Eining - 01.07.1969, Síða 12

Eining - 01.07.1969, Síða 12
12 EINING Dr. RICHARD BECK: Merkur skerfur til sögu íslenzkra félagsmála Eitt af þeim kærkomnu ritum, sem mér hafa nýlega borizt heiman um haf, er af- mælisritið Góðtemplarareglan á Akureyri 80 ára, en það er gefið út af því tilefni, að 10. jan. 1964 átti Góðtemplarareglan í höfuðstað Norðurlands óslitinn 80 ára starfsferil sér að baki. Eiríkur Sigurðsson, skólastjóri á Akureyri, er árum saman og með mörgum hætti hefir komið við sögu Góðtemplarareglunnar þar í bæ, hefir tekið saman afmælisritið. En rit þetta er ennþá merkilegra fyrir það, að það er eigi aðeins saga Góðtemplarareglunnar á Akureyri, heldur jafnframt saga stofnunar og fyrstu starfsára Góðtemplarareglunnar á íslandi, því að vagga hennar stóð á Akureyri. Um þann merkisviðburð fer höf. ritsins eftir- farandi orðum í upphafi þess, um leið og hann í stuttu máli bregður upp glöggri mynd af starfsemi Reglunnar og félags- málalegum áhrifum hennar: ,,Tvær merkar félagsmálahreyfingar hafa fest rætur sínar á Akureyri og borizt þaðan út um landið. Þær eru Góðtemplarareglan og Ungmennafélagshreyfingin. Báðar komu þær frá Noregi, eins og landnámsmennirn- ir. Báðar hafa þær haft mikil og heillarík áhrif á íslenzkt þjóðlíf. Fyrir aldamótin síðustu var félagslíf fá- breytt hér á landi. Góðtemplarareglan varð brautryðjandi í félagsmálum víða um land. Hún var lýðræðislegur félagsskapur, sem kenndi fólki að vinna saman. Hún byggði fyrstu samkomuhúsin í kaupstöðum og kauptúnum víðs vegar um landið. í Góðtemplarareglunni nutu konur fyrst jafnréttis við karlmenn, og flýtti það ef- laust fyrir því, að þær fengu síðar almenn- an kosningarétt. Þeir templarar, sem kynnzt höfðu lýð- ræðislegum félagsstörfum í Góðtemplara- reglunni, stóðu oft fyrir stofnunum ýmissa annarra félaga, t.d. verklýðsfélaga, kvenfé- laga, leikfélaga og sjúkrasamlaga. Góð- templarareglan hefur þannig í reynd verið víðtækur og merkur félagsmálaskóli í land- inu.“ Hálf öld er nú liðin síðan ég gekk í Góð- templararegluna, er ég stundaði mennta- skólanám í Reykjavík, og get ég því um það borið af eigin reynd, að hún var mér á Framhald af 11. bls. Council on Alcoholism). Síðustu fimm árin var hann í stjóm NCA og er líka félagi í samtökum lækna um áfengis- vandamálið. Hann er doktor í læknis- fræði og í stjórn ýmissa stofnana og fé- lagsmálasamtaka, sem hér verða þó ekki talin. þeim árum góður skóli í fundarsköpum og fundarstjórn, jafnhliða því og hún glæddi mér hugsjónaást og félagshyggju. Skal nú horfið aftur að afmælisritinu sjálfu. í fyrsta hluta þess fjallar höf. um Góðtemplararegluna á Akureyri almennt, starf hennar og þróun, og er sú saga um margt glæsileg og eftirtektarverð, þótt þar hafi skiptzt á skin og skúrir, sigrar cg ósigrar eins og löngum vill verða í öllum félögum, og í þjóðlífinu sjálfu. En merki- legast og ánægjulegast til frásagnar er þó það, hve starfsemi Reglunnar á Akureyri hefir staðið föstum fótum og fært út kví- arnar á tímabilinu 1934—1954, en um það fer höf. þessum orðum: „Segja má, að síðastliðin þrjátíu ár hafi verið jafnara starf í Reglunni á Akureyri heldur en á næsta tímabili á undan. En framkvæmdir miklu fleiri og fjölbreyttari. Nú eru stúkufundir ekki einu félagsstörfin, heldur stjórn og störf í hinum ýmsu fyrir- tækjum og stofnunum Reglunnar í bænum. Má þar nefna Borgarbíó, Hótel Varðborg, Æskulýðsheimili templara, Bókasafn IOGT, og væntanlegt minjasafn í Friðbjarnarhúsi. Ekki verður nánar rætt um þessi fyrirtæki og stofnanir hér, þar sem það er gert á öðrum stað. Aðeins vakin athygli á því, hvað störfin eru orðin víðtækari. Fyrstu 10 árin til 1944 störfuðu fjórar stúkur í bænum, 3 undirstúkur og ein ung- mennastúka. En síðustu 20 árin hafa að- eins ísafold og Brynja haldið uppi merki Reglunnar hér, og svo barnastúkurnar Sak- leysið, Samúð og Von. Nú starfa banrastúk- ur við alla banraskólana.“ Þessu næst er langur kafli og merkilegur frá sögulegu sjónarmiði: „Fyrsta Góð- templarastúkan, stúkan ísafold nr. l.“ Er þar eins og vera ber, getið sérstaklega Norðmannsins Ole Lied, stofnanda Góð- templarareglunnar á íslandi. En stofnun Reglunnar lýsir Eiríkur Sigurðsson á þessa lei'ð: „Fyrsta góðtemplarastúkan á íslandi var stofnuð 10. janúar 1884 í húsi Friðbjarnar Steinssonar á Akureyri og hlaut nafnið Isafold nr. 1 .Stofnandi hennar var Ole Lied, norskur maður frá Álasundi." Eru þau ummæli byggð á stofnfundar- gerð stúkunnar Isafold, en fundargerðin er í heild sinni tekin upp í ritið fyrrgreindum ummælum til staðfestingar, enda á hún þar heima. En um stofnendur stúkunnar fer Eiríkur meðal annars þessum orðum: „Kunnastir af stofnendunum voru Ásgeir Sigurðsson og Friðbjörn Steinsson. Ásgeir var bróðursonur Jóns A. Hjaltalín, skóla- stjóra á Möðruvöllum. Hann gerðist fljótt athafnasamur um útbreiðslu Reglunnar og var um tíma umboðsmaður hátemplars hér á landi. Friðbjörn var einn af heldri borg- urum bæjarins, bóksali og bæjarfulltrúi á Akureyri og reyndist einhver traustasti maðurinn við málstað Reglunnar, áhuga- samur templar til dauðadags 1918.“ Annars er þessi kafli afmælisritsins ítar- leg starfssaga stúkunnar ísafold fram til 1895, en eftir það stúkunnar ísafold—Fjall- konan, því að 3. febrúar 1895 sameinuðust þær stúkur með því skilyrði, að nafni Fjall- konunnar, sem verið hafði kvennastúka, væri bætt við ísafoldarnafnið, og hefir svo verið jafnan síðan. í næsta kafla ritsins eru stúkunni Brynju nr. 99 og starfsemi hennar gerð sambærileg skil. Hún var stofnuð af Sigurði Eiríkssyni, regluboða, 4. júlí 1904, en hann ferðaðist það sumar um Norðurland á vegum stór- stúkunnar. Hér að framan var, með tilvitnunum í upphafskafla ritsins, vikið að því, hvað starf Reglunnar á Akureyri hefði á árun- um 1934—1964 komist í fastar skorður og orðið fjölbreytt að sama skapi. Um það er FRÁ AKUREYRI

x

Eining

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.