Eining - 01.11.1968, Blaðsíða 11
EINING
11
DRAUMUR JÓLANNA
Á jólunum verðum við aftur ungir,
sem. aldur er tekinn að hrjá.
Þá fæðist ávallt hið eina mesta,
sem allar mannssálir þrá:
Vonin og trúin á friðinn og frelsið,
þá fagna börnin — og við með þeim.
Ljóshafið flæðir um allt og alla,
og okkur dreymir um nýjan heim,
svo leysist mannanna mikli vandinn
og miskunn drottins þerri öll tár. —
Gefi oss öllum Guðssonar andinn
gleðileg jól — og friðarins ár.
P. S.
3. Næst er að víkja að starfi safnaðanna að líknarmálum,
þjónustustarfinu, diakonia. Það orð hefur verið mjög uppi
í umræðum um hlutverk kirkjunnar á alþjóða vettvangi. á
vegum alkirkjuráðsins. Á því sviði er þörf fræðslu, aðstoðar
og hvatningar.
Því miður hefur ekki farið mikið fyrir þvílíkri safnaða-
þjónustu í íslenzku kirkjunni. Með öðrum þjóðum, og ekki
sízt á Norðurlöndum, hefur hún verið miklu öflugri, þótt
ekki verði það rakið hér. I sænsku kirkjunni er þjónustu-
starfi ætlaður ákveðinn sess í reglugerð um stjórn safnað-
anna frá 1961. Þar er komizt svo að orði, að söfnuðunum
beri að „efla kiústilega starfsemi meðal barna og unglinga,
aldurhniginna, sjúkra og annarra, er þarfnast umönnunar".
Með því er þjónustustarfinu, og þar með einnig við þá er
þjást af völdum drykkjuskapar, ætlað ákveðið hlutverk í
starfsemi safnaðanna.
Reynslan sýnir, bæði hér og erlendis, að þörf er að vekja
athygli á þessu hlutverki kristilegrar þjónustusemi, og að
þörf er skipulegra samtaka, sem geta leiðbeint, útvegað
nauðsynleg hjálpargögn og samræmt starfið og eflt. Þess
vegna er þörf á kristilegum bindindissamtökum.
4. Bindindisstarfsemin má ekki vera einhliða né einangruð
ofstækishreyfing. Hún þarf að taka tillit til allra mannlegra
viðhorfa, miða að því að móta persónuleik manna til alhliða
siðrænnar uppbyggingar.
Kristindómurinn með áherzlu sinni á manngöfgun og sið-
ferðilega þroskun einstaklingsins og siðræna mótun sam-
félagsins í samræmi við kærleiksboðorðið er bezti grundvöll-
urinn undir þá alhliða uppeldisstarfsemi, sem á að vera aðall
heilbrigðrar bindindisboðunar og áfengisvarna. Þess vegna
er einnig þörf kristilegrar bindindisstarfsemi.
5. Síðasta atriðið stendur í sambandi við þetta. Víða
hefur dregið úr kristilegum áhrifum í bindindisstarfseminni,
jafnvel meðal góðtemplara hefur hið trúarlega orðið að
víkja í skuggann innan stórstúkna margra landa. Sem betur
fer hefur ekki farið svo enn hér á landi að öllu leyti, þótt
greina megi á vissum sviðum tilhneigingar í þá átt. Hinn
trúarlegi eldur er nauðsynlegur til að halda vakandi áhuga
og eldmóði þeim, sem einkenndi bindindishreyfinguna á upp-
hafsskeiði hennar og lengi fram eftir. Bindindisstarfsemin
þarf að glæðast kærleiks- og sannleiksanda kristindómsins.
Björn Magnússon.
Hin heilaga glóð
J ólaguðsp j allið
Og í þeirri byggð voru fjárhirðar úti í haga og
gættu um nóttina hjarðar sinnar. Og engill drott-
ins stóð hjá þeim og dýrð drottins ljómaði í kring-
um þá, og urðu þeir mjög hræddir. Og engillinn
sagði við þá: Verið óhræddir, því sjá, ég boða
yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðn-
um, því að yður er í dag frelsari fæddur, sem er
Kristur drottinn, í borg Davíðs. Og hafið þetta
til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og
liggjandi í jötu. Og í sömu svipan var með englin-
um fjöldi himneskra hersveita, sem lofuðu Guð
og sögðu:
Dýrð sé Guði í upphæðum, og friður á jörðu með
þeim mönnum, sem hann hefur velþóknun á.
Og er englarnir voru farnir frá þeim til himins,
sögðu hirðarnir hver við annan: Vér skulum fara
rakleiðis til Betlehem og sjá þennan atburð, sem
orðinn er og drottinn hefur kunngert oss. Og
þeir fóru með skyndi og fundu bæði Maríu og
Jósef, og ungbarnið liggjandi í jötunni. En þegar
þeir sáu það, skýrðu þeir frá því, er talað hafði
verið við þá um barn þetta. Og allir, sem heyrðu
það, undruðust það, sem hirðarnir sögðu þeim.
En María geymdi öll þessi orð og hugleiddi þau
með sjálfri sér. Og hirðarnir sneru aftur og veg-
sömuðu og lofuðu Guð fyrir allt það, er þeir höfðu
heyrt og séð, eins og sagt hafði verið við þá. —
Lúk. 2,8—20.
Moiorförerens Afholds-
forbund í Noregi 40 ára
Þetta ágæta félag bindindis- og umferðarmenn-
ingar í Noregi, skammstafað MA, varð 40 ára 25.
október sl. Það voru glaðir og reifir menn, sem
þar gengu til afmælisfagnaðar, og ekki að ástæðu-
lausu, því að frá upphafi hefur það farið sína
sigurför og unnið geysilega mikið og þarft verk
í landinu. Það hefur átt snjalla og tilþrifamikla
foringja, sem hafa verið lífið og sálin í stöðugt
vaxandi framförum þess. Meðal annars hefur fé-
lagið stundað góðaksturskeppni árlega á mörgum
stöðum í landinu og hefur slíkt vakið athygli allrar
þjóðarinnar og stuðlað mjög að bættri umferðar-
menningu. MA rétti okkur á Islandi leiðbeinandi
hönd, þegar við vorum að byrja að ala upp okkar
Bindindisfélag ökumanna.
BFÖ á íslandi sendir MA beztu kveðjur og hug-
heilar heillaóskir (de beste lykönskninger om uaf-
brudt sejersgang i de kommende ár).