Eining - 01.07.1969, Side 14

Eining - 01.07.1969, Side 14
14 EINING Fas± kveðið að orði. Fréttabréf um heilbrigðismál, sem Krabbameinsfélag íslands gefur út, er mjög ágætt rit. Að þessu sinni ætlar Eining að hnupla aðeins örfáum línum úr því, en hef- ur þó hug á fleiru. 1 2. tbl. Fréttabréfs þessa árs — 1969, er lítil klausa, sem heitir: Ofdrykkjan. ,,Á steinhellu í prestssetursveggnum í Kimford, vestur Sussex í Englandi eru þessi miskunnarlausu varnarorð undir fyr- irsögninni: „Niðurlæging ofdrykkjunnar.-' „Engin synd afskræmir meira ímynd guðs en drykkjuskapur. Hann dulbýr persónu- leikann og gerir hann jafnvel að ómenni. Af ofdrykkjunni fær hann nautsháls, svíns- vömb og asnahaus. Ofdrykkjan svívirðir mannseðlið, drepur vitið, er skipbrot skír- lífsins og morðingi samvizkunnar. Of- drykkjan eitrar líkamann, bikarinn er mannskæðari en fallbyssan, hann veldur vatnssýki, slímhúðarbólgum, heilablæðing- um, fyllir augun eldi og fæturna bjúg og sendir líkamann á sjúkrahús.“ Mörg eru þau sannleiksvitnin, sem fyrr og síðar hafa vitnað gegn skemmdarverk- um áfengispúkans, en hann hefur alla vasa fulla af krónum, dollurum, rúblum, pund- um og öðrum gjaldeyri þjóða, sem hann veifar framan í peningagráðuga einstakl- inga og ríkisstjómir. Fyrir það peninga- magn getur hann alltaf fengið milljónir sálna í vítispott sinn. Foreldrablaðið. Foreldrablaðið 1969, 1. tbl. er sjálegt og vandað að frágangi, og í því ýmislegt gott lesmál. Sem sýnishorn skulu birtar hér að- eins nokkrar línur úr forustugrein blaðsins, en hana skrifar Eiríkur Stefánsson, kenn- ari. Hann ræðir þar m.a. um ættjarðarást íslendinga á áratugunum fyrir og eftir síð- ustu aldamót, og segir: „Þá var blómaskeið ljóðagerðar, og varla kom svo út lítið ljóðakver, að ekki væri þar kvæði um ættjörðina og stundum mörg. Og allir kunnu meira eða minna af ættjarðar- kvæðum hinna þekktu skálda. Þjóðin söng þessi ljóð, — söng þau inn í sig, eignaðist þau, elskaði þau og naut þeirra. Þannig höfðu þau áhrif á hvem íslending. Þarna var um gagnverkanir að ræða. Þjóðartil- finningin örvaði skáldin, en þau glæddu síðan loga ættjarðarástarinnar í brjóstum einstaklinganna." Þetta þyrfti þjóðin að festa sér í minni, nú á árum afskræmingarinnar, þegar margt æpir hástöfum ræktarleysið, eins og t.d. rímlausa, efnislausa og fáránlega ljóða- þruglið, klæðnaður, hár og höfuðbúnaður unga fólksins á götum úti, svo að eitthvað sé nefnt. Það liggur við, að við gömlu mennirnir hlökkum til að deyja frá allri þeirri andstyggð, sem þau niðurrifsöfl, sem vilja uppræta ættjarðarást og alla góða og gamla siði, hafa steypt yfir þessa kynslóð. Hér eru svo enn nokkrar úrvalssetningar úr Foreldrablaðinu: „Séra Magnús Helgason, fyrsti skóla- stjóri Kennaraskóla íslands, var sannur ís- lendingur í beztu merkingu þeirra orða. 1 erfðaskrá sinni farast honum þannig orð: „Ég hef unnað íslandi frá barnæsku. Þá ást kveiktu þeir hjá mér Jónas með ljóðum sínum, Páll Melsted með fornaldarsögu sinni og Jón Sigurðsson með baráttu sinni. ísland hefur verið unun mín. Gefið mér allt, sem ég á. Það er því einsætt, að það njóti, ef eitthvað verður eftir mig látinn.“ Ekki megum við vera blindir á auðlegð þjóðarinnar, sem hún enn á í mannvali og menningu. Sem betur fer á hún margan kjarnakvist í röðum bæði yngri og eldri kynslóðarinnar. Yfir því má gleðjast, þótt margt sé það, sem miður fer, en það á mannræktin og menningin að uppræta. og slík þörf á að kveikja áhugaeldinn í brjóst- um allra ættjarðarvina og unnenda sannrar menningar. Eld þarf að tendra. Uppi er fáninn. — Orð á vörum. Er það kannski nóg? Skal þá una okkar kjörum? Eitthvað skortir þó: Eldinn bæði í hug og hjarta, hverfur slénið þá, helga logann, heita, bjarta, hugsjón menn þá sjá. Getur gagnvart heimsins hrylling hjartað verið kalt? Nægja orð við ógn og trylling? Að því hyggja skalt. Þjáðum, hrjáðum, þeim til bjargar þú átt sterka hönd, getur brotið gildrur margar — grimma oksins bönd. Vöknum. Tendrum trúarelda, tröðum straumsins röst. Hrekjum ánauð vondra velda, váleg iðuköst. Látum sólar ljómann skína lífs um myrkvað hjarn. Vertu þeim, sem vond öfl pína, vorsins glaða barn. Glæð þá eldinn. Lát þar loga, lýsa orð og mál. Eldsálirnar öllu voga, eldur vermir sál. Jafnan kveikir eldur elda, upp af trú vex trú. Læknismáttar ljóssinsvelda ljósberi ver þú. Sívert Meldal, norskur. P.S. þýddi. Leiðrétting. Af óafsakanlegri vangá ritstjóra blaðs- ins hafði í síðasta tölublaði þess lent mynd af Operuhöllinni í París, þar sem vera átti Tivoli í Kaupmannahöfn. Þeir sem safna blaðinu ættu að leiðrétta þetta, merkja við myndina: Skökk mynd. Þá vantar eitt 0 á 14. bls. í upphafi 4. málsgreinar, þar sem talað er um eiturlyf ja- neytendur í Bandaríkjunum, á talan að vera 50.000. STERKA ÖLIÐ Sænskur sjúkrahúslæknir skrifar í fræðiritið Alkoholfrágan um ölneyzluna. Hann bendir á, að almennt geri fólk sér ekki ljóst, hve skaðleg hin daglega öl- drykkja sé. Neyzla sterku drykkjanna í ofdrykkju manna á laugardagskvöldum, sé miklu meira áberandi og afleiðingar hennar oft raunalegar, en þessir menn séu þó oft lausir að mestu leyti eða alveg við eiturverkanir áfengisins hina 5 eða 6 daga vikunnar, en með daglegri öl- drykkju séu menn á hægfara leið niður í áfengissýkina. Við ölneyzluna bætizt svo oft einhver neyzla sterkari drykkja eða annarra eiturefna. Þetta geri ástand- ið yfirleitt miklu verra en það var, áður en sterka ölið (mellanölet) var gefið f rj álst. Islenzka þjóðin ætti að vera vel á verði gegn lævísum brögðum manna, að bæta á áfengisvandræðin hér með því að leyfa gerð og sölu sterka ölsins. Það hlyti að leiða til þess, að það yrði þamb- að á vinnustöðum, mannfundum og skemmtunum, og verða einnig æsku- mönnum ill gildra. -k -k -k Umdœmisstúkuþing Vorþing Umdæmisstúkunnar nr. 1 var háð í Templarahúsinu í Reykjavík 31. maí sl. Fulltrúar og aðrir þinggestir f jölmenntu. Kærkomnir gestir voru þar, dr. Richard Beck og frú hans, sem fluttu okkur hlýjar kveðjur frá íslendingum vestan hafs og samherjum okkar þar. Það var hressandi að hlusta á spjall dr. Becks, sem enn er hinn óþreytandi, áhugasami og trausti liðs- maður bindindishreyfingarinnar, eins og reyndar allra góðra málefna. Þau hjónin hafa verið hér á landi síðan í maí vor og fram til í haust, ferðast um landið, tekið þátt í fagnaði þjóðarinnar 17. júní og einnig í norræna bindindisþinginu, verið ágætir fulltrúar íslendinga og Þjóðræknis- félags þeirra í Bandaríkjunum og Canada. Þau hafa hvarvetna og á mörgum stöðum verið kærkomnir gestir og flutt kveðjur og ávörp. Við færum þeim alúðar þakkir fyrir heimsóknina til föðurlandsins, nú eins og áður. Þau eru miklir íslandsvinir, og allra heilla og blessunar biðjum við þeim. Umdæmisþinginu stjórnaði umdæmis- templar Ólafur Jónsson, flutti skýrslu um síðasta starfstímabilið, en frá því starfi flestu hefur blaðið sagt áður, eftir því sem það hefur verið framkvæmt. Skýrsla Páls Kolbeins um Barnaheimili templara að Skálatúni, er mjög merk og athyglisverð, en hana ætlar Eining að geyma sér og sem betza frásögn af þessu barnaheimili, þar til í september-október-blaðinu. Á þinginu ríkti góður áhugi og eindrægni og fóru þingstörf fram að venjulegum hætti.

x

Eining

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.