Austurland - 17.10.1985, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR, 17. OKTÓBER 1985.
3
Viðtal við Helgu Jóhannesdóttur:
Verkalýðsfélögin eru fólkið sjálft
Helga Jóhannesdóttir.
Ljósm. B. S.
AUSTURLAND náði tali af
Helgu Jóhannesdóttur, Stöðvar-
firði, á vinnuverndarráðstefnunni
á Iðavöllum og spurði fyrst:
□ Pú ert bónustrúnaðarmaður í
frystihúsinu á Stöðvarfirði.
Hvernig er ástandið hjá ykkur í
öryggismálum og hafið þið örygg-
istrúnaðarmann?
■ Já, við höfum öryggistrúnaðar-
mann á staðnum. Alltaf má nú
betrumbæta í þessum öryggismál-
um, alltaf má tína eitthvað til. Oft
er það, eins og fram hefur komið
hjá mörgum hérna, að fólki finnst
þetta vera afskiptasemi í manni,
þegar verið er að benda á ýmsa
hluti, því finnst það vera nöldur.
Viðtal við Sigurð Hannesson:
Brýnt að auka fræðslustarfsemi
Á vinnuverndarráðstefnunni á
Iðavöllum náði AUSTURLAND
tali af Sigurði Hannessyni, for-
manni Verkalýðsfélagsins Jökuls
á Hornafirði, en hann er jafn-
framt varaformaður Alþýðu-
sambands Austurlands. Og hann
var fyrst spurður:
□ Hvað vilt þú segja um þann þátt
í starfí verkalýðsfélaganna, sem
við getum kallað frœðslustarf-
semi? Er hann nógu vel rœktur og
ertu ánœgður með hann?
■ Mér finnst hann nú kannski
hafa verið heldur lítið ræktur
fram að þessu, en ég tel, að það
sé að færast í aukana. Ég tel mjög
brýnt að auka fræðslustarfsemi og
ég held, að það skili sér alltaf.
f>að er eftirtektarvert, að þegar
fólk fer á ráðstefnur og námskeið,
er það miklu áhugasamara fyrst á
eftir. Pess vegna held ég, að það
sé nauðsynlegt að hafa slíkt alltaf
annað slagið til að halda fólki við
efnið. Ég er mjög ánægður með
þessa ráðstefnu og ég trúi því, að
hún eigi eftir að skila einhverjum
árangri á þessu sviði.
□ Finnst þér samband verkalýðs-
félaganna og vinnueftirlitsins
nœgilega mikið eða nœgilega
markvisst?
■ Nei, mér hefir nú ekki fundist
það. Ég þori ekki að segja, hverj-
um það er að kenna, það getur
verið báðum aðilum að kenna.
□ Ertu ánœgður með aðsókn að
þessari ráðstefnu hér?
■ Mér finnst hún vel sótt, það eru
hér mörg félög með marga full-
trúa hvert, en það eru þó viss
félög, sem vantar alveg fulltrúa
frá.
Mér varð hugsað til þess í gær,
þegar framsöguerindin voru flutt
hérna, að það hefði verið mjög
gott, ef það hefðu verið fulltrúar
frá vinnuveitendum hérna með
okkur, t. d. verkstjórar. Þeir
hefðu haft mjög gott af því að
vera hérna og ég hugsa, að það
hefði skilað meiri árangri heima
í fyrirtækjunum, því að það er
hætt við, að þegar við komum
heim og ætlum að fara að láta ljós
okkar skína í þessum efnum að
það verði lítið hlutstað á okkur,
en það yrði frekar gert, ef þeir
hefðu verið með.
□ Áttu von á, að árangurþessarar
ráðstefnu geti orðið sá, að skipaðir
verði öryggistrúnaðarmenn og ör-
yggisverðir á öllum vinnustöðum,
mérskilst, að þarskorti nokkuðá?
■ Já, ég er ekki frá því. Annars
held ég, að vinnueftirlitsmenn
þyrftu að sýna sig meira í fyrir-
tækjunum til þess að það yrði gert.
Ég veit, að það voru víða kosnir
öryggistrúnaðarmenn fljótlega eft-
ir að þessi lög tóku gildi. Þeir voru
kannski lítið undirbúnir í þetta
verkefni, en áhugasamir í fyrstu,
en áhuginn hefir svo minnkað
smám saman, því að það hefir of
lítið verið stutt við bakið á þeim af
vinnueftirlitinu og þeir alltof mikið
einir í sínu starfi.
□ Par með lauk spjalli okkar
Sigurðar Hannessonar og
AUSTURLAND þakkar honum
viðtalið. B. S.
Og maður verður óvinsæll fyrir
svoleiðis lagað.
□ Styður verkalýðsfélagið ekki
við bakið á þessum trúnaðar-
mönnum?
■ Jú, ég held það í flestum tilvik-
um, en það mætti alveg vera
sterkari stuðningur.
□ Finnst þér vinnueftirlitið hér á
Austurlandi vera virkt og koma
ykkur að gagni?
■ Ég veit ekki svo vel um það.
Ég hef ekki leitað sjálf neitt til
þess. Maður kemur ábendingum
til öryggistrúnaðarmannsins og
hann hefur samband við eftirlitið.
□ Hvað viltu segja um þessa ráð-
stefnu hérna?
■ Maður fer náttúrulega á svona
ráðstefnu til að verða einhvers
vísari eða fróðari og lærir auðvit-
að alltaf eitthvað. Hér koma fram
önnur og fleiri viðhorf.
□ Heldurðu að þetta skili þá ein-
hverju fyrir ykkur síðar?
■ Það skilar alltaf einhverju, en
erfitt er að meta, hversu mikið það
er. En það sem mér finnst aðallega
vera að í sambandi við þessi mál
öll, er það, að mér finnst fólk al-
mennt ekki vera nógu vakandi.
Það eru lagðir fram bæklingar og
ábendingar um ýmislegt, sem betur
mætti fara, t. d. of mikinn hávaða
og of lág borð, en fólkið sjálft geng-
ur ekki nógu vel eftir, að eitthvað
sé gert í málinu. Það þýðir ekkert,
að einhver einn sé að ýta við þessu,
þá er hann bara talinn nöldrari.
□ Margt af þessu kostar sennilega
ekki mikla peninga?
■ í mörgum tilvikum mætti laga
mikið án þess að vera með mikil
fjárútlát. Það er samvinnan sem
gildir í þessu.
Það er ekkert frekar í þessum ör-
yggismálum en verkalýðsmálum
almennt. Fólk virðist vera sofandi fyr-
ir þessu. Verkalýðsfélögin eru fólkið
sjálft, ekki bara þessir fimm sem kosn-
ir eru í stjóm. Og á meðan fólk stend-
ur ekki saman, næst ekkert fram,
hvort sem það er í vinnuvemd-
armálum, launamálum eða öðm.
Sigurður Hannesson.
Ljósm. B. S. Skynsamlegra vœri að leggja aðaláhersluna á gœði vinnslunnar.
□ Hvað vilt þú segja um bónus-
samningana, sem nú eru til um-
fjöllunar? Eruð þið búin að sam-
þykkja þá?
■ Nei, það er ekki búið að sam-
þykkja þá, þeir verða sennilega
teknir fyrir í næstu viku. En það
sem ég hef séð af þeim finnst mér
fyrir neðan allar hellur, vegna
þess að við höfum akkúrat ekkert
út úr þeim.
□ Pað er einmitt það, sem mig
grunaði.
■ Það átti að halda sig við kröf-
una, sem sett var fram í upphafi
urn þessar 30 kr., því að munur
tímakaups og bónuss er orðinn
alltof hár í öfuga átt. Við viljum
fá þær breytingar, að tímakaupið
hækki og þakið lækki, svo að
menn þurfi ekki að leggja svona
rosalega mikið á sig til að ná þess-
um krónum inn. Það endist engin
manneskja til að vera í svona bón-
usvinnu nema í hæsta lagi 10 ár,
þá er hún gjörsamlega búin.
□ Pað er þá enginn ávinningur að
þessum samningi?
■ Ekki get ég séð það. Þeir sem
hafa reiknað þetta út og prófað,
segja að þetta komi verr út en
áður, og ég ætla að vona, að fólk
fari ekki að samþykkja þessa vit-
leysu.
□ En hvernig stendur á því, að
forsvarsmenn Verkamannasam-
bandsins lýstu þvíyfir við undirrit■
un samninganna, að þetta vœri
bestu bónussamningar, sem gerðir
hefðu verið?
■ Það er greinilegt, að þeir sem
hafa skrifað undir og telja þetta
bestu samninga, sem gerðir hafa
verið, hafa ekki unnið undir þessu
bónusálagi. Annað getur ekki
verið. Þeir geta ekki vitað nákvæm-
lega út á hvað vinnan gengur. Þá
hefðu þeir ekki skrifað undir samn-
inga, sem koma verr út en það sem
áður var, sérstaklega hjá þeim, sem
eru með háa nýtingu.
Mér finnst aðalspurningin í
þessum bónusmálum vera af
hverju atvinnurekendur vilja ekki
borga fyrst og fremst fyrir gæðin,
en alltaf skuli miðað við þessi
afköst, þennan mikla hraða, til að
koma sem mestu hráefni í gegn-
um húsin, burtséð frá því, hvernig
hráefnið fer í gegn. Ég held það
væri miklu skynsamlegra að
leggja aðaláhersluna á gæði
vinnslunnar og greiða fyrir gæðin.
Að svo mæltu slitum við Helga
talinu, og AUSTURLAND
þakkar henni viðtalið.
Þess má svo geta, að Verka-
lýðs- og sjómannafélag Stöðvar-
fjarðar felldi bónussamningana
11. okt. varðandi frystihúss-
vinnuna með 23 atkv. gegn 3 -
einn seðill var auður - og varð-
andi saltfiskvinnuna með 8 atkv.
gegn 1. B. S.