Eining - 01.07.1969, Page 7

Eining - 01.07.1969, Page 7
EINING 7 Ávarp Geirs Hallgrímssonar borgarstjóra við setningu norræna bindindisþingsins í Neskirkju 19. júlí 1969 Mér er það ánægjuefni, að flytja hér við þingsetninguna kveðjur frá höfuð- borg íslands, Reykjavík, sem nú nýtur þess heiðurs að fagna fulltrúum á bind- indisþingi Norðurlanda. Við metum það mikils, að slíkt þing er nú háð hér öðru sinni og teljum það bera vitni um, að íslendingar eru full- gildir þátttakendur á þessu mikilvæga sviði norrænnar samvinnu. Þegar gestir okkar hafa Reykjavík nú fyrir sjónum, má benda á, að nær öll hús hér eru reist á þessari öld og meiri- hluti þeirra reistur eftir heimsstyrjöld- ina síðari. Hér hefur þannig á nokkrum áratugum orðið þróun, sem tekið hefur aldir á hinum Norðurlöndunum. Það er að vísu satt, að allar borgir eru áþekkar, en eigi að síður hafa þó margar sín sér- kenni eða sitt sérstæða yfirbragð. Ég vona, að Reykjavík hafi slík sérkenni — ekki þó af þeirri ástæðu einni, að okkur skortir trjágróðurinn, en hann gegnir þörfu hlutverki víða um heim til að hylja þau mistök, sem geta orðið á sviði húsagerðar. En Reykjavík hefur að minnsta kosti tvö sérkenni, sem nefna ber. Annað eru jarðhitasvæðin, en þaðan er úr 200 m dýpi dælt meira en 100° heitu vatni og njóta nú 90% húsanna slíkrar upphit- unar, sem er miklu ódýrari en upphitun með olíu. Hitt sérkennið er það, að þrjár * af hverjum fjórum fjölskyldum búa í eigin íbúðum. Það teljum við mikilvægt til að treysta fjárhagslegt og félagslegt öryggi og sjálfstæði fólksins. Reykjavík nýtur að sjálfsögðu sér- stöðu, þar sem hún er höfuðborg — og þótt íbúafjöldinn sé yfir 80 þúsund og á höfuðborgarsvæðinu séu rúmlega 100 þúsund íbúar, eru þó margar borgir stærri á Norðurlöndum. Þó held ég, að Reykjavík virðist stærri en jafnfjöl- mennar borgir á hinum Norðurlöndun- um, og því veldur höfuðborgarhlut- verkið. Einmitt á þingi sem þessu er ástæða til að benda á, að uppbyggingin hér á landi frá aldamótum hefur valdið því, að íbúafjöldinn, sem þá var í Reykjavík 6—7% af heildaríbúafjölda landsins, er nú yfir 50% og hefur næstum tuttugu- faldazt. Af þessari þróun hefur leitt fé- lagsleg vandamál með svipuðum hætti og á öðrum Norðurlöndum og þá ekki sízt í höfuðborgunum. Við, sem fjöllum um þessi vandamál, komumst fljótlega að raun um, að þar er áfengisvandamálið efst á blaði, bæði sem sj úkdómseinkenni og orsök annarra félagslegra vandamála. Þetta stuðlaði ásamt fleiru að því, að borgarstjórn Reykjavíkur ákvað að koma á nýrri skipan um meðferð félags- mála, m.a. með hliðsjón af því, sem gerzt hefur á hinum Norðurlöndunum. — Áherzla er lögð á ráðstafanir til að koma í veg fyrir vandamálin og reynt er að samræma starf að framfærslumál- um, barnaverndarmálum og áfengismál- um, ekki eingöngu með tilliti til ein- staklingsins,heldur og með tilliti til fjöl- skyldunnar í heild. Opinberir aðilar verða og eiga að fást við vandamál, sem stafa af áfengis- neyzlu, en ég ætla, að þær framfarir, sem hafa og við væntum, að verði í starfi opinberra aðila á þessu sviði, ber ekki sízt að þakka frumkvæði og starfi bind- indishreyfingarinnar og það er ljóst, að ef árangurs á að vænta af starfi opin- berra aðila, hlýtur til að koma samstarf þeirra við bindindishreyfinguna og „samtök sem á einn eða annan hátt starfa í samvinnu við bindindishreyf- inguna eða vinna gegn ofnotkun áfengis, fyrir útbreiðslu bindindis eða heilbrigð- um lífsháttum yfirleitt," eins og segir í boðsbréfinu til þingsins. Nýlega heyrði ég þá sögu, að flug- stjóri á stórri farþegaflugvél hafi sagt í hátalarakerfi flugvélarinnar, að hann hefði tvær fréttir að flytja, aðra slæma, en hina góða. Hann tók svo til orða: „Fyrst verð ég því miður að skýra farþegunum frá því, að við höfum villzt og vitum ekki, hvar við erum. En svo er góða fréttin: Við erum búin að fara miklu lengri vegalengd, en við gerðum ráð fyrir á þessum tíma, og erum því komin langtum lengra." Ég held, að þessi saga gefi okkur til- efni til íhugunar á öld tækniframfara og hraða, þegar við einmitt þessa dag- ana stöndum sennilega við upphaf nýrr- ar aldar í sögu mannkynsins. Er ekki brýnni nauðsyn en nokkru sinni fyrr, að einstaklingar, félög, þjóð- ir og raunar mannkynið allt geri sér þess grein, hvar það er statt og hvert það hyggst stefna. Og er ekki brýnni nauðsyn en nokkru sinni fyrr, að hver einstaklingur og við öll saman ráðum yfir öllum skilningar- vitum okkar og neytum allra hæfileika okkar einmitt til þess á þann hátt að njóta lífsins og þeirra nýju sjónarsviða, sem opnast sífellt fyrir okkur, svo að við getum tekið þátt í uppbyggingunni, hver í sínu landi og sinni borg, þannig að Norðurlöndin verði öllum heimi til sannrar fyrirmyndar. Ég trúi og ég veit, að norræna bind- indisþingið færir okkur stóru skrefi nær þessu marki og skilar góðum árangri þátttakendum til ánægju, en Norður- löndum og mannkyni öllu til farsældar. Ég býð ykkur öll velkomin til Reykja- víkur. -K * * Einhvern tíma hljótum við (Svíar) að lögleiða áfengisbann,“ segir dr. Carl Carls- son, sem nú er mjög umtalaður á Norður- löndum og bók hans um áfengisbölið. Hann er læknir, sérfræðingur sem fæst við að hjálpa drykkjumönnum. Hann veit um hvað hann talar og skilur, hvert er eina og sjálfsagða bjargráðið, það, að einangra sýkilinn — stöðva áfengissöluna. í þessu máli hæfir það eitt heilvita mönnum. Bindindismenn! Eflill ÁBYRGÐ — tryggingafélag ykkar, og fiari mnn efla samtök ykkar. HKBKBKBKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHÍHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKBKHKHKHKHKHKHKHKHÍ

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.