Eining - 01.06.1971, Blaðsíða 7

Eining - 01.06.1971, Blaðsíða 7
EINING 7 Landsmót ÍUT haldið í Galtalækjarskógi Helgina 3.—4. júlí var landsmót og þing ÍUT haldið í Galtalækjai’skógi. Er þetta í fyrsta skipti, sem aðstaða okkar templara austur í skógi, er notuð til þinghalds og móts, sem eingöngu er ætl- að félögum. Þingið sjálft fór fram í tjaldi sem Sumarheimili templara á, og tókst það á allan hátt mjög vel og hin sérstaka, en þó þægilega aðstaða, setti mjög skemmtilegan blæ á þingið. Þrír málaflokkar voru teknir sérstaklega fyrir í umræðuhópum. Þessir málaflokk- ar voru: a) Afstaða hinna einstöku félaga til IOGT, b) Starf (og samstarf) deilda, c) Framtíðarverkefni ÍUT (við- nám og sókn). Niðurstaða umræðuhóp- anna mun kynnt nánar í næsta blaði. Þingstörf gengu fljótt og vel undir ágætri stj óm þingforseta, Gunnars Þorlákssonar. Stjóm ÍUT næsta tímabil er þannig skipuð: Fonnaður: Sveinn H. Skúlason, 27 ára sölumaður. Varafonn.: Kristján Þorsteinsson, 21 árs háskólanemi. Ritari: Áslaug Bragadóttir, 18 ára skrifstofustúlka. Gjaldkeri: Sigurður Stefánsson, 21 árs skrifstofumaður. Meðstjórnendur: Valgerður Jónsdótt- ir, 20 ára kennari og Skeggi Guð- mundsson, 18 ára nemi. Formaður alþjóðanefndar: Sigþór Karlsson, 25 ára húsasmiður. Formaður fjánnálaráðs: Kristinn Vilhjálmsson, 59 ára framkvstj. Formaður útbreiðsluráðs: ísleifur Jakobsson, 18 ára nemi. Færeyskir ungtemplarar í heimsókn. Síðastliðinn vetur kom fram áhugi hjá félögum Hrannar að enduii:aka hina margumræddu Færeyjarferð, sem farin var 1965, og sækja félaga ung- templarafélagsins Kyndils heim, enn á ný. Skrifað var til vina okkar í Fær- eyjum og kom þá í ljós, að áhugi var hjá þeim að koma í heimsókn til fs- lands. Samningar tókust að sjálfsögðu fljótt og vel. Hinn 27. júlí komu níu stúlkur og tveir fararstjórar, en pilt- arnir fjórtán að tölu áttu að koma laugardaginn 31. júlí. Ætlunin var að láta piltanna koma beint á Galtalækjar- mótið og áttu þeir að keppa við lið frá Árvakri og Hrönn. Því miður kom- ust piltarnir ekki frá Færeyjum, vegna þoku, fyrr en á mánudeginum, þannig að öll keppni milli þeirra og íslenzkra ungtemplara féll niður, en það hefði orðið mjög skemmtilegt innlegg í mót- ið. Stúlkurnar kepptu við lið Hrannar og varð jafntefli. Ferð Hrannara til Færeyja er fyrir- huguð um miðjan ágúst og munu um fjörtíu hafa skráð sig til farar, þegar þetta er skrifað. Hranna rskálinn. Mikið hefur verið unnið við skálann í sumar. Mikill hugur er í Hrönnurum að ná því að glerja skálann og loka honum fyrir veturinn. Ef þetta tækist, yrði hægt að vinna að innréttingum og rafmagnslögnum í vetur. Sú hug- mynd kom fram á þinginu að halda næsta þing í skálanum, og vonandi verður skálinn það langt kominn næsta sumar, að þessi draumur geti ræzt. Vinnustundir sj álfboðaliða við skálann í Skálafelli eru nú þegar orðnar 5.500. Ólafur Jónsson, sextugur. Þó þessu merkisafmæli þessa mæta manns verði eflaust gerð skil hér í blaðinu, viljum við ungtemplarar senda Óla kveðju á síðu okkar með þakklæti fyrir samstarfið. Óli er mikill áhuga- maður um skógrækt og er hrein unun að sjá hann meðhöndla viðkvæmar plöntur með nærfærni og skilningi þess Frá Færeyjaför Hrannar áiáð 1965.

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.