Eining - 01.12.1951, Qupperneq 1

Eining - 01.12.1951, Qupperneq 1
»w * 1 1 i 9. árg. Reykjavík, desember 1951. 12. tbl. Alla tíð liefur verið geigur i mönnum við myrkrið. Tengd því er trú manna á afturgöngur, drauga og forynjur, og persónu- gervingur alls hins illa liefur verið kallaður myrkrahöfðing- inn. í myrkrinu þrífast sótt- kveikjurnar og óhollustan. Ljósið og birtan hefur verið augnayndi manna. Snemma til- báðu menn sólina, og fornmenn okkar sögðu: Eldur er beztur með ýta sonum og sólarsýn. Allt fagnar og gleðst, þegar Ijósið og ylurinn sigrar myrkrið. ,,Sú þjóð, sem i myrkri geng- ur, sér mikið ljósu, segir spámað- urinn Jesaja um komu Krists i heiminn. Og það var ekki aðeins ein þjóð, sem gekk i myrkri, heldur segir sami spámaður: „Sjá, myrkur grúfir yfir jörð- inni og sorti yfir þjóðunum, en yfir þér upp rennur drottinn, og dýrð hans birtist yfir þér. — Heiðingjarnir stefna á Ijós þitt og konungar á Ijómann, sem upp rennur yfir þér“. Og enn grúfir myrkur stríðs- skelfinga yfir þjóðunum, en i öllu því myrkri skin þó Ijós kristindómsins skærast og boðar mikil jól friðarins í fylling tím- ans. Á dimmasta tima ársins koma alltaf blesuð jólin. Þá lifðu for- feður okkar oft i dauðans ang- ist, hræddir um að sólin væri að hverfa fyrir fullt og allt, og kæmi aldrei aftur. Þess vegna kynntu þeir mikil bál á f jöll- um uppi, gerðu stór viðarhjól, kveiktu i þeim og veltu þeim log- andi niður fjallahlíðarnar og við- höfðu alls konar giningar til þess að fá sólina til að koma aft- ur. Hún átti að sjá, að á jörðu væri kátína, þrátt fyrir óttann, og fá þess vegna löngun til að koma aftur. Þessu jólahaldi breytti fæðing jólabarnsins í hina mestu fagn- aðarhátið kristinna manna, há- FRAMHALD á bls. 2. § Jólaundrið. Jólaklukkunum hringt. »

x

Eining

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.