Eining - 01.11.1968, Síða 3

Eining - 01.11.1968, Síða 3
E I N I N G 3 //éms, \ o c-t I/ SUMARMÁL Ritstjórn blaósiöunnar: Guömundur I’órarinsson og Einar Hannesson. Herkum áfanga náfí í starfi ÍUT 10. áirsþing íslenzkra ungtemplara var haldiÖ í Templarahöllinni í Reykjavík dagana 31. ágúst og 1. september s.l. Vm 30 fulltrúar frá ungtemplarafélögum víös vegar aö af landinu sátu þingiö, auk stjórnar og nefndarformanna samtak- anna. Viö þingsetningu voru viöstaddir ýmsir forustumenn bindindishreyfing- arinnar. Þingfulltrúar störfuöu í þrem- ur umræöuhópum, er ræddu helztu mál- efni samtakanna, og nefndir störfuöu. Þingiö geröi þrjár samþykktir um mannréttindi, bindindismál og tóbaks- mál. 1 þingsal haföi veriö brugöiö upp lítilli sýningu um mannréttindamálefni. Forseti þingsins var Brynjar Valdi- marsson, Kópavogi, en ritari Valdór Bóasson, Keflavik og Sigrún Helgadótt- ir, Reykjavík. Við þingsetningu léku Lárus Sveins- son, trompetleikari og Þorkell Sigur- björnsson, tónskáld nokkur lög. Þá flutti Ingi B. Ársælsson, varaformaður ÆSl, erindi um mannréttindamál og Ólafur Þ. Kristjánsson, stórtemplar á- varpaði þingið og flutti kveðjur og ósk- ir frá stórstúkunni. I skýrslu stjórnar ÍUT kom fram að töluverð grózka hefur verið í starfsem- inni á liðnu starfsári. I sumar hefur verið tíðindasamt af starfseminni. Fjög- ur mót og hópferð til Svíþjóðar á Nor- ræna ungtemplaramótið. Samtökunum bættist eitt nýtt félag á árinu, ungtempl- arafélagið Hamar í Vestmannaeyjum. Félagar 1200. Um síðustu áramót voru deildir Is- lenzkra ungtemplara 13 og félagar alls 1200. I stjórn IUT næsta ár eru þessir: Formaður Einar Hannesson, Reykjavík. Varaform. Sævar Halldórsson, Keflav. Ritari Aðalheiður Jónsdóttir, Reykjav. Gjaldkeri Einar Þorsteinsson, Reykjav. Fræðslustj. Brynjar Valdimarss., Kóp. Meðstj.: Haraldur Guðbjörnsson, Rvík. og Guðlaugur Þórðarson, Kópavogi. Formaður alþjóðanefndar IUT: Hilda Torfadóttir, Reykjavík. Form. útbreiðsluráðs Jónas Ragnarss. Form. f jármálaráðs: Kristinn Vilhjálmsson, Reykjavík. Aí annrétt indamál. I samþykkt þings ísl. ungtemplara um mannréttindamál segir: „Þing lUT, undir kjörorðunum: Bindindi — Bræðralag — Þjóðarheill, vill í tilefni af 20 ára afrnæli mannréttindayfirlýs- ingar Sameinuðu þjóðanna, minna á hve mikið skortir á að margar þjóðir virði þessa samþykkt. Samkvæmt yfirlýsing- unni eiga allir menn jafnan rétt til að lifa frjálsir og njóta öryggis. Enginn má beita ofbeldi eða líkamsmeiðingum. Þessi ákvæði eru fótum troðin í Vietnam og Biafra og víða annars staðar. Jafnframt eiga þjóðirnar rétt til að tjá sig í frjálsum almennum kosningum og velja sér þar með stjórnvöld. Þessu er ekki þannig farið í Grikklandi, S,- Afríku, Portúgal, Spáni og löndum með kommúnistiskt stjórnarfar. Allir menn eru samkvæmt yfirlýsing- unni fæddir jafnir og eiga án tillits til kyns, kynþátta og stjórnmálaskoðana jafnan rétt á menntun og kröfu um frjálsræði og réttindi á borð við aðra. Margar þjóðir virða ekki þennan rétt manna. I því efni má sérstaklega benda á kynþáttamisréttið í Suður-Afríku, ný- lendum Portúgala; Angola og Mosam- bique, Bandaríkjum Norður-Ameríku og Rhodesíu. Þá vill þingið benda á hina hryggilegu atburði, sem eru að gerast um þessar mundir í Tékkóslóvakíu. Vítir þingið harðlega það ofbeldi, sem þar er beitt, og væntir þess að þjóðir Tékkóslóvakíu öðlist sjálfsákvörðunarrétt sinn að nýju hið fyrsta. Það er von og ósk 10. ársþings ís- Vegna óliappa geta ekki þær myndir fylgt hlaösíðunni, sem áttu að birtast þar, en hér eru ungar snótir að skemmta sjálfum sér og öðrum. lenzkra ungtemplara, að á þessu alþjóð- lega mannréttindaári, megi skilningur þjóðanna fara vaxandi á nauðsyn þess, að allar þjóðir virði mannréttindayfir- lýsinguna." Bindindismál. „10. ársþing íslenzkra ungtemplara ítrekar, að áfengisneyzla ásamt stöðugt vaxandi misnotkun annarra eiturlyfta, veldur ennþá einu alvarlegasta þjóðfé- lagsvandamáli, sem við eigum við að búa. Rannsóknir og reynsla sanna, að skaðsemi áfengis er mest innan þeirra þjóðfélaga, sem mesta áfengisneyzlu hafa. Hið nána samhengi áfengisneyzlu og áfengisskaða er augljóst og því er það skoðun Islenzkra ungtemplara, að eigi

x

Eining

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.