Eining - 01.07.1953, Page 16

Eining - 01.07.1953, Page 16
16 EINING * Nerkilegt mót í Stokkhólmi Dagana 9.—12. apríl s. 1. var fjöl- mennur hópur sænskra bindindismanna saman kominn í Medborgarhuset í Stokkhólmi, til þess að heyja 17. lands- mót allra bindindissamtaka Svíþjóðar (Sveriges Nykterhetsvenners Landsför- bund) .1 Svíþjóð er fjöldi bindindisfélaga og bindindissamtaka, en fjölmennust af þeim eru Góðtemplarareglan. Alls munu hafa verið mættir hátt á þriðja hundrað fulltrúar víðsvegar að. Til þessa móts hafði verið boðið fulltrúum frá öllum Norðurlöndum og voru þarna mættir tveir fulltrúar frá hverju Norðurland- anna, þrír voru þó frá Noregi. Með því að undirritaður var staddur í Svíþjóð um þessar mundir, varð það að ráði, að eg mætti þarna fyrir Stórstúku íslands, og var eg eini fulltrúinn frá Islandi. Það er skjótt af að segja, að þetta var hið merkilegasta og lærdómsríkasta mót. Eg dáðist að þeirri einingu, sem þarna var ríkjandi milli hinna einstöku og ólíku samtaka. Slík eining meðal allra bindindisafla þjóðarinnar er til fyrir- myndar. Þarna voru mjög skiptar skoð- anir og mjög heitar umræður, en alltaf virðulegar og mótaðar af siðferðilegri alvöru. Mótið var sett í Medborgarhuset kl. 10 árd. fimmtudaginn 9. apríl. Fyrir stafni í hinum mikla samkomusal voru fánar allra Norðurlandanna. Dómpró- fastur, Nils Karlström, flutti stutta pré- dikun, en á undan var sungið: „Vor guð er borg á bjargi traust“. Því næst V estmannaeyjar. var mótið sett af formanni landssam- bandsins, dr. fil. Erik Englund. En því næst hófust fundarstörf. Fyrsti fundar- stjóri var Ruben Wagnsson, landsstjóri í Kalmar, núverandi hátemplar, og stjórnaði hann fundum af miklum skör- ungsskap og prúðmennsku. Þessi erindi voru flutt á mótinu m. a.: Fil. lic. Áke Elmér talaði um höfuð- línurnar í tillögum áfengislaganefndar- innar sænsku. Dr. fil. Erik Englund talaði um ástæð- urnar fyrir því, að nefndin leggur til að skömmtunarkerfi það, sem kennt er við Bratt, verði afnumið. Ríkisdagsmað- ur Gunnar Engkvist talaði um hækk- aðan áfengisskatt. Þá fluttu þeir stjóm- arfulltrúi, Henrik Klackenberk og fram- kvæmdastjóri pastor Joel Kullgren er- indi, sem var eins konar svar við erindi dr. Englunds, en út af því risu mestar og heitastar umræður. Dr. Erik Englund og hans fylgismenn, sem voru í meiri hluta, héldu því fram, að alla þá tíð sem Brattkerfið hefði verið framkvæmt í landinu, en það er nú orðið 40 ára, hefði ástandið verið að versna, og gæti varla orðið verra. Það væri því sjálfsagt að reyna nýjar leiðir. Þeir töldu að vísu alveg víst, að ástandið myndi versna í bili, en vonuðu hins vegar, að með ýmsum hliðarráðstöfunum mætti ná jafnvægi fljótlega aftur. Klackenberg og hans fylgjendur héldu því hins vegar fram, að það væri ábyrgðarleysi að taka burtu þessa stíflu, sem þjóðin hefði alizt upp við svo lengi, og það vissi enginn, hvað við tæki. En það væri víst, að ástandið myndi ekki batna. Megin hlutinn af öllum umræð- um mótsins snerust um þetta mikla hita- mál, en svo fór þó, að landsmótið féllst einróma á að leggja til, að Brattkerfið væri numið úr gildi. Klukkan 6 fyrsta mótsdaginn var f sameiginlegur hádegisverður í hinum mikla borðsal Medborgar-hússins. Þar fluttu erlendu fulltrúarnir ávörp og tal- aði eg fyrir hönd íslands. Þjóðsöngvar allra Norðurlandanna voru sungnir á eftir hverju ávarpi, en hljómsveit lék undir. — Þar talaði einnig fram- kvæmdastjóri alþjóðabindindissam- bandsins, Mr. A. Tongue, sem mættur * var á mótinu og fylgdist með öllum störfum þess. Þarna fór einnig fram söngur og hljómlist. Ruben Wagnsson landsstjóri stjórnaði þessari virðulegu samkomu af miklum skörungsskap. Mörg fleiri framsöguerindi voru flutt á landsmótinu og m. a. þessi: Valdimar Svensson ríkisdagsmaður flutti erindi um ölið og þá tillögu áfengislaganefnd- / ar að Ieyfa bruggun sterks öls. Ut af þessu erindi urðu miklar umræður, og var allur þingheimur á einu máli um að það væri stórt skref aftur á bak að leyfa bruggun á sterku öli. Kennslukona, Rut Axelsson, flutti snjallt erindi um menn- ingaráhrif bindindishreyfingarinnar. Ragnar Lund, kennslumálafulltrúi, flutti ýtarlegt erindi um bindindisfræðslu f og urðu um það erindi geysimiklar og merkilegar umræður. Það var eftirtekt- arvert, hve margir ungir menn komu þá í ræðustólinn og kröfðust betri og skipulegri fræðslu um þessi mál. Þótt umræður væru yfirleitt miklar og stæðu oft sleitulaust fleiri klukku- tíma, voru þær ekki þreytandi. Bæði var það, að allar ræður voru stuttar, og < þó að mikill alvöruþungi hvíldi yfir þeim, leyfðu menn sér þó að koma að gamanyrðum, svo að allur þingheimur hló. Að lokum var samþykkt mjög ýtar- leg stefnuyfirlýsing mótsins. Var þar mörkuð stefnan í bindindispólitík næstu fjögurra ára, því að landsmót þessi eru haldin fjórða hvert ár. Hinar einstöku ^ f \ greinar bindindissamtakanna halda svo þing sín annað hvort ár. En í þessu móti tóku þátt milli 30 og 40 félaga- sambönd. Eg lét þess getið í ávarpi því, sem eg flutti á mótinu, að eg dáðist mest að þessari víðtæku samvinnu milli allra bindindisafla þjóðarinnar og lét þá ósk í ljós, að slík, víðtæk samvinna mætti takast í öllum löndum heims. Þarna voru saman komnir allir helztu leiðtogar bindindismálanna í Svíþjóð, fjöldi ríkisþingmanna, prestar, kennar- ar, skólastjórar, forstjórar og yfirleitt fólk af öllum stéttum þjóðfélagsins. — I sænska þinginu eru nú um 150 fé- lagsbundnir bindindismenn og þar af # 4 50 góðtemplarar. Þarna var líka fjöldi annarra menntamanna af ýmsum stétt- um. f'

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.