Eining - 01.01.1953, Blaðsíða 8
8
EINING
Merkisafmæli
Framhald af 5. bls.
og við önnur störf sín sýnt mikinn mann-
dóm. —
Ólafsfirðingar héldu henni fjölmennt
samsæti, fluttu þar ræður og færðu henni
gjafir sem þakklætisvott fyrir einstaka
þjónustu.
Séra Helgi Konráðsson
fimmtugur.
Eins og ýmissa annarra ágætismanna,
sem Eining getur að þessu sinni, hefði
undirritaður viljað hafa ráð á að birta
lengra mál um séra Helga Konráðsson, en
hér verður gert. Séra Helgi er maður, sem
gott er að kynnast. Á heimili þeirra hjón-
anna, frú Jóhönnu Þorsteinsdóttur og hans,
hef eg átt hlýjar ánægjustundir, verið í
eftirminnilegu og skemmtilegu ferðalagi
með séi'a Helga, er við heimsóttum kirkj-
urnar í Suður-Múlasýslu, og þekkt hann
sem hið mesta ljúfmenni frá því fyrst eg
kynntist honum, er hann var prestur á
Bíldudal. Mín saga í þessum efnum er ekki
einstök, það kom bezt í ljós, er séra Helgi
átti fimmtugsafmæli 24. nóvember s. 1. —
Hátt á annað hundrað manns heimsótti
prófastshjónin við það tækifæri. Honum
voru færðar veglegar gjafir, hann hylltur
í ræðum ágætra manna og honum þakkað
mikið og margvíslegt starf, og mikill fjöldi
heillaskeyta barst honum auðvitað.
Séra Helgi er Skagfirðingur, fæddur að
Syðra-Vatni í Lýtingsstaðahreppi. Faðir
hans Konráð og séra Jón á Mælifelli, fað-
ir Magnúsar prófessors og Þorsteins rit-
höfundar, voru bræður. Embættispróf tók
séra Helgi árið 1928. Fyrstu prestsskapar
árin sat hann á Bíldudal, þar næst að
Höskuldsstöðum á Skagaströnd, en 1934
gerðist hann sóknarprestur á Sauðárkróki.
Þar hafa vinsældir hans orðið miklar. —
Hann er áhugasamur og snjall klerkur,
bókamaður mikill og á ágætt bókasafn, en
í sambandi við bókasafn Skagfirðinga hef-
ur hann unnið hið mesta afrek, sem er
líka metið og vel þakkað. Hann hefur ver-
ið skólastjóri gagnfræðaskólans á Sauðár-
króki frá stofnun hans. Hann er góður
fræðari og vinur ungmenna. Hann er skáld
og hefur ritað allmargt bæði í bundnu og
óbundnu máli, þar á meðal mikla bók um
listamanninn Thorvaldsen. En hvað þýðir
að telja upp ýms starfsatriði slíkra manna.
Það sem mest er um vert verður aldrei
talið, árangurinn af því starfi, sem unnið
er í kyrrð og ró, í bæn til Guðs og góð-
hug til allra manna, þetta daglega og þrot-
lausa þjónustustarf.
Séra Helgi er góður liðsmaður stúkunn-
ar á Sauðárkróki.
Hjartans þakkir vil eg færa þeim hjón-
unum fyrir elskulega viðkynningu, og óska
þeim farsældar og guðsblessunar í hví-
vetna.
Karl Karlsson
átti sextugsafmæli 28. janúar 1952, en því
miður fór það framhjá Einingu, en Karl
átti það skilið, að blaðið minntist hans.
Hvert sæti, er hann skipar er vel mannað.
Hann er þrekmenni, en sameinar ágætlega
góðleik, snerpu, alvöru og viljafestu, kátínu
og karlmennsku og drenglyndi. — Hann
er slíkur félagi og liðsmaður í sveit Góð-
templara, að hans líka þyrftum við að eiga
sem flesta. Karli er hægt að treysta, hann
er hreinn og beinn og heilsteyptur. í hon-
um verða engin svik fundin gagnvart því
málefni, sem hann leggur lið. Bindindi er
hans mikla áhugamál, hið sama er að segja
um verklýðshreyfinguna og Sjómannafé-
lag Reykjavíkur.
Karl Karlsson er fæddur og uppalinn í
Reykjavík. Ungur tók hann að stunda sjó-
sókn, fyrst á skútum og svo á togurum,
en á þeim var hann um 16 ára skeið. Eftir
27 ára sjómannastarf gerðist hann starfs-
maður við Reykjavíkurhöfn, hefur verið
þar afgreiðslumaður við vatnssölu síðan
1940. Hann á orðið sína merkilegu sögu og
kann frá ýmsu markverðu að segja. En
mesta afrek hans er þó að koma upp, ásamt
sinni ágætu konu, Guðrúnu Ólafsdóttur,
níu börnum, og það gerði Karl vel, eins og
allt sem hann gerir. Guðrúnu missti hann
árið 1934, en kvæntist aftur 1950 Margréti
Þórðardóttur.
Karl er enn í blóma lífsins. Hann er
glaður og reifur og gengur rösklega að
verki, hvort heldur hann stjórnar stúku-
fundi eða sinnir öðrum störfum. Það er því
of snemmt að skrifa ævisögu hans. Endist
honum sem lengst aldur til þess að leggja
góðum málefnum lið, því að það munar
drjúgum um liann, hvar í fylking-sem hann
stendur.
Barnastúkan Björk 25 úra.
Barnastúkan Björk í Stykkishólmi var
25 ára 19. nóvember síðastl. í stúkunni eru
nú 200 félagar og eru margir þeirra komnir
yfir tvítugsaldur. Barnastúkan Björk hef-
ur verið sérlega farsæl, notið leiðsagnar
ágætra gæzlumanna, haldizt óvenjudega vel
á félögum sínum, og unnið mikið og gott
starf. Um 15 ára skeið naut hún forustu
Stefáns Jónssonar, námstjóra, sem þá var
skólastjóri í Stykkishólmi. Það leyndi sér
ekki að forustan var góð. Þegar ritstjóri
Einingar ferðaðist um landið og heimsótti
stúkur hér og þar, var barnastúkan Björk
í Stykkishólmi ein hinna alh'a álitlegustu.
Á fundum hennar ríkti góður andi og
stjórnsemi.
Enginn, sem þekkir Árna Helgason, nú-
verandi gæzlumann stúkunnar, og hans
ágætu hæfileika til slíkrar forustu, efast
um að stúkunni sé þar vel borgið. Allir
eiga gæzslumenn hennar skylið þakkir fyrir
mikið og óeigingjarnt starf.
Séra Jóhann Kr. Briem
sjötugur.
Einn þeirra ágætu bindindismanna, er ný-
lega hafa átt merkisafmæli, og Eining vill
gjarnan minnast, er séra Jóhann Kr. Briem.
Hann er maður svo grandvar og traustur,
að liðveizla hans er hverju góðu málefni
mikill styrkur. Hann hefur tekið þátt í
starfi Reglunnar, þegar þess hefur verið
nokkur kostur, en hið bezta er, að hann er
slíkur skapgerðarmaður, að hann bregst
engu því, er hann liðsinnir, og auðvitað
málstað bindindisins ekki heldur. Hann er
heill og öruggt vitni sannleikans.
Séra Jónhann Kr. Briem er fæddur og
uppalinn í Hruna í Árnessýslu. Hann vígð-
ist til Melstaðarprestakalls 28. júní 1912
og hefur gegnt prestsskap þar í 40 ár. —
Kvæntur er hann Ingibjörgu ísaksdóttur
frá Eyrarbakka, ágætis konu, og eiga þau
hjónin fjögur uppkomin börn. Heimili
þeirra hefur verið fyrirmyndarheimili. —
Það er við þjóðbraut og þar hefur margan
gest borið að garði.
Séra Jóhann er góður kennimaður,
skyldurækinn og vökull. Hann hefur unn-
að sönglífi og unnið því, eins og líka sveita-
málum margvíslega. Þegar allir embættis-
menn landsins reynast bindindi og mann-
kostum jafntrúir og séra Jóhann; þá er
þjóð okkar borgið.