Eining - 01.07.1953, Page 14

Eining - 01.07.1953, Page 14
14 EINING f Hólar i Hmltadal. mikla og dugandi þjóð. — Það agar strangt, en á þó líka til hjartaheita móð- urblíðu. Mest hætta stafar þjóðinni frá alls konar innfluttu skaðræði: óholl- um og skaðvænum öfgastefnum, spilltri tízku, kveifarlegum lifnaðarháttum, hégómlegum siðvenjum, eitruðum nautnalyfjum og alls konar æsimáli. Gegn mörgu af þessu þarf sterka land- vöm, og verstu vágestina þarf að gera landræka. Þar er fremst í röð áfengið. Gestimir okkar, sem heimsækja fsland til þess að sitja hér norræna bindindis- þingið, eru samherjar okkar í því heil- aga stríði. Heilagt má það kallast, því þar er um að ræða vörn þess, sem þjóð- inni er dýrmætast, það er æskulýður landsins og helgidómur fjölskyldulífs- ins — heimilið. 1 slíkri vöm og öllu því menningarstarfi, sem til þjóðarheilla horfir, á endurvakin og nærð ættjarðar- ást að vera máttugur aflgjafi. Það sem við elskum metum við mest, og þess hag eflum við sem bezt. Það er því hollt hverju barni landsins, ekki aðeins að hrífast af undursamlegri fegurð þess, heldur einnig að kunna sem mest af fegurstu ættjarðarljóðunum og syngja af lífi og sál: ,,Island ögrum skoriS, eg vil nefna þig, sem á brjóstum borið og blessað hefur mig, fyrir skikkan skaparans. Vertu blessað, blessi þig blessað nafnið hans“. Þannig hafa þeir blessað fóstur- landið, sem farið hafa víðast og átt þess beztan kost að gera samanburð á lönd- um og þjóðum. Þeir hafa jafnan sung- ið því fegursta ástaróðinn. Þess skulum við minnugir vera. P. S. Bannmaðurinn John Wesley Bannmenn nútímans þurfa ekki að skammast sín fyrir samherja sína fyrr og síðar. Eining hefur áður minnt á hina Sitóru anda þjóðanna, eins og Gandhi, Kagawa, Lincoln, Bernard Shaw og fleiri. Jón biskup Árnason í Skálholti er talinn einn af merkustu biskupum landsins, en það var hann, sem fyrstur manna hér á landi, og þótt víðar væri leitað, lagði fram fyrir stjóm landsins bænaskrá um algert áfengis- bann á íslandi. Þetta var 1733. John Wesley er talinn mesti siðbótar- / maður Englendinga á 18. öldinni. Hann lagði mjög að forsætisráðherra Eng- lands, William Pitt, að banna alla áfengisverzlun í landinu. Hann skrifaði ráðherranum 6. september 1784 á þessa leið: ,,Ef þér vilduð beita áhrifum yðar til þess að bannað yrði að framleiða áfengi, munduð þér vinna þjóðinni meira gagn f en nokkur annar ráðherra hennar á þessari öld. Allir þjóðhollir menn mundu vegsama nafn yðar meðan þjóðin er við lýði. En öllu þessu er þó meira það, að langt um tignari konungur en Georg III mundi segja við yður: ,,Vel hefur þú gert, góði og trúi þjónn“. John Wesley, upphafsmaður Meþó- distakirkjunnar, trúði öllum mönnum 4 fremur á eflingu siðgæðisþroska hvers einstaklings, en samt duldist honum ekki, að algert bann var eina ráðið til þess að útrýma mesta áfengisbölinu. — Meþódistakirkjan er enn í dag einna harðsnúnust allra kirkjudeilda gegn áfengisbölinu og fylgir bannhugsjóninni eindregið. Þannig er það um flesta { menn, sem finna nægilega til ábyrgðar og leiðast af þeim góða anda, sem ætlast til þess, að hver maður gæti einnig bróður síns. Reykjandi mannkyn Samkvæmt blaðinu New York Times i1 reyktu Bandaríkjamenn 2,700 sígarettur á mann árið 1952. Þegar þess er gætt, að börn reykja ekki, og ekki heldur mikill fjöldi manna, þá sést á þessari meðaltals- tölu, hve óskapleg sígarettuneyzla þeirra er, sem reykja. Undarlegar mannverur, sem vilja láta lífið fyrir frelsi, en gerast þó þrælar ails konar skaðnautna. + f Templarahöllin, Fríkirkjuvegur 11, Reykjavík. 5'

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.