Eining - 01.11.1968, Side 4
4
EINING
N G U F - þingið
I framhaldi af frásögn okkar af þingi
Norræna ungtemplarasambandsins í
sumar í seinasta blaði, má geta þess til
viðbótar, að þar var ákveðið, að NGUF
efndi árlega til námsskeiös fyrir þátt-
takendur frá öllum Norðurlöndunum. I
samþykktum þingsins er fjallað um
bindindismál og mannréttindamál í
svipuðum tón og í samþykktum 10. árs-
þings ÍUT, sem eru hér á síðunni. Þá
var gerð ályktun um fjármál alþjóð-
legra æskulýðssamtaka. Þar er lýst
harðri gagnrýni á það háttalag, sem
tíðkast hafði um árabil, að ýmsir aðilar
með annarleg sjónarmið kostuðu að ein-
hverju leyti alþjóðlega æskulýðsstarf-
semi, eins og t. d. leyniþjónusta Banda-
ríkjanna, sem upp komst á sínum tíma.
Merkum áfanga náð...
Framhald af 3. bls.
verði unnt að koma í veg fyrir tjón af
völdum áfengis meðan neyzla þess til
nautna er viððurkennd.
Með tilliti til þessa vill fUT leggja
áherzlu á, að allir þurfa að leggjast á
eitt til þess að leysa þetta vandamál og
teljum við að ríki og bæjarfélögum beri
að ganga á undan með því að sýna gott
fordæmi og hafa ekki áfengi um hönd
í opinberum veizlum.
fUT vill sömuleiðis vekja athygli á þeirri
ábyrgð, sem hljóðvarp, sjónvarp og blöð
hafa og hvetur þingið þessa aðila til þess
að auka fræðslu um eiturlyfjavandamál-
ið og vera á verði gagnvart þeirri leyndu
auglýsingu, sem áfengisneyzla fær oft í
formi skemmtiþátta og kvikmynda."
Skaðsemi sígarettureykinga.
„Ársþing íslenzkra ungtemplara 1968
vill ítreka fyrri samþykktir um skað-
semi tóbaksreykinga og hvetja almenn-
ing til þess að beita áhrifum sínum gegn
þeim bölvaldi, sem sígarettureykingar
eru gagnvart heilsu manna. Telur þing-
ið það vera skyldu ábyrgra aðila að
sporna á allan hátt gegn sígarettureyk-
ingum og í því efni skorar þingið á ríkis-
stjórnina að banna tóbaksauglýsingar.“
Skoraði þingið á Norræna ráðið að taka
þessi mál til meðferðar og verði unnið
að því að efla Æskulýðssjóð Evrópu,
sem stofnaður hefur verið, til þess að
hann geti í ríkum mæli styrkt æskulýðs-
samtökin í Evrópu og reyndar víðar,
t. d. í þróunarlöndunum, í þeirra mikil-
væga hlutverki til hagsbóta fyrir þjóð-
irnar. Bent er á, hve þetta starf sé
brýnt og þörfin fyrir það fari vaxandi
með hverju ári.
Jaðarsmótið 1968.
Jaðarsmótið var haldið um eina helg-
ina í ágúst. Þá voru tjaldbúðir að Jaðri
og skemmtikvöld bæði kvöldin og léku
Hljómar frá Keflavík og Ma’estro úr
Kópavogi fyrir dansinum. Á sunnudag
var guðsþjónusta, séra Sigurður Hauk-
ur Guðjónsson prédikaði. Síðar um dag-
inn voru skemmtiatriði. Mikil óheppni
var, hve veður var slæmt um þessa helgi.
En þrátt fyrir það sóttu mótið 800 ung-
menni, og tókst að halda strikinu og
olli því sú aðstaða að Jaðri, að þátttak-
endur, sem höfðu tjaldað, gátu gist inni
að Jaðri. Var þétt setinn bekkurinn að-
faranótt sunnudagsins og er líklegt að
aldrei hafi fleiri en þá gist inni að
Jaðri.
Æskulýðsleiðtoganámsskeið í Noregi.
Sigþór B. Karlsson, félagi í Árvak í
Keflavík sótti æskulýðsleiðtoganáms-
skeið í Noregi í ágústmánuði og mun
hann segja frá námsskeiðinu í næsta
tölublaði.
Þessi var farkostur forfeðra okkar um höfin.
Auðsóttari er förin nú á flugvélunum og reyn-
ir mun minna á karlmennskuna.
Frú Barbara Castle, umferðarmálaráðherra
Breta.
Morgum mannslífum bjargað
Aðvaranir og frœðsla dugðu ekki
Umferðarmálaráðherra Breta, frú Bar-
bara Castle, gekk rösklega fram í því að fá
löggjöf til varnar ölvun við akstur. 9. okt.
1967 varð frumvarp um slíkt að lögum í
Bretlandi og heita þau lagaákvæði „Brit-
ain’s new Road Safety Act.“
Samkvæmt þessum lögum getur lög-
reglumaður látið grunaðan ökumann anda
í þar til gerða blöðru. Ef blaðra þessi sýn-
ir með ákveðnum lit, að ökumaðurinn hef-
ur neytt áfengis, getur lögreglumaðurinn
farið með hann til læknisrannsóknar. Reyn-
ist hann sekur, er hann dæmdur í meira en
15 þúsund króna sekt eða fjögurra mánaða
fangelsi, eða hvorutveggja.
Mest var það þessum lögum að þakka að
á fimm dögum um jólaleytið 1967 urðu um-
ferðarslysin í landinu aðeins 3.096 í stað
4.239 árið 1966, og dauðaslysin þessa daga
1967 aðeins 98 í stað 158 árið áður. Þannig
spöruð 60 mannslíf.
Hér varð ljóst, eins og oft áður, að helzt
eru það hömlurnar, sem ná nokkrum mark-
verðum árangri, góð orð nægja oftast ekki,
því miður, hvatningar og viðvaranir koma
lítt að haldi við kæruleysi og óbilgirni. Þar
verður hönd laganna að grípa í tauminn,
traustum og góðum tökum.
Bindindisfélag ökumanna í ýmsum lönd-
um, ekki sízt á Norðurlöndum, hafa mjög
ýtt undir löggjöf til varnar ölvun við akst-
ur. Tryggingafélög bindindisfélaga öku-
manna, eins og t.d. Ansvar í Svíþjóð, hafa
unnið mikið og þarft verk í þessum efnum
og verið þar brautryðjendur.
I sambandi við hið geigvænlega áfengis-
böl í flestum löndum, verður að koma til
langt um markvissari löggjöf en sú, sem
við nú höfum.
Heimild: Alert.