Eining - 01.11.1968, Qupperneq 12

Eining - 01.11.1968, Qupperneq 12
12 E I N 1 N G NÍUNDA NORRÆNA BINDINDISNÁMSSKEIÐIÐ * SLENDINGUM er það bæði löng og kostnaðarsöm för að fara til funda eða námsskeiða alla leið til Lo- foten í Norður-Noregi. Að þessu sinni var líka aðeins einn frá Islandi á náms- skeiðinu þar nyrðra. Förin þangað var þó eftirsóknarverð á marga vegu. Þeim mörgu námsskeiðsgestum, sem fóru sjó- leiðina frá Björgvin og alla leið norður, mun hafa fundizt mikið til um þá sigl- ingu, því að sigla innan skerja við strendur Noregs er sannkölluð ævin- týraför. Islendingar hafa þó ekki látið sitt eftir liggja að fara utan til þinga, funda og móta í nágrannalöndunum. I sumar sem leið fóru 40 héðan til móts ung- templara í Svíþjóð og var sagt frá því í síðasta blaði. Þá fóru 15 héðan til Svíþjóðar og sátu þar þing Musteris- riddara reglunnar. Það var í Umeá dag- ana 1.—5. ágúst sl. og væri það út af fyrir sig gott frásagnarefni. Þetta þing sátu um 1000 þátttakendur. Einn Is- lendinganna var Kristinn Vilhjálmsson starfsmaður Hitaveitu Reykjavíkur, einmitt maðurinn, sem fór alla leið norður til Lofoten. Hann dáðist mjög að forustumanni alþjóðareglu musteris- manna, en hann er Norðmaður, Thorleif Hanssen. Hann hafði flutt margar ræð- ur á þessu þingi þeirra, allar þróttmikl- ar og snjallar. Hann er afreksmaður hinn mesti, varð 79 ára einmitt einn þingdaginn. Hann kom til Islands fyrir nokkrum árum. En það er námsskeiðið í Kabelvág í Lofoten, sem er hér frásagnarefnið. Kristinn Vilhjálmsson taldi för sína þangað mikinn feng, að fá að kynnast landi og lýð þar norðurfrá. Þar er lands- lag fagurt, stórt í sniðum og svipmikið, og landið elur ávallt upp íbúa sína að einhverju leyti. Kristinn sagði slík þing sem þetta námsskeið vera mjög gagnleg og góð, þau víkkuðu sjóndeildarhringinn, þar kynntust samherjar frá ýmsum löndum, þar væri margvísleg og nytsamleg fræðsla veitt, fyrirlestrar fluttir og málin rædd. Námsskeiðið var dagana 17.—24. júlí, fulla átta daga. Móttökusamkvæmi var þó kvöldið fyrir hinn 17., en morg- uninn eftir var aðalopnunarfundurinn í húsakynnum námsskeiðsins, Vágan Lýðháskóla í Kabelvág. Aðalræðuna flutti þá amtmaðurinn í Norður-Noregi, Ole Avatsmark. Meðal annars kynnti hann þenna landshluta. ömtin eða fylk- in eru þrjú þarna norðurfrá og Nord- land er næst stærst þeirra, um 38.000 ferkm., íbúar 245.000, atvinnuvegirnir aðallega landbúnaður og sjávarútvegur fram að síðustu árum, en þar eins og víðast annars staðar gerir nýi tíminn ýms furðuverk í atvinnumálum. Hann minnti á, að í öllu hinu mikla umróti síðustu áratuga, hefði Góðtemplararegl- an miklu hlutverki að gegna, en mætti þá ekki stirðna og storkna í gömlum búningi, en vera reiðubúin til að sníða starfsaðferðir sínar eftir nútímans þörf. Þá talaði einnig Karstein Laupstað rektor lýðháskólans og lýsti ánægju sinni yfir því, að geta veitt móttöku í húsakynnum skólans þessum 130 náms- skeiðsgestum frá öllum löndunum í norðrinu, og bauð þá velkomna. Ræðu- menn voru fleiri. Síðar fyrrihluta þessa dags kynnti svo Karl Wennberg, fram- kvæmdastjóri Norræna Góðtemplara- ráðsins, tilhögun þessa bindindisnáms- skeiðs. Hér verður ekki fjölyrt um fyrirlestra og fræðslustarf námsskeiðsins, en einna markverðust þótti Kristni Vilhjálms- syni fyrirlestur norska félagsmálaráð- herrans, Egils Aarvik og önnur erindi um land og lýð. Sixten Pettersson, um- dæmistemplar frá Norrbotten í Svíþjóð flutti og mjög markvert erindi um leið- toganámsskeið og tilhögun þeirra. Þau þyrftu að standa yfir nokkuð langan tíma. Þótt byrjað væri með 100 þátt- takendum, mætti svo velja úr 50, og að síðustu ef til vill aðeins 10. 1 starfinu væri allt komið undir góðri forustu. Nauðsynlegt taldi hann að stúkurnar héldu sína vikulegu fundi, hve fámennir sem þeir væru og slökuðu aldrei á, höfða- talan væri ekkert aðalatriði. Kristinn sagði, að í Góðtemplararegl- unni í Svíþjóð hefði þeim ungmennum fjölgað miklu meira, sem væru í nánum tengslum við stúkur hinna eldri, en hinum sem væru meira fráskildir. Áreið- anlega er það mikilvægt að bilið milli yngri og eldri kynslóðarinnar brúist sem bezt og að samstarfið verði gott, báðum aðilum til framdráttar. Maðurinn sem Kristinn dáði þó allra Vágan lýðháskólinn í Kabelvág.

x

Eining

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.