Eining - 01.11.1968, Blaðsíða 16

Eining - 01.11.1968, Blaðsíða 16
16 E I N I N G Frá unglingareglunni Aldarfjórðungsafmœli „Einingarinnar“ Barnastúkan LJÖSIÐ nr. 156 í Lang- holtssókn í Reykjavík starfaði vel síðast liðinn vetur, eins og undan farin ár. Fundir voru reglulega á hálfs mánaðar- fresti allan starfstímann og sýndu börn- in frábæran áhuga í störfum. Komu þau ætíð með einhver félagsleg atriði á hverjum fundi og mörg þeirra mjög at- hyglisverð. Stúkan hefur alltaf haft þann sið að bjóða foreldrum og venzlamönnum barnanna á einn fund á ári, venjulega í marz, — foreldrafund, eins og við köllum hann, — og koma þá félagarnir fram í beztu hlutverkunum, sem þeir hafa flutt um veturinn. Fundir þessir eru jafnan vel sóttir og börnunum til mikils sóma. Barnastúkan LJÓSIÐ er enn eina stúkan, sem starfar á vegum kirkjunn- ar. Þegar Bindindisráð kristinna safn- aða var stofnað fyrir nokkrum árum, hóf Langholtssöfnuður í Reykjavík strax þessa félagsstarfsemi og hefur haldið henni óslitið síðan. Er nú þess að vænta, að hinir aðildarsöfnuðirnir í Bindindisráði kristinna safnaða og helzt sem allra flestir söfnuðir þjóð- kirkjunnar — taki fordæmi Langholts- safnaðar til fyrirmyndar og stofni til slíkra félagsstarfa innan vébanda sinna í haust eða vetur. íslenzkir söfnuðir eru enn alls ekki nógu virkir í bindindis- starfinu. Við þökkum LJÓSINU fyrir ágæt störf og óskum því allra heilla á kom- andi árum. Og Langholtssöfnuði þökk- um við mjög athyglisvert fordæmi, sem æskilegt er að hefði sem víðtækust áhrif. í haust sendi dr. Beck ritstjóra Einingar afrit af grein, sem hann hafði sent dagblaði í Rvík nokkru eftir síðustu áramót, en einhvern veginn hefur greinin tapast hjá blaðinu. Til þess nú að láta ekki vin minn Richard Beck hafa skrifað greinina til einskis, fer hún hér á eftir og er þökkuð hið bezta. — P.S. Með útkomu nóvember-desemberheft- is „Einingarinnar" síðastliðið haust voru liðin 25 ár frá því að þetta „mán- aðarblað um áfengismál, bindindi og önnur menningarmál" hóf göngu sína. Pétur Sigurðsson, fyrrv. erindreki, hef- ir frá upphafi verið ritstjóri blaðsins, og lengi séð um útgáfu þess að öllu leyti og borið ábyrgð á henni. Mun það rétti- lega almennt álit manna, að hann hafi leyst ritstjórnina af hendi með mikilli prýði, og að ritið hafi í höndum hans náð tilgangi sínum í ríkum mæli. En eins og hann tekur fram í ritstjórnar- grein sinni í umræddu hefti, á hann mörgum góðum samstarfsmönnum þakkarskuld að gjalda, enda verðskuld- ar málstaður sá, sem ritið er helgað, vissulega víðtækan stuðning þeirra sem láta sig skipta bindindis- og önnur menningarmál. Þeir 25 árgangar „Einingarinnar,“ sem út eru komnir, yrðu umfangsmikið rit í bókai'formi, og efnismiklir að sama skapi. Kennir þar bæði margra grasa og góðra, því að fjarri fer því, að ritið hafi einskorðað sig við bindindismálin, þó að þau skipi þar eðlilega mikið rúm. Það hefir einnig flutt fjölda athyglis- verðra greina um menningarmál á breiðum grundvelli, og sæg afmælis- greina og æviminninga, sem mikið er á að græða, bæði sem mannlýsingar og frá ættfræðilegu og mannfræðilegu sjónar- miði. Margar ritfregnir, og sumar ítar- legar, hefir „Einingin“ að geyma, og hugþekk og vekjandi ljóð, frumort og þýdd, eftir ritstjórann og aðra. Skal þá horfið að jólahefti blaðsins 1967 (þess síðasta er þetta var skráð). Má þar sérstaklega nefna hina efnisríku og ágætu ritgerð séra Páls Þorleifsson- ar, „Maðurinn með luktina,“ sem er að öðrum þræði jólahugleiðing og túlkar með eftirminnilegum hætti eilífan kær- leiks og friðarboðskap jólanna og fyrir- heit þeirra mönnunum til handa. Pétur Sigurðsson og séra Kristinn Stefánsson, áfengisvarnaráðunautur, rita prýðilegar og maklegar afmælis- greinar um Pétur Björnsson, erindreka Áfengisvarnaráðs, og frú Guðlaugu Narfadóttur, sem bæði urðu nýlega sjö- tug, og eiga sér að baki langt og mikið starf í þágu bindindismálanna. En vit- ur maður hefir sagt, að þakkarskuldin sé eina skuldin, sem göfgar manninn. Einar Hannesson, einn af tveim rit- stjórum æskulýðssíðunnar í ritinu, skrifar eftirtektarverða grein um frum- varp það til laga um æskulýðsmál, sem lagt hefur verið fyrir Alþingi. í nafni íslenzkra ungtemplara flytur hann Pétri Sigurðssyni einnig heillaóskir í tilefni af 25 ára afmæli „Einingarinnar,“ og vottar honum þakkir fyrir ágætt sam- starf og hið mikilvæga starf hans á sviði bindindis- og menningarmála. Balletsýning. Ævmtýraleikurinn Þyrnirósa. Ævintýraleiksýning. (Börnin bjuggu sjálf til búningana.

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.