Eining - 01.07.1969, Side 11

Eining - 01.07.1969, Side 11
EINING 11 Eitt hið mesta áfengismálaþing var háð í Washington D. C. dagana 15.—20. september 1968. Eining kynnti það lítils- háttar í janúar-febrúarblaðinu sama ár, en er nú nokkuð síðbúin með frásögn af því. Því miður átti Island þar engan fulltrúa héðan að heiman og verður því þessi frásögn lítilfjörleg. Þingið sátu fjöldamargir fulltrúar og áhugamenn frá mjög mörgum löndum víðs vegar um heim, þar á meðal margir sérfræðingar og vísindamenn. Undir- búningur hafði verið mikill og höfðu skráð sig til þátttöku mörg félagasam- bönd þar vestra og stofnanir, eins og t.d. landssambönd heilbrigðismála, lækna, sjúkrahúsa, hj úkrunarkvenna, sálfræð- inga, dómara, rannsóknaráð afbrota- mála, landssamband lögreglustjóra, geð- verndar, berklavarna, AA samtökin, svo að nokkur séu nefnd. Fyrsta þing þessa Alþjóðaáfengis- málaráðs var háð í Antwerpen árið 1885. Höfuðstöðvar þess hafa verið Sviss og framkvæmdastjóri starfseminnar hefur verið um margra ára skeið Archer Ton- gue, en forseti nú seinni árin Ruben Wagnsson, fyrrv. landshöfðingi í Sví- þjóð, báðir mestu dugnaðar og ágætis- menn. M.a. er þetta alþjóðaráð að ein- hverju leyti í sambandi og samstarfi Ii. Brinkley Smithers. við heilbrigðismálastofnun Sameinuðu þjóðanna, og það skipuleggur fræðslu- starfsemi og félagsleg samtök til áfengisvarna. Hin mörgu landssambönd, sem áður var minnst á, og ýmsar stofnanir höfðu kappkostað að gera allt í sambandi við þetta merka þing sem glæsilegast og mest virði fyrir hina fjölmörgu þing- gesti. Hótel Shoreham í Washington var tilvalinn þingstaður. Fundarsalir þar sem rúmuðu tvö þúsund manns eða meira, skreyttir og vistlegir og þar leið fundarmönnum vel. Þau beztu samtök manna víðs vegar um heim, sem mest fást við rannsóknir á áfengismeinsemd- inni, höfðu átti sinn þátt í að skipu- leggja þingið. Hér verður ekki birt dagskrá þings- ins, hún var auðvitað mjög margþætt og áfengismeinið rætt og meðhöndlað frá sem flestum hliðum, frá sjónarhóli heilsufars, félagsmála, menningar, þjóð- arvelferðar, einstaklings- og fjölskyldu- lífs. I Ameríku eru mörg samtök manna, og sum mjög öflug, sem vinna gegn áfengisbölinu. Vonandi eflizt sú starf- semi ár frá ári um heim allan, þar til þjóðir og ríkisstjórnir láta sér skiljast, að þriðja eða fjórða mesta heilbrigðis- vandamál flestra þjóða er ekki hægt að láta afskiptalaust, og þar nægir ekkert nema róttækar aðgerðir. Smitberann verður að einangra, líkt og við berkla- varnirnar, eiturbrunninn þarf aðbyrgja. Kenning sú, sem skáldið Einar Bene- diktsson flytur í einu ljóða sinna: „Lífið frá dufti til drottins myndar dafnar í frelsi við skaraðar glóðir," getur hljóm- að fallega í eyrum manna, en hvorki skáldinu sjálfu né milljónum annarra manna hefur tekizt að búa við slíkt frelsi, að sitja við „skaraðar glóðir," án þess að skaðbrenna sig. Glóðirnar verð- ur að slökkva. Aðeins blindaðir menn af flokkshyggju eða einhverjum skaðvæn- legum hvötum geta fleiprað um að „öll bönn séu til bölvunar." — Eiturbrunn- inn þarf að byrgja og banna. Allar menningarþjóðir launa hundruð og þús- undir þingmanna til að sitja árum sam- an við að lögleiða boö og bönn, og svo mjög fjölmenna lögreglu til að sjá um að boðum og bönnum sé hlýtt. Án slíks geta þjóðir ekki lifað menningarlífi. Og bann við versta meininu er sannarlega ekki síður sjálfsagt, en öll önnur bönn þjóðfélaganna. Hættum að berja höfð- inu við steininn og glápum ekki með krónuaugu, dollaraaugu, eða sljóvum augum gegnum einhverja girndarhulu, á skaðvaldinn versta. Komum nú aftur að þinginu. Endur- kjörnir voru þeir Ruben Wagnsson, for- seti, og Archer Tongue, framkvæmda- stjóri, en Wagnson fékk 11 varaforseta sér til aðstoðar. Þessir menn eiga að hafa forustuna við að undirbúa næsta þing, en það verður í Ástralíu. Greinarstúf þessum fylgja myndir af tveimur mönnum. Annar þeirra heitir R. Brinkley Smithers. Hann er forustu- maður í mannúðarmálum í New York og hefur verið sæmdur gullmerki áfeng- isvarnaráðsins í Bandaríkjunum (Nati- onal Council on Alcoholism) æðsta heiðursmerki sem ráðið veitir. Hann er fyrrv. forseti ráðsins og enn ráðgjafi þess. Hann er og forseti stofnunar, sem heitir „the Christopher D. Smithers Foundation,'- og víða annars staðar hef- ur hann verið eða er í forustu, en það yrði of langt mál hér upp að telja. Að- eins 4 aðilar hafa hlotið nefnt heiðurs- merki á undan honum. Hinn maðurinn, Luther A. Cloud, M. D., sem er læknisfræðilegur leiðbein- andi tryggingarsamtaka í Bandaríkjun- um (the Equitable Life Assurance Soci- ety of the United States), var nýlega kjörinn forseti þjóðarráðsins, sem fjall- ar um áfengissýkina (the National Framhald á 12. bls. Luther A. Cloud, M.D.

x

Eining

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.