Eining - 01.07.1969, Page 5

Eining - 01.07.1969, Page 5
EINING engu síður mannkostir hans, almenn framkoma hans og starfsemi á öðrum sviðum. Bindindismaður, sem nýtur virð- ingar og álits þeirra, sem til þekkja, vinnur málefni sínu, bindindinu, virð- ingu og álit. Það er tekið meira mark á orðum hans og skoðunum en ella. Það er tekið betur eftir fordæmi hans. Hann vinnur bindindinu mest gagn með því að vera sem mestur og beztur maður sjálfur. Það er ekki að ófyrirsynju, að það liggur í eðli bindindishreyfingarinn- ar að meta einstaklinginn og gildi hans mikils. En fáum einstaklingum er það gefið að standa einir, ef vel á að fara. Flestir erum vér þannig gerðir, að oss er nauð- syn að finna, að aðrir hafi skilning á áhugaefnum vorum, beri sömu málin fyrir brjósti, hugsi svipað og vér, gleðj- ist með oss, þegar vel gengur. Þetta er oss flestum ómetanlegur styrkur. Vér bindindismenn erum hér engin undan- tekning. Og sá er einn tilgangur þessa bindindisþings að veita þeim, er það sækja og sitja, þennan styrk, láta þá finna enn einu sinni, að þeir standa ekki einir í starfi, samhugur og árnaðaróskir margra manna bæði í þeirra eigin landi og öðrum fylgir þeim í baráttu þeirra fyrir aukinni bindindissemi, fyrir meiri menningu, fyrir betra og hollara lífi. Og þessi styrkur endist þeim miklu lengur en þingið varir. Þeir miðla öðrum af honum, eftir að þeir eru komnir heim til sín. Þessi áhrif þingsins á tilfinningar, á hugrekki og andlegt þrek þinggesta verða ekki mæld í metrum né vegin á vog, en þau eru ekki minna virði fyrir því. Þau verðmæti, er mestu varða í líf- inu, verða hvort eð er aldrei handfjölluð eða skoðuð dauðlegum augum. Bindindishreyfingin á íslandi er ekki öflug. Hún er það reyndar hvergi, — ekki sízt sé miðað við þörfina. íslenzkir bindindismenn vona — og eru reyndar vissir um — að þinghaldið verði til þess að styrkja hreyfinguna hér á þrennan hátt. í fyrsta lagi eiga erindi og umræður á þinginu að skerpa skilninginn á mál- efninu, bæta við þekkinguna á efninu og leiða hugann að aðferðum, sem að gagni mega koma í baráttunni fyrir aukinni bindindissemi. í öðru lagi er þess vænzt, að sá per- sónulegi styrkur, sem menn sækja í sam- vistir við skoðanabræður sína og áðan var drepið á, verði ekki lítill, og þar verður þáttur samræðna og kynningar utan þingfunda efalaust ærið drjúgur. Loks gerum vér, íslenzkir bindindis- menn, oss vonir um, að þingið veki at- hygli landsmanna á bindindisstarfsem- inni. Þeir eru margir hér á landi, sem telja sér og öðrum trú um, að bindindis- hreyfingin sé vanmegna, hún sé hreyf- ing örfárra manna, sem reyni að láta líta svo út sem þetta sé lifandi hreyfing, þótt svo sé raunar ekki. Og jafnvel sum- ir bindindismenn óttast, að þetta kunni að vera rétt. Nú er það reyndar víðs fjarri öllum sanni. Bindindishreyfingin hér á landi er vel lifandi og hún vinnur sitt verk og gerir sitt gagn, miklu meira en sést á yfirborðinu, þótt hvort tveggja sé minna en ætti að vera og þyrfti að vera. Og ég get fullyrt, að hún nýtur virðingar og álits margra manna, sem ekki eru sjálfir bindindismenn. Þannig vænti ég að það sé einnig í yðar löndum, erlendu vinir. En þrátt fyrir þetta er það mikils virði fyrir bindindishreyfinguna hér á landi, að norræna bindindisþingið fer hér fram að þessu snni. Þingið opnar augu margra fyrir því, að bindindis- hreyfingin er öflugi'i en þeir höfðu hald- ið. Þingið færir þeim heim sanninn um það, að bindindisstarfsemi er ekki úrelt íslenzkt fyrirbæri, heldur alþjóðlegt og s------------------------------------- 5 á ekki hvað minnstu fylgi að fagna með- al þeirra þjóða, sem fremst standa að menningu og virðingu fyrir gildi ein- staklingsins, svo sem hinar norrænu þjóðir gera. Þér sjáið af þessu, góðir gestir, að vér höfum beðið þessa þings með mikilli eftirvæntingu og að miklar vonir eru við það tengdar. Og verið þess vissir, að um leið og þér leggið íslenzkri bind- indisstarfsemi lið með komu yðar hing- að og dvöl yðar hér, þá gerið þér sam- tímis bindindishreyfingunni í löndum yðar gagn. Með von og ósk um, að þingið verði bindindissemi og bindindisstarfi á Norðurlöndum til blessunar og heilla og þá um leið menningu og lífshamingju þeirra þjóða, er þau lönd byggja, býð ég yður enn velkomin til setu og starfa á hinu 24. norræna bindindisþingi. Jeg vil til slut frembringe en varm tak til alle de, som pá en eller anden máde har ydet eller vil yde sit bidrag for at give denne kongressens ábnings- fest en hojtidelig stemning, være sig talere, musikanter, sangere eller de mange gæster, som har vist kongressen den ære at deltage i ábningsfesten med sin nærværelse. Tak, hjertelig tak. ---------------------------------------ö * Avarp Jakobs Pettersen, formanns norrœnu bindindisnefndarinnar: Herra forseti. Góðir tilheyrendur. Sextán ár eru liðin frá því er nor- ræna bindindisþingið var háð hér í Reykjavík 1953. Nokkrir þeirra, sem hér eru komnir, sátu það þing, en lang- flestir ekki, en koma nú í fyrsta skipti til íslands. Við útlendingarnir biðum þess í eftir- væntingu að koma hér til fundar á land- inu, sem er okkur öllum land sagnanna, hvort sem við höfum komið hér áður eða komum hér nú í fyrsta skiptið. Hér spratt upp megnið af okkar fornu bók- menntum, en nútíma bókmenntir virðast dafna hér einnig vel, jafnvel betur en í öðrum löndum, og við lesum gjarnan all- mikið af hinu nýja, þótt það séu að mestu leyti þýðingar. Svipur heimsins er nú annar en fyrir 16 árum. Vissulega ríkti þá angist og kvíði, en bjartar vonir vöknuðu, þegar lauk Ragnarökum heimsstyrjaldarinnar, en árin þar á eftir létu ekki þær vonir rætast, það sáum við þegar fyrir 16 ár- um, og nú er meira uppnám í heiminum en nokkru sinni áður. Allt færst nær- orðið svo nærgöngult. Flugþotu-tímabilið hefur gert allar fjarlægðir svo ótrúlega litlar, og geim- rannsókna- og fjölmiðlunarkunnáttan hefur gert okkur auðvelt að fylgjast með á hverri stundu í öllu því, sem við ber um víða veröld. Við erum allir orðn- ir nánustu nábúar. Það gefur okkur áð- ur óþekkt margvísleg tækifæri. Tæki- færi til betri skilnings, tækifæri til að kynnast vanda og erfiðleikum annarra, tækifæri til að gera okkur Ijóst, að við erum hluti af heiminum og þá sérstak- lega hinu hlutfallslega rólega Norðrinu og á margan hátt blessunarríka, og að það er siðferðileg skylda okkar að hjálpa öðrum, sem enn eru mjög fjarlægir vel- ferðar lífskjörum okkar. En — einnig þá þrengja erfiðleikar annarra þjóða sér nær okkur. Svo er um áfengismein- semd þeirra og einnig eiturefnaneyzlu. Allt verður þetta nærgöngult. Pramhald á 6. bls.

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.