Eining - 01.07.1953, Side 22

Eining - 01.07.1953, Side 22
22 EINING Sjúkar og þjáðar sálir Engin vísindagrein er meira stunduð í Bandaríkjunum en sálsjúkdómafræð- in, segir fræðslustjóri stórstúku Noregs, Einar Anthi kennari, sem dvalið hefur í Ameríku undanfarið og lagt stund á nám í sálarfræði og félagsfræði, en kynnt sér um leið áfengismál og bind- indisstarf þjóðarinnar. — Norska bind- indindisblaðið Folket birtir greinar eftir hann og minnist hann þar kennslubók- ar, Abnormal psychology and modern life, sem kom út 1950 eftir sálfræðing- inn James Colemann. Þar er eftirfar- andi upptalning á tauga- og sálsjúkling- um: 1. 8,000,000 taugabilaðir. 2. 3,000,000 vangefnir. 3. 3,000,000 börn með gallað til- finningalíf. 4. 1,000,000 geðveikir, og af þeim eru 5. 700,000 í sjúkrahúsum, 6. 250,000 eru í fangelsum. 7. 120,000 geðveikra bætast við á hverju ári í sjúkrahúsin. 8. Talið er, að fyrir hvem einn af þeim 700,000 geðveikra manna í sjúkrahúsunum, séu að minnsta kosti 20, er þyrfti að njóta að- stoðar geðsjúkdómalækna. 9. í helming allra sjúkrarúma í Bandaríkjunum eru sálsjúkir menn. 10. Um 10% allra sjúklinga, er koma á geðveikrasjúkrahús og slíkar stofnanir, eru áfengis- sjúklingar, en þó er ekki fullur helmingur þeirra geðbilaðir menn. Þetta er orðið svo mikið alvörumál hjá þjóðinni, að sumar bækur er að þessu lúta, eru þar metsölubækur. Nútíminn krefst þess, að menn séu hæfir til starfa og sálar- og líkamskraftar þeirra notizt sem bezt, en í þessum efnum er áfengis- neyzlan hinn mikli skaðvaldur. Hraðinn, spenningurinn, áhyggjurnar og kapp- ið á öllum sviðum rekur menn til að leita sér fróunar og örvunar á einhvern hátt, og er þá oft flúið á náðir áfengis- neyzlunnar í þeirri von, að hún reynist mönnum aflgjafi, en allir vita, að hún svíkur og gerir aðeins illt verra, truflar geðró, sýkir sálina og veikir taugarnar, svo að ekki sé meira sagt. Við þessa þörf manna á einhverjum örvunarlyfum bætist svo hin mikla hætta, er stafar af auglýsingakappi áfengisauðmagnsins. Það hefur í þjón- ustu sinni auglýsingaþörf stórblaðanna, útvarp, kvikmyndasýningar, vissa teg- und bókagerðar (hér á ekki við að tala um bókmennfir, það er of gott nafn á slíku lesmáli) og ýmsilegt fleira til þess að efla sem bezt drykkjusiðina. I grein sinni segir norski kennarinn, að ,,sök- um aukinnar áfengisneyzlu fari áfengis- sýkin svo vaxandi, að hjá Bandaríkja- þjóðinni sé hún orðin stœrsta sjúkdóms- vandamálfó. — 600 þúsundir manna þjáist þar af krabbameini, 700 þúsundir af berklum, en 750 þúsundir af ,,krón- iskri“ áfengissýki“. Auk þess eru svo milljónir manna, sem eru hálfgerðir áfengissjúklingar, ofdrykkjumenn og stórgallaðir í þeim efnum. Þetta ástand hefur vakið menn til um- hugsunar og athafna. „Menn skipta sér í hina ,,þurru“ og ,,votu“ hópa eða bannmenn og andbanninga, en á milli þeirra sé svo hlutlaus vísindamennska, sem stundum neyðist þó til að láta uppi niðurstöður á rannsóknum og ákveðnar skoðanir í málinu, er kveiki í mönnum, svo að upp úr sjóði í bráð eða lengd. Fremur flestu öðru hreyfir áfengisbölið við mönnum á öllum sviðum félagslífs- ins, í kirkjufélögum, pólitískum félög- um, og öðrum félögum á sviði siðgæðis-, menningar- og framfaramála . . . Aðal- andstæðurnar eru bindindishreyfingin í heild og áfengisauðmagnið . . . Árið 1948 fengu stórblöðin þrjú, Life, Time og Fortune, rúma hálfa þrettándu mill- jón (12,7) dollara fyrir áfengisauglýs- ingar“. Það er hægt að eiga vingott við blöð með slíku fjármagni. í málgagni brugg- aranna (The American Brewer) í jan- úar 1949, segir: „Hver áfengisgerð verður að leggja enn meira kapp á auglýsingar til þess að geta selt framleiðslu sína, en í heild verður þessi iðngrein okkar að kapp- kosta af fremsta megni ölsöluna“. Félag minniháttar bruggara (Small Brewers Association) héldu landsþing í Chicago í október 1949. Frásögnin af umræðum manna á þessu þingi, sýnir bezt, hvílíkt kapp er lagt á það að koma áfengu drykkjunum í menn. Þar var rætt um nauðsyn þess að kenna veit- ingamönnum að veita ölið á réttan hátt. Þeir þyrftu að læra að hella ölinu í glösin þannig, t. d. í glasið aðeins hálft og lárétt, til þess að vindbólurnar hjöðn- uðu í glasinu, en ekki maga neytandans, svo að hann gæti drukkið þeim mun meira. í einu blaði bruggaranna birtist rit- stjórnargrein 1951, þar sem rætt er um nauðsyn þess að kenna unglingum á aldrinum 10—20 ára að drekka í hófi. Allir vita, í hvaða átt slík spor stefna. Um þetta segir norski kennarinn í grein sinni: „Næsta áætlun áfengisauðmagnsins virðist vera sú, að ná sem öruggum við- skiptamönnum konum og unglingum á aldrinum 13—19. Skólanemendur á / þessum aldri, sem jafnan hafa verið ásóttir af hinum akademisku drykkju- siðum, eiga nú einnig að verða keppi- kefli áfengisauglýsinganna“. Greinarhöfundur birtir svo kafla úr bréfi, sem bindindisfræðslustjóri í Was- hingtonríkinu fékk 20. febrúar 1951, frá brennivínsinnflytjanda í New Or- leans. I bréfinu segir: f „Bjórsamlagið lýsti yfir því 12. marz 1947, að áform þess væri að auka söl- una úr 80 milljónum tunna (ein tunna er 120 lítrar), og stjórn samlagsins stefnir að því að örva ílöngunina, og sérstaklega hjá ungu kvenfólki og ung- lingum á aldrinum 10—20 ára, og auka þannig neyzluna og söluna“. I umræðunum á bruggaralandsþing- ^ inu, sem áður var nefnt, var einnig lögð á það áherzla: „Að kenna amerískum konum að drekka. Bjóða þeim í áfengisveitingastofurnar og barina. Kenna ungu fólki hvernig það eigi að drekka áfenga drykki. Að venja æskulýðinn við brenni- vínið“. * „Þetta eru aðeins smáglætur“, segir greinarhöfundur, „er áfengisauðmagnið hefur látið koma í dagsljósið, og má sennilega nokkuð af því ráða, hvað ger- ist á bak við tjöldin“. Þessi ósvífni áfengissalanna hefur kveikt í mönnum og orðið til þess að hleypa bindindisliðinu kapp í kinn. — Áfengissalinn neytir allra bragða í aug- * lýsingaherferð sinni, og bindindissam- tökin reyna að mæta honum með hlið- stæðum vopnum. Til dæmis hafa bind- indissamtökin í Washingtonríkinu, segir norski kennarinn, látið gera geysilega mikið auglýsingaþil við aðalbrautina milli Seattle og Everett, sem liggur áfram til Canada. Hægra megin á þetta f i mikla auglýsingaþil var sett að hálfu leyti auglýsing áfengissalans, en vinstra megin hryggðarmyndin algenga, sem áfengisneyzlan fæðir af sér. Fyrirtækið, sem átti áfengisauglýs- inguna, hótaði málsókn, ef bindindis- félagið tæki ekki niður þá, er það hafði látið setja upp, en fékk viðeigandi svar og áminningu frá lögfræðilegum ráðu- naut bindindisfélagsins, og það dugði. Bindindisfélagið lét einnig setja upp geysimikið auglýsingarþil gegn vissri ölauglýsingu, þar sem sagt var, að ölið vœri fyrir heimilið. Á auglýsingarþili bindindisfélagsins var setningunni snú- ið þannig, að ölið vœri slysavaldurinn. * A þilið var máluð raunveruleg mynd af bílslysi, er orsakaðist af ölvun við akstur. Lögreglan hafði tekið myndina. W*

x

Eining

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.