Eining - 01.07.1969, Side 13

Eining - 01.07.1969, Side 13
EINING 13 mjög ítarlega fjallað í kaflanum „Húsnæði og stofnanir Góðtemplarareglunnar á Akur- eyri,‘ sem jafnframt tekur yfir miklu lengra tímabil hvað snertir húsnæðismál Reglunn- ar þar í bæ. En eitt af afrekum hennar snemma á árum var bygging glæsilegs sam- komuhúss, er enn stendur, og Reglan átti í 10 ár, en seldi það þá Akureyrarbæ. Fundi sína héldu stúkurnar þar þó þangað til um áramót 1926, að þær fluttu í samkomuhúsið Skjaldborg. Við vígslu hins ofannefnda og stórmynd- arlega samkomuhúss templara á Akureyri 23. janúar 1907 var flutt snjallt kvæði eftir þjóðskáldið Matthíast Jochumsson, og hitt- ir skáldið ágætlega í mark, er hann segir: Sjaldan á Fróni er fegurri höll í fegurri tilgangi smíðuð. Tvö önnur falleg kvæði eru tekin upp í ritið, hið fyrra eftir frú Ingibjörgu Bene- diktsdóttur, sungið við vígslu samkomu- hússins Skjaldborgar 10. janúar 1926, og „Er sunna hlær.. .,“ eftir Stefán Ág. Kristj- ánsson, sungið á bindindismóti á Laugum 1939. En Stefán Ágúst hefir um langt skeið komið mjög við sögu Reglunnar á Akureyri, einkum í byggingarmálum henn- ar, og hefir einnig um undanfarin ár verið umboðsmaður hátemplars á íslandi. En eins og þegar hefur verið vikið að, lýsir umræddur kafli ritsins sérstaklega hinum mörgu og merku stofnunum Regl- unnar á Akureyri, er að framan voru tald- ar. Ber þar hátt rekstur Borgarbíós, Hótel Varðbog, og æskulýðsstarfið í ýmsum myndum, en ekki getur þarfari starfsemi í þjóðar þágu en það starf, sem unnið er æskunni til andlegs og aukins manndóms. Skylt er einnig í þessu sambandi að taka upp eftirfarandi ummæli úr sama kafla rits- ins: „Tvær aðalstofnanir Reglunnar á Akur- eyri, Borgarbíó og Hótel Varðborg, eru sér- stæðar í starfi Reglunnar hér á landi. Hótel- reksturinn er aðallega að sumrinu, en að vetrinum er meiri hluti hótelsins vistheim- ili fyrir námssveina úr Menntaskóla Akur- eyrar síðan 1965.“ í kaflanum „Visnaðar greinar“ er getið þeirra Góðtemplarastúkna á Akureyri, er áttu sér lengri eða skemmri sögu, en hættu starfi af ýmsum ástæðum. En, eins og fram kemur í frásögnunum um þær, lögðu þær, í mismunandi mæli að vísu, sinn skerf til bindindis- og menningarmála í Akureyrar- bæ. Næsti kafli ritsins, „Æðri stigin,“ grein- ir frá starfsemi Stórstúku fslands á Akur- eyri, Umdæmisstúku Norðurlands og Þing- stúku Eyjafjarðar, og hefst á þessari at- hyglisverðu og réttmætu staðhæfingu: „Þegar rætt er um störf Góðtemplara- reglunnar á Akureyri, ber að minnast þess, að þar átti yfirstjórn Reglunnar, Stórstúka íslands, heima í þrjú ár, 1924—1927. Fyrstu tvö árin, 1884—1885, voru höfuð- stöðvar Reglunnar á Akureyri, unz Stór- stúka íslands var stofnuð 24. júní 1886.“ Stórstúkuþing hafa 8 sinnum verið háð á Akureyri, seinast 1964 í tilefni af 80 ára afmæli Reglunnar á íslandi. Frásagnirnar um Umdæmisstúku Norður- lands og Þingstúku Eyjafjarðar bera því vitni, að þær hafa báðar unnið mikið og merkilegt starf bindindismálinu til eflingar. Hugþekkur lestur er kaflinn „Unglinga- reglan,“ þar sem rakin er stofnsaga og starfssaga barnastúknanna á Akureyri, og er það að vonum getið ítarlega hinnar elztu þeirra, en það er Sakleysið nr. 3, aðeins tveim árum yngri en móðurstúkan ísafold. Hún var stofnuð 10. júlí 1886, er enn starf- andi, og sér því að baki meir en 80 ára sögu, og hana merkilega að sama skapi. En allar hafa barnastúkurnar, og sérstaklega þær, sem enn eru starfandi, auk Sakleysis, en það eru Von nr. 75 og Samúð nr. 102, átt sinn drjúga og heillaríka þátt í þróun og starfi Góðtemplarareglunnar á Akureyri. í kaflanum „Brautryðjendur" er getið sérstaklega þeirra Friðbjörns Steinssonar, bóksala, Bjarna Hjaltalín, fiskimatsmanns, og Jnós Chr. Stephánssonar, timburmeist- ara, er allir mega vissulega teljast frum- herjar í starfi Reglunnar á Akureyri. í kaflanum „í fararbroddi“ er jafn maklega sérstaklega getið þeirra Brynleifs Tobías- sonar, menntaskólakennara, er var stór- templar í Stórstúku íslands tvisvar, á Akureyri 1924—1927 og svo aftur í Rvík 1955—1957, Guðbjörns Björnssonar, húsa- smíðameistara, og Halldórs Friðjónssonar, ritstjóra. Guðbjörn var gjaldkeri í Stór- stúku íslands 1924—1927, en Halldór stór- ritari í stórstúkunni sömu ár. Fróðleg mjög er skráin yfir „Bindindis- blöð, gefin út á Akureyri," er öll eiga sitt sgöulega gildi, og þá sérstaklega „Bind- indistíðindi,“ en um þau fer höf. afmælis- ritsins þessum orðum í upphafskafla rits- ins: „Það sýnir bezt áhuga brautryðjendanna fyrir útbreiðslu Reglunnar, að á fyrsta ári hennar hófu þeir útgáfu á fyrsta bindindis- blaði á íslandi. Það voru „Bindindistíðindi“ undir ritstjórn Ásgeirs Sigurðssonar. Alls komu út fimm blöð á árunum 1884—1885. Nú eru þessi blöð mjög fágæt og eftirsótt.“ Hér hefur þá verið drepið á nokkur at- riði í þessu merkilega afmælisriti. Það er mjög skilmerkilega samið og læsilegt vel. Höf. segir í eftirmála sínum: „Ég hef sam- ið þetta rit fyrst og fremst sem sögulega heimild, sem eitthvert gildi hefur fyrir seinni tímann.“ Það hefur honum tekizt ágætlega. Rit þetta er eigi aðeins merkur skerfur til sögu Akureyrarbæjar, heldur einnig til sögu Góðtemplarareglunnar á ís- landi, og jafnframt til sögu íslenzkra fé- lagsmála í heild sinni. Það er einnig hið vandaðasta og snyrti- legasta að frágangi, og hlutaðeigendum til sóma hvað það snertir. Margar myndir auka á gildi þess. Varð mér sérstaklega starsýnt á myndirnar frá stórstúkuþinginu á Akur- eyri 1964, 80 ára afmælisþingi Góðtempl- arareglunnar á íslandi, og rifjuðu þær myndir upp hugljúfar minningar um komu okkar hjónanna á það söguríka stórstúku- þing 1 ógleymanlegri íslandsferð okkar í sumar. Um leið og ég þakka ykkur Reglu- systkinum mínum á Akureyri ágæt störf og kynni, sendi ég ykkur hugheilar kveðjur frá konu minni og mér í eftirfarandi Ijóð- línum: Fögur rís mér feðraströnd, fékk ég þaðan dýran arf. Höf ég brúa bróðurhönd, blessa ykkar göfugt starf. Fréttir hafa verið yfirleitt góðar af bindindismannamótunum í þriggja daga fríinu í ágústbyrjun. Þau voru að þessu sinni fjölmennari en nokkru sinni áður, um 20 þúsundir í Húsafellsskógi, 8—10 þúsundir í Vaglaskógi, á sjöunda þúsund í Galtalækjarskógi, í Hallormsstaðaskógi á þriðja þúsund, alls um 40 þúsund, sögðu fréttablöð. — Góðtemplarareglan átti frumkvæðið að þessum mótum, og enn sér Umdæmisstúka Suðurlands um eitt þeirra árlega, það sem síðustu árin hefur verið í Galtalækjarskógi. 1 baksýn á myndinni sést skálinn, sem þangað var fluttur frá Reykjavík. (Ljósm. Mbl. Kr. Ben.)

x

Eining

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.