Eining - 01.07.1953, Síða 17

Eining - 01.07.1953, Síða 17
EINING 17 Aform Eisenhowers Okkur erlendu fulltrúunum var tekið af frábærri alúð, og við okkur leikið á állan hátt. Ef rúm Einingar væri ekki svo takmarkað, væri freistandi að segja meira frá þessu ánægjulega og lærdóms- ríka móti. En eg hvarf þaðan miklu bjartsýnni en áður. Þarna er þróttmikið forustustarf. Bindindishreyfingin í Sví- þjóð er voldug þjóðarhreyfing, sem set- ur svip sinn á menningu þjóðarinnar. Margt af því ágæta fólki, sem eg kynnt- ist þama, kemur til íslands nú í sumar á norræna bindindisþingið og hyggur gott til. Það er vonandi, að Sögueyjan og þjóðin, sem þar býr, valdi þeim ekki neinum vonbrigðum. Hannes J. Magnússon. Hungruð börn 1 ritstjómargrein Lögbergs, 2. apríl ^ 1953, er þess getið, að útvarpsfyrir- lesari í Winnipeg, C. F. Greene, hafi flutt erindi, sem hafi hlotið að vekja mikla athygli manna. „Hann skýrði meðal annars frá því“, segir þar, ,,að 46 milljónir bama hefðu notið aðhlynn- ingar af hálfu þeirrar stofnunar samein- uðu þjóðanna, er gengur undir nafninu United Nations International Emer- ^ gency Fund. Af þessu má ljóslega ráða, hve þörf slíkra mannúðarsamtaka var afar brýn. Mr. Greene lét þess ennfremur getið, að um þessar mundir væm í heiminum nálega 900 milljónir bama og unglinga innan fimmtán ára aldurs, af þessari tölu byggi helmingur unglinga við skort en milljónir yrðu hungurmorða. Og ekki ^ býr nú tuttugasta öldin betur að börn- um sínum en þetta, þrátt fyrir stærilæti sitt og stolt. Stærstu heildarframlögin í áminnstan sjóð lagði Bandaríkjaþjóðin til, en mestu upphæðirnar á mann vom frá íslandi, Nýja Sjálandi, Ástralíu, Canada og Svisslandi“. Það skyggir vissulega á lífsgleði hinna t J mörgu, er við góð kjör búa, og hafa hjartað á réttum stað, að hugsa til hinna mörgu barna, sem líða skort og deyja úr hungri. Nokkur af kjörorðum hinnar miklu siðferðisvakningar (MRA), sem á tiltölulega fáum árum er orðin að and- legu stórveldi í heiminum, eru þessi: ,,Ef allir láta sér nægilega annt um hag ^ annarra, og allir miðla sanngjamlega, þá mun nægilega bætt úr þörfum allra manna“, og ennfremur: „Nóg er til fyrir þörf allra manna en ekki græðgi allra manna“. Meðan heimurinn er siðferðilega lam- aður, rangsleitni ríkir og hjörtu manna eru köld, verða þjáningar margra alltaf ^ g. miklar. Mannkynið þarf að snúa við af helvegi inn á veg lífs og friðar, en það er vegur Guðs, vegur andlegs þroska og mannkærleika. 1 ritgerð í Readers Digest segir Stan- ley High, að í öllum þeim orðaflaum, sem streymt hafi um hinn nýkjöma for- seta Bandaríkjanna, hafi lítið verið sagt um þá hjartans ósk, er hann hafi lengi alið heitasta í brjósti sér þjóð sinni til handa, en hún lýsi þó betur en stjórnar- hæfileikar hans og ráðsnilld, hvers kon- ar mann þjóðin hafi kosið í forseta- embættið. Ósk hans og áform bendi fremur en allt stjórnmálastarf hans á það, hvað gerast kunni í embættistíð hans. Fremur öllum flokkssjónarmiðum sé hann vígður hinum mikilvægustu hugsjónum sínum, og það sé ósk hans og áform, að þáttur hans verði þannig skráður í sögu þjóðarinnar, að hann einkennist fyrst og fremst af þjónustu hans í þágu þessara hugsjóna. Eisenhower, forseti Bandaríkjanna. Þetta rótgróna hjartansmál forsetans er ekkert feluatriði. Það er í raun og vem rauði þráðurinn í öllum ræðum hans, og það, sem hann oftast víkur að í einkasamtölum við menn. I samræmi við þessar hugsjónir velur hann og sam- starfsmenn sína. Hvað lífsskoðun og hjartans sann- færingu áhrærir, gæti forsetinn því fremur talizt „gamaldags“ en tízkubam, eins og margar setningamar vitnuðu um í kosningaræðum hans, eins og „Honesty is the best policy“, — heiðar- leikinn borgar sig bezt, „He that goes a-borrowing, goes a-sorrowing“, — sá, sem alltaf þarf að fá lán, hlýtur að bera áhyggjur og smán. „A man is known by the company he keeps“, — sýndu mér hverja þú umgengst, og eg skal segja þér, hver þú ert, „Birds of a feather flock together“, — líkir sækja líkan heim, „A penny saved is a penny eamed“, — græddur er geymdur eyrir. Þessar gömlu lífsreglur, segir þar, hafa sjálfsagt ekki verið lífsmælikvarð- inn í Washington né víðast hvar annars staðar. En getur nokkur efast um, að bezt færi þó á slíku? Samkvæmt tíðarandanum gæti for- setinn talizt dálítið sérstæður í því, sem er honum mesta hjartansmál. Hann lét oft orð falla um hinar sérstöku dygðir foreldra sinna: hirðusemi, nýtni, heiðar- leik, og hversu líf þeirra hefði mótast af lestri heilagrar ritningar, hvemig hann hefði setið við kné móður sinnar og hlustað á frásögn hennar um Abra- ham Lincoln, sem gekk nokkrar mílur til þess að skila aftur fáeinum aurum, sem einn viðskiptamaður hafði borgað um of. I hlutfalli við það, hversu þessar „fornu dyggðir" hafi verið afræktar, telur forsetinn ýmislegt það vera, sem miður hefur farið í þjóðfélaginu. Hann álítur, að meinsemdimar í stjórnarfar- inu séu aðeins angi af sjúkdómseinkenn- unum í öllu þjóðfélaginu. Hann telur lækningu þess sjúkdóms bráða nauð- syn, og að lækningin sé fólgin í róttækri hugarfars- og lífsvenjubreytingu fólks- ins. Slík breyting muni orka miklu á fjárhag þjóðarinnar og stjórnarfar, þótt ekki sé hún í sjálfu sér fjárhagslegs né stjórnarfarslegs eðlis, heldur andlegs og siðferðilegs eðlis. Forsetinn lét þau orð falla eitt sinn í kosningaræðu, að mönnum kynni að finnast tal hans og óskir minna helzt á prédikara, og segja mætti, að áform hans væru prédikarans. Það sem forsetinn óskar þjóð sinni til handa, er endurvakin sú guðstrú og lífsskoðun, sem vígir menn á ný hinum kristilegu dyggðum og kristilegri hegð- un. „Þessi er ósk hans“, segir í ritgerð- inni, „fyrst og fremst sökum þess, að hann er sjálfur trúhneigður maður, þó að hann flíki því ekki og tali sjaldan um sitt eigið trúarlíf. Ekki er vitað, hversu hann iðkar bænalíf, en ráða má af því, hversu hann talar hispurslaust um mikilvægi bænarinnar, að hann sé bænarinnar maður. Og þótt enginn sé kominn til að segja um, hve oft hann les í biblíunni, sem liggur á borði hjá rúmi hans, er vitað af því, hversu hann vitnar í biblíuna, að hann hlýtur að iðka lestur hennar. Hans reglubundna kirkju- ganga er ekki nein embættisathöfn, hún er lífsvenja hans, en ekki aðeins utan- garna sunnudagasiður“. Áður hefur guðsþjónustan í sambandi

x

Eining

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.