Eining - 01.07.1969, Page 15

Eining - 01.07.1969, Page 15
E I N I N G 15 Áfengisneyzlan er þjóðinni dýr ólafur F. Hjartar bókavörður, sem er fræöslustjóri Stórstúku Islands, sendi stúkunum í landinu eftirfarandi upplýs- ingar laust fyrir árslokin 1966 og hefur látið blaðinu þær í té. „Skýrsla Áfengismálanefndar, sem prentuð hefur verið sem fylgiskjal með frumvarpi til laga um breyting á áfengis- lögum nr. 58 24. apríl 1954, gefur nokk- uð glögga mynd af nútíma ástandi í áfengismálum Islendinga.Við höfum því miður enga stofnun, sem vinnur að gagnasöfnun um þessi mál. Af þeim sök- um er oft erfitt að benda á haldnýt rök, þegar þessi mál eru rædd. Ég vil leyfa mér að nefna nokkur at- riði í umræddu fylgiskjali Áfengismála- nefndar. Tölur sýna, að áfengisneyzla þjóðarinnar hefur farið vaxandi síðan bannlögin voru að fullu afnumin 1935. Þá ber þess einnig að gæta, að drykkju- skapur unglinga fer vaxandi, eins og skýrsla frá Barnaverndarnefnd Reykja- víkur gefur til kynna. Einnig kemur í ljós ábyrgðarleysi hinna fullorðnu í afstöðu til unglinga og áfengis. Á einum stað er skráð í fylgi- skjalinu: „Svo virðist sem unglingum sé bókstaflega kennt aö drekka á vinnu- stööunum.“ Tafla sýnir, að ölvun á aukinn þátt í umferðarslysum síðustu ára. Dr. Tómas Helgason yfirlæknir telur, að tala ofdrykkjumanna í landinu sé um 2300. Þessi tala er ábyggilega hærri en flesta grunar. Það er fróðlegt að gera sér í hugarlund, að 2300 einstaklingar, sem hafa um kr. 175.000.oo meðal árstekjur, vinna samanlagt fyrir kr. 402.500.000. - (402 milljónir). Þegar það er haft í huga, að selt var áfengi árið 1965 fyrir um kr. 400.000.000.oo (400 milljónir), hlýtur að vakna sú spurning, hvort ekki hefði verið heilbrigðara, að þessar tekj- ur hefðu komið fjölskyldum, sveit (eða bæjarfélagi) til góða. I fylgiskjalinu er minnzt á 2300 of- drykkjumenn, en ótaldir eru þeir, sem ekki sækja vinnu dag og dag sökum of- neyzlu áfengis. Erfitt er í tölum að telja allt það tjón, sem hlýzt af völdum áfengis. Fylgiskjal við þetta frumvarp ættu bindindismenn að kynna sér, því að þar er að finna ýmsar staðreyndir, sem okk- ur bindindismönnum þurfa að vera kunnar.“ Ölafur F. Hjartar. Sœlir eru hiartahreinir. Himinn hreinn og fagur heimi opnar sýn, þegar dýrðardagur dásamlegur skín, birtast ótal undur, augu verða skyggn. Sér þá efans andi alvalds mátt og tign. Ljóssins andar einir æðstu mörkum ná. Aðeins hjartahreinir himna drottinn sjá. Trúarauga ávallt opnast himinn hver. Sérhvert guðs barn greinir Guð í hjarta sér. P. S. Albjóðaregla IOGT í vexti. Nú eru um 600.000 félagar í alþjóða- reglu Góðtemplara í 40 þjóðlöndum, og horfur eru sagðar á að félögum hennar muni halda áfram að fara fjölgandi. Víða er þessum samtökum manna vel tekið, því að þau efla friðsamlega sambúð manna og allra þjóða, án þess að trúar-, stjórnmála- skoðanir, þjóðerni eða litarháttur komi þar til greina. Við tilheyrum öll mannkyninu og eigum að lifa í sátt og samlyndi, athafna- söm við það að bæta sem bezt kjör og líðan allra manna. Geium við slökki eldinn? Hvaða eld ? -—• Eldinn sem veldur heilsu- tjóni og mengar andrúmsloftið á heimilum manna, mannfundum og í veizlum, eldinn í sígarettunni og reykpípunni. Ekki hefðum við, sem hófum baráttu gegn tóbaksreykingum fyrir nokkrum tug- um ára, þorað að vænta þess, að okkur myndi veitast slík liðveizla margra mætra áhrifamanna víða um lönd, sem nú er orðin raunin. Fréttir frá Noregi greina frá því, að fé- lagsmálaráðuneytið þar hafi í hyggju að vinna gegn tóbaksreykingum, og það með lagaboði. Reynt verði að vinna gegn tóbaks- auglýsingum og svo verði menn skyldaðir til að láta prenta á sígarettupökkunum við- vörun við heilsutjóni því, sem tóbaksreyk- ingar geti valdið. Það tjón verður stöðugt meira og meira ábeiandi og er sums staðar orðið allgeigvænlegt. — Norska kirkjan beitir líka áhrifum sínum gegn tóbaksreyk- ingum, og er þá þörfin ekki minni, að herða baráttuna gegn áfengisdrykkjunni. Tóbaksauglýsingarnar í íslenzku blöðun- um eru reginhneyksli. Getum við ekki feng- ið unga fólkið í lar.dinu til að vinna gegn tóbaksplágunni ? Það væri mikill sigur. ÁFENGISSALAN 1. apríl til 30. júní 1969. Heildarsala: Selt í og frá Reykjavík ..kr. 131.702.104 - - - - Akureyri.....— 13.935.110 - - - - ísafirði ....... — 4.771.115 - - - - Siglufirði ......— 2.323.880 - - - - Seyðisfirði .... — 2.573.930 - - - - Keflavík ........— 10.136.830 - - - - Vestm.eyjum .. — 6.978.635 kr. 172.421.604 Áfengissalan á sama tíma 1968: Selt í og frá Reykjavík .... kr. 111.775.088 - - - - Akureyri......— 11.916.675 - - - - ísafirði ..........— 4.142.775 - - - - Siglufirði .......— 1.904.950 - - - - Seyðisfirði .... — 2.011.965 - - - - Keflavík ........ — 7.241.630 - - - - Vestm.eyjum . . — 5.990.405 kr. 144.983.488 Áfengissalan fyrstu sex mánuði þessa árs varð kr. 300.870.648, en var á sama tíma 1968 kr. 266.291.695. —- Söluaukning um 13%. Áfengisvarnaráð. (Heimild: Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins). Sá eitri — uppskera dauða Með áfengissölunni sá þjóðir eitri og upp- skera svo eymd, glæpi, slys og dauða. Norska blaðið Folket skýrir frá því 15. marz 1969, að 47 ára sölumaður og 23 ára ungmenni hafi setið saman í hótelherbergi og stundað áfengisdrykkju kappsamlega. Þeir urðu missáttir og leikslokin urðu þau, að ungi maðurinn sló hinn eldri með öl- flösku í höfuðið, tók hann svo kverkataki og slengdi honum í gólfið. Nokkru síðar fannst hann liggjandi þar dauður og blóð- ugur. Algáður hefði ungi maðurinn ekki drýgt þenna glæp. Hann var handtekinn og játaði glæp sinn. Dáni maðurinn var með sár á enni, hnakka og hálsi. Sama blað segir frá öðrum ungum manni 19 ára, sem stakk mann á fimmtugsaldri og varð það hans bani. Einnig þar var áfengisdrykkja að verki. Og enn segir blaðið frá ölvuðum manni, sem ók á 100 km hraða, tók nokkuð krappa beygju og ók á þessum hraða inn í hús. í bílnum voru tveir farþegar, 15 og 49 ára og fórust þeir báðir, bíllinn að mestu eyði- lagður og skemmd á húsinu var metin á 17 þús. norskar krónur. Slík er uppskeran af því að sá eitri í líf manna, en slíkt leika þjóðir og telja jafnvel menningaratriði. ■X -K -k Áminning Hæð ei neinn, þó hrynji tár heims er stormar buga; það er að bera salt í sár sorgarmæddum huga. Richard Beck.

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.