Eining - 01.04.1959, Síða 3

Eining - 01.04.1959, Síða 3
E I N I N G 3 * 14> templarar Ritstjórn blaósíðunnar: Guðmundur Þórarinsson og Einar Hannesson. <&■ 4> _____> * Vorhvöt Ungtemplarar! — veginn vísið, vakið yfir heillum lands. Byggðir fögrum blysum lýsið, bjartar leiðir vorhugans. Látið snjalla unaðsóma, ylja hugann bjartri þrá Látið vorsins hlýju hljóma, hjörtum æskufólksins ná. Það er ykkar, strengi að stilla, stórum vonum lyfta hátt. Það er ykkar, hugi að hylla, halda djarft í sólarátt, lýsa björtum æsku eldi, yndi vekja í hverjum bæ. Hefjið þjóð með vorsins veldi, veitið yl um land og sæ. G. Þ. Tómsftundir Elfa tímans streymir áfram með ógn- þrungnum hraða. Allt er á ferð og flugi, vélaskarkali, ys og þys, setja sinn svip á stað og stund, fylla fólk eirðarleysi. Alls konar auglýsingar og áróður sogar til sín og víst er um það, að margur má gæta sín á að týna ekki sjálfum sér í allri þeirri hringiðu. Ein dýrmætasta eign hvers og eins eru frístundirnar, sé þeim rétt varið. Þær gefa næði til íhugunar og lesturs góðra bóka og þá geta menn gefið sig að áhugamálum sínum. Sagan segir okkur, að mestu mikil- mennin, þeir menn, sem heimurinn á mest að þakka, hvort sem það eru lista- menn, stjórnmála- eða vísindamenn, hafi vaxið mest af því að nota sínar frí- stundir rétt. Einn þeirra sem hæst ber í þeim hópi, er hinn frægi forseti Bandaríkj- anna, Abraham Lincoln. Hann segir: ,,Á unglingsárum mínum gekk ég í fimm skóla, en allur námstíminn saman- lagt var 12 mánuðir.“ Allar tómstund- ir notaði hann til þroskunar, mest við lestur góðra bóka. Fáir hafa lyft þjóð sinni og raunar mannkyninu hærra en hann gerði með vitsmunum sínum og mannkostum, — Thomas Alva Edison, var aðeins nokkra mánuði í skóla, frí- stundirnar notaði hann til lesturs og tilrauna. — Öllum eru kunn afrek hans. — Þá væri ekki úr vegi að minna á íslenzkan sveitapilt, Stephan G. Step- hanson, eitt snjallasta skáld Islendinga og eitt fremsta skáld í öllum nýlendum Breta á sínum tíma. Allt sitt andans atgjörvi fékk hann við lestur góðra bóka og íhugun. Vissulega má segja, að ekki sé fyrir alla. að feta í fótspor þessara manna, en jafnvíst er það, að hver maður vex af vel notuðum tómstundum og víst er, að ekkert er æsku landsins háskalegra, en að eyða þeim í vondum félagsskap á slæmum skemmtistöðum. Islenzkir ungtemplarar hafa komið á gagnlegri tómstundaiðju. Með því hafa þeir viljað sveigja áhuga ungmenna frá óhollum stöðum og göturápi, og gefa þeim tækifæri til að eyða tíman- um á gagnlegan hátt í góðum félaga- hópi. Reglan hefur stutt þetta mál drengilega og fleiri aðilar, svo sem bæir og áfengisvarnarnefndir. Vissulega er þörf á að félög, heimili og skólar laði unga fólkið að tóm- stundaiðju. það getur á ýmsan hátt orðið því til gagns og ánægju, tengt það hollum félagsböndum og gefið því rétt- ari lífsstefnu. Hin velheppnaða sýning Æskulýðsráðs Reykjavíkur í haust: ,,Með eigin höndum“, gaf nokkra bend- ingu um hvað hægt er að gera. íslenzkir ungtemplarar og Reglan munu gera sitt til að auka það starf, sem hafið er og gera það fjölþættara. Þá er það og stórt verkefni að vekja áhuga æskunnar á góðum bókum, því hvað er ekki hægt að læra af þeim? Til þess mundu leshringar mjög gagnlegir. Stephan G. Stephanson kveður svo: Þitt er menntað afl og önd, eigirðu fram að bjóða, hvassan skilning, haga hönd, hjartað sanna og góða. Það er vel sagt og stórt mark að keppa að, hvernig það heppnast fer að miklu leyti og raunar mestu eftir því, hve frístundirnar eru vel notaðar. G. Þ. FRÉTTIR ÍUT hélt 6. Geslakvöld sitt í Góðtemplara- húsinu sunnudaginn 15. marz s. 1., og liófst það kl. 9 e .h. Þangað hafði verið boðið nemendum úr 2. hekkjardeild Gagnfrœða- skóla Austurbæjar og fjölmenntu þeir svo að húsfyllir varð. Dagskráin liófst á þvi, að ritari ÍUT flutti ávarp og kynnti gestunum starfsemi ungtemplara. Þar næst flutti Gunnar Dal, erindreki, ræðu, þá sungu 5 stúlkur úr ungtemplarafélaginu Hálogalandi nokkur lög með gítarundirleik, leikflokkur úr st. Einingin, undir stjórn Þorvarðar Örnólfssonar, flutti tvo stutta leikþætti, séra Árelíus Níelsson las upp, og að lok- um var stiginn dans. í lokin kvaddi sér hljóðs Helgi Þorláksson, yfirkennari. Hann flutti þakkir gestanna og bað viðstadda að hylla ÍUT með ferföldu húrrahrópi. — Eins og áður veitti Áfengisvarnarnefnd Reykjavíkur fjárstuðning til þessa út- breiðslu kvölds og húsráð góðtemplara lán- aði Gt-húsið endurgjaldslaust. Sunnudaginn 8. marz s. I. fór fram æsku- lýðsguðsþjónusta í öllum kirkjunum í Rvík, og víðar. Formaður ÍUT, séra Árelíus Niels- son flutti messu í Laugarneskirkju þenna dag og aðstoðuðu ungtemplarar við messu- gjörðina með upplestri og söng. Kirkjan var fullskipuð og meðal kirkjugesta var biskup- inn yfir íslandi, herra Ásmundur Guð- mundsson. Guðsþjónustunni var útvarpað. Sunnudaginn f. nmrz s. I. var ÍUT boðið að kynna starfsemi ungtemplara á skemmt- un dansklúbbs æskufólks, sem Æskulýðs- ráð Reykjavíkur pg Áfengisvarnai’nefnd Reykjavíkur liafa komið á fót. Ritari ÍUT, Einar Hannesson, flutti þar ávarp, sagði frá fjölþættri starfsemi ungtemplara, en að því loknu fóru félagar úr þremur ung- mennastúkum (Andvara — Framtíðinni — Gefn) með gamanþátt og að síðustu söng Spaðakvintettinn úr Hálogalandi nokkur lög. — Framhald á 4. bls. 1. þing ÆskulýOssanv- bands Islands var háð í Reykjavlk dagana 21. og 22. marz sl. 1 sambandinu eru 11 af 13 æskulýðs- félögum Isl. og eru fé- lagsmenn 50—60 þúsund. 1 næsta blaði verður skýrt meira frá þessu. Fulltrúar Isl. ungtempl. voru á þinginu, séra Áre- líus Níelsson, form. sam- bandsins og Gissur Páls- son og Einar Hannesson: — Myndin er frá þinginu. Forseti þess, séra Árelíus Níelsson, stendur fyrir miðju.

x

Eining

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.