Eining - 01.07.1969, Page 8

Eining - 01.07.1969, Page 8
8 EINING ■nyKTTVrp Máuaðarblað UIII áfengismál, bindindi 0g önnur menningarmál. Ritstjóri og ábyrgðamiaður: Pétnr Sigurðsson. Blaðið er gefið út með nokkrum fjárhagsstyrk frá ríkinu og Stórstúku íslands og kostar 100 kr. árg, 10 kr. hvert eintak. Utanáskrift til blaðsins og ritstjórans er: Pósthólf 982. Reykjavík. Sími: 41956. ÁSMUNDUR GUÐMUNDSSON, biskup Fæddur 6. október 1888 — Dáinn 29. maí 1969. Á þessu sumri kvaddi okkur einn af mætustu og merkustu sonum þjóðarinnar, Ásmundur Guðmundsson biskup, mikill kirkjuhöfðingi. Starfsdagur hans var orðinn langur og ævistarf hans mikið og margþætt: Prestur, skólastjóri, háskólakennari, guð- fræðiprófessor, biskup og afkastamikill rithöfundur, svo að nefnt sé aðeins hið helzta. Kominn var hann af traustu sæmdarfólki. Foreldrar: Séra Guðmundur Helgason prófastur í Reykholti í Borgarfirði og kona hans Þóra Ágústa Ásmundsdóttir prófasts í Odda Jóns- sonar. Séra Guðmundur var bróðir hinna kunnu Birtingar- holtsbræðra, séra Kjartans í Hrnua og séra Magnúsar Helga- sonar, skólastjóra Kennaraskóla Islands, og bændahöfðingj- ans Ágústs í Birtingarholti. Stúdent varð Ásmundur Guðmundsson í Reykjavík árið 1908. Lauk prófi í heimspeki og hebresku í Háskóla Kaup- mannahafnar 1909, guðfræði í Háskóla Islands árið 1912. Stundaði svo framhaldsnám í Þýzkalandi og Englandi, var prestur í byggðum íslendinga í Canada árin 1912—1914, og þar næst prestur í Stykkishólmi 1915—1919. Hefst svo mjög merkur kafli í ævisögu séra Ásmundar Guðmundssonar. Um það tímabil skrifaði Þórarinn Þórarins- son, fyrrv. skólastjóri Eiðaskóla, ágæta minningargrein í Mbl. 4. júní sl. og hefur Eining fengið leyfi hans til að birta nokkra kafla úr þeirri grein. Fara þeir hér á eftir: Snemma árs 1919 barst austur á land sú frétt að búið væri að velja hinum nýja Eiðaskóla hinn fyrsta forstöðumann. Hinn 11. jan. var séra Ásmundur Guðmundsson í Stykkis- hólmi, sóknarprestur í Helgafellsprestakalli skipaður til að vera skólastjóri Alþýðuskólans á Eiðum, eins og hinn nýi skóli var kallaður að lögum, og heitir enn. Mönnum gekk erfiðlega að átta sig á því í fyrstu hvað því gæti valdið, að mikilsvirtur prestur tæki sig upp frá ágætu brauði og miklum vinsældum, — til að takast á hendur starf, óþekkt með öllu, í afskekktum vega- og símalausum lands- hluta, starf, sem óhjákvæmilega hlyti að verða erfitt braut- ryðjendastarf. Að móta nýjan skóla, án fordæmis hérlendis, forstaða stórs ríkisbús við erfiðar aðstæður og vonlítil barátta við skilningslítið ríkisvald fyrir nauðsynlegri uppbyggingu á skólastaðnum.. . Einn kom hinn ungi skólastjóri austur á land vorið 1919, en þá um haustið átti skólastarf að hefjast. Fjölskyldu sína hafði hann orðið að skilja eftir. Frú Steinunn kom ekki aust- ur fyrr en að ári liðnu með þrjú ung börn þeirra hjóna, það yngsta hafði fæðzt í ágúst árið áður. Um sumarið var skólastjórinn á sífelldum þönum í síma, oft daglega, ýmist í þarfir skólans eða hann var kvaddur í símann af stjórnarvöldunum, því sýnt var þegar á fyrsta ári, að skólinn varð miklu stærri í sniðum en áður hafði þekkst eða við hafði verið búizt. Ekki veit ég til að meira erfiði eða áhyggjur hafi hvílt á herðum annars skólastjóra á Eiðum en séra Ásmundar þetta sumar og þegar svo við bættust áhyggj- ur og óvissa um fjölskyldu í fjarlægð. Eitt er víst, að nú misskildu menn ekki framar barnslegt bros hans. Þeir sem til þekktu höfðu þegar komizt að raun um, að að baki þess bjó ekki aðeins mildur hugur, sáttfús og velviljaður, heldur einnig ákveðinn vilji, mikil útsjónarsemi, hyggindi og ótrúleg seigla. Og séra Ásmundur þurfti á öllu þessu að halda í skóla- stjóratíð sinni áður en lauk. Séra Ásmundur kynnti sér sumarið 1920 störf helztu lýð- háskóla á Norðurlöndum, m.a. Sigtúnsháskóla í Svíþjóð undir forystu Mannfreds Björkquists, tæplega mun þó skólastjór- ana hafa órað fyrir því, að þeir ættu báðir eftir að verða biskupar. Séra Ásmundi fannst Sigtúnaskólinn bera af hin- um og nemendur hans taka miklu fastari tökum á náminu. Varð hann hrifinn af einbeittu starfi þessa skóla og afréð að sníða sínum nýja skóla líkan stakk. Hefur það skólaform og sá skólaandi, sem séra Ásmundur innleiddi verið í heiðri hafður á Eiðum fram á þennan dag. Þrír skyldu þeir horn- steinar vera, er skólastarfið hvíldi á: Markvisst nám, guðstrú og ættjarðarást. Þegar Alþýðuskólinn var settur í fyrsta skipti, 20. okt. 1919 byrjaði skólasetningarræðan með þess- um orðum: „Ó, Guð vors lands, ó, lands vors guð. Með þeim orðum hefur hinn nýstofnaði skóli göngu sína. Og ég vona að þau hafi verið meira en orð í hugum okkar meðan þau voru sungin, vona að þau hafi verið lifandi bæn, sem alltaf síðan mætti verða einkunnarorð þessa skóla og marka stefnu hans.“

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.