækja oss heim, vegna gjald-
eyriserfiðleika, og Danir heldur ekki,
svo að 18. bindindisþingið norræna var
ákveðið í Helsingfors, en á þessu ári
minnast Finnar 400 ára afmælis höfuð-
borgar sinnar. — Við höfðum þrír Is-
lendingar setið 17. norræna bindindis-
þingið í Stokkhólmi sumarið 1947, en
þegar til undirbúnings kom þinginu í
Helsingfors í sumar, var ráðið að senda
að því sinni aðeins einn fulltrúa. Ullu
því mest gjaldeyrisörðugleikar. Þingið
var haldið 3. til 8. ágúst, að báðum
dögum meðtöldum.
Eg kom til Helsingfors í sólskini, og
það dró aldrei ský fyrir sólu, meðan ég
dvaldist þar. Logn og blíða á hverjum
degi, hitinn oftast 25—30 stig á Cels.
í skugganum. En það skein líka önnur
sól á okkur, sem gistum hinn hvíta höf-
uðstað Finnanna þessa fögru ágúst-
daga. Það var sól samúðar, sem vermdi
okkur. Hjartahlýja og höfðingsskapur
fór saman. — Veðrið og viðtökurnar
gerðu mér þessa daga ógleymanlega,
einnig fegurð borgarinnar og samvinn-
an við samherjana á þinginu.
Þingið var sett í hátíftasal háskólans
3. ágúst, kl. 7 síðdegis, að viðstöddu
fjölmenni. Formaður þingnefndarinnar,
dr. theol. Rafael Holmström, flutti ávarp
og setti þingið. Hátíðarkvæði var lesið
af mikilli snilld. Hátíðarræðuna flutti
kennslumálaráðherrann, Lennart Heljas
prófastur. Á milli var fjölbreytt hljóm-
list, því að Finnar eru miklir tónlistar-
menn. Meðal annars söng kór lög eftir
Sibelíus, hinn mikla meistara á sviði
tónlistarinnar. Hann á heima skammt
frá Helsingfors, og er nú hálfníræður.
Síðast á dagskránni voru ávörp að-
komufulltúa (fyrir heimssambandið
gegn áfengisbölinu, Helsingforsborg,
Danmörku, Island, Noreg og Svíþjóð).
Lauk setningu þingsins með því að
sunginn var þjóðsöngur Finna, ,,Várt
land“.
Þingið var haldið í stærsta kennslu-
sal háskólans. Þátttakendur voru nokk-
uð á fimmta hundrað, 20 frá Danmörku,
milli 20 og 30 frá Noregi, yfir 150 frá
Svíþjóð og á þriðja hundrað frá Finn-
landi. Frá íslandi mætti stundum á
þinginu, auk mín, frú Sigríður Hjartar
frá ísafirði, en hún var fulltrúi á þingi
norrænna bindindiskvenna.. — Á þing-
inu voru flutt milli 20 og 30 erindi um
bindindis- og áfengismál, þar af 3 af
Islendinga hálfu, og fjölluðu þau um
bindindishreyfinguna og skemmtanalíf
æskulýðsins, um afstöðu æskunnar til
bindindishreyfingarinnar og um starf-
semi bæja- og sveitafélaga á vettvangi
bindindismála.
Þau mál, sem þingið tók sérstaklega
til meðferðar og flutt voru erindi um,
voru þrenns konar: 1) Nýjar leiðir um
bindindisstarfsemi, 2) Meðferð drykkiu-
sjúkra manna og 3) Afstaða æskulýðs-
ins til bindindisstarfseminnar. Einnig
var rætt um baráttu gegn áfengisnautn
bílstjóra o. s. frv. Það má svo til orða
taka, að áfengismálið og bindindisstarf-
ið væru rædd og skýrð frá öllum hlið-
um, þó að fyrrnefnd 3 mál væru megin-
viðfangsefnin. Auk bindindisþingsins
voru haldnar ekki færri en 11 sérfundir
um þessi mál, t. d. meðal norrænna
bindindiskvenna, stúdenta, presta og
annarra kristinna bindindismanna,
bílstjóra og templara (I. 0. G. T.),
járnbrautarmanna og verkamanna. Eru
norræn bindindissamtök meðal allra
þessara flokka og stétta. Jafnhliða var
haldinn 62. finnski bindindisfundurinn
og ársþing sænska bindindissambands-
ins í Finnlandi. — Það var erfitt fyrir
mig að mæta á mörgum þessum fund-
um, þar sem ég einnig varð að sækja
nefndarfundi norrænu bindindisnefnd-
arinnar og óhjákvæmilega lengstum
sitja sjálft bindindisþingið, enda einn
af varaforsetum þess. — Mér vannst
þó tími til að sitja boð samvinnunefnd-
ar Góðtemplara á Norðurlöndum, en
til þeirrar samvinnu var stofnað fyrir
þremur árum, en þetta boð gat eg setið
með því að afþakka boð norrænu bind-
indisnefndarinnar, er stóð á sama tíma,
en kom þó á fund nefndarinnar nógu
snemma. Ennfremur var eg á auka-
fundi í Hástúkunni, og fór þar fram
stigveiting, og tók þar stigið m. a. str.
Sigríður Hjartar. Eg var kapelán á fund-
inum. Hann fór fram á sænsku, en
embættismenn tveir í hverju sæti, og
talaði annar sænsku, en hinn finnsku.
— Br. Ossian Engblom, stórtemplar
sænsku stórstúkunnar í Finnlandi,
stjórnaði fundinum, en því miður gat
br. hátemplar, Ruben Wagnsson lands-
höfðingi, ekki mætti á Helsingforsþing-
inu. Var hástúkufundur þessi hátíðleg-
ur og eftirminnilegur. Voru templarar
úr öllum norrænu löndunum í embætt-
um, nema Danir. Enginn danskur
templari þar mættur. Eftir stigfundinn
var fjölmenn samkorría og fjölbreytt,
kaffidrykkja og erindaflutningur. Varð
eg að flytja þar stutt ávarp. Eg talaði
hér um bil allt kvöldið við 78 ára gaml-
an heiðursmann, templara, og var hann
einn þeirra, sem tók hástúkustigið á
kvöldfundinum. Gamli maðurinn var
íslenzku fulltrúarnir á norræna bindindisþinginu I Stokkhólmi 1947. — Talið frá vinstri: Pétur
Sigurðsson, Brynleifur Tobiasson og séra Kristinn Stefánsson. — Brynleifur var eini íslenzki full-
trúinn á þinginu í Helsingfors í ágúst s. 1.