Eining - 01.07.1953, Blaðsíða 1

Eining - 01.07.1953, Blaðsíða 1
11. árg. Reykjavík, júlí—ágúst 1953 7.-8. tbl. Nítjánda norræna bindindisþingið Ávarp formanns undirbúningsnefndar; Brynleifs Tobíassonar; yfirkennara Brynleifur Tobiasson. Samtök bindindismanna á Norður- löndum hófust fyrir nærfellt 60 árum. Arið 1895 var fyrsta norræna þingið um bindindismál haldið í höfuðborg Noregs. Upp frá því hafa norrænar ráð- stefnur um bindindismál verið haldnar á öllum Norðurlöndum nema fslandi. Það er nú í fyrsta sinni, sem íslenzkir bindindismenn njóta þeirrar ánægju, að bjóða samherja sína annars staðar á Norðurlöndum velkomna til samstarfs nokkra daga hér heima. Þingin norrænu hafa verið haldin í höfuðborgum Nor- egs, Danmerkur, Svíþjóðar og Finn- lands, og auk þess í Dorpat (Tartu) í Eistlandi. Sóttu Eistur og Lettar um hríð norrænu bindindismálaþingin. — Sá, sem þessar línur ritar, á góðar minn- ingar um samvinnu frá mörgum þing- um. Norrænu bindindissamtökin hafa fært út kvíarnar jafnt og þétt. Fleiri og fleiri stéttir hafa efnt til samvinnu sín á milli um bindindi. Má meðal þeirra nefna kennara, presta, stúdenta, konur, bílstjóra, verkamenn. Enn fremur er um að ræða samstarf lækna og annarra þeirra, sem láta sér annt um áfengis- varnir og lækningar við áfengissýki. — Að þessu sinni gætir ekki jafn mikið þessarar samvinnu og stundum áður, vegna þess að erfitt er um sókn til þessa afskekkta lands, og koma því ekki nærri allir, sem vildu, því við, að sækja nor- ræna bindindisþingið hingað. Það hefur jafnan þótt mikill viðburður, er norrænu þingin hafa verið haldin. Brugðið hafa þau birtu yfir mörg vandamál á sviði bindindis og áfengisvarna, vakið áhuga á bindindismálunum og aukið kynningu þeirra, sem vinna að sameiginlegu tak- marki. Það hefur auðveldað þeim að vinna af sameiginlegum kröftum. — Bindindishreyfingunni á Islandi mun vissulega vaxa þróttur við komu sam- herjanna austan yfir hafið. Margir gáf- uðustu, lærðustu og áhugamestu for- ingjar á sviði bindindismálanna sækja okkur heim í sumar. Gefst oss þannig gott tækifæri að læra margt af vorum góðu gestum. Hagnýtum það sem bezt, og efast ég eigi um, að hinir norrænu vinir vorir muni orka fast á oss til auk- innar starfsemi. Vér hlökkum til þess að stofna til samtaka ýmissa stétta og stofnana og tengja þau við starfsemi bræðra vorra á Norðurlöndum austan Islandshafs. Samherjar vorir aðkomnir koma ekki einungis til þinghalds. — Þeir hlakka einnig til að sjá vort stórbrotna land og ferðast til Þingvalla, Geysis og Gull- foss. Er hér því einnig um landkynningu að ræða. Um 230 gestir, er flestir eða allir hafa aldrei komið hingað, sækja oss nú heim, og miklu fleiri vildu koma, en farkostur var ekki nægur fyrir hendi, og verða því margir að sitja heima, er þráðu að sjá land vort og kynnast þjóð vorri. Vér vonum, að gestir vorir verði ekki fyrir vonbrigðum, og að vér sjálfir verð- um þess megnugir að hagnýta þennan einstæða atburð í bindindismálasögu vorri til eflingar og örvunar bindindis- hreyfingunni meðal þjóðar vorrar. Leggjum oss alla fram, íslenzkir bind- indismenn, að gera gestum vorum vist- ina hér þessa fáu þingdaga sem ánægju- legasta, ekki með óhófi og veizluhöld- um, heldur með þeirri alúð og menntun hjartans, sem vermir hug og gefur „sumar innra fyrir andann“.

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.